Dagblaðið - 27.10.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDACUR27. OKTOBKK 1976.
13
óttir
ellefu mörk. Amyndinni hefur Jón (meðgleraugun) senl knöttinn yfir
náð f jögurra
iti í 1. deild
í handknattleiknum. Markaeinvígi
þar sem Jón skoraði 11 mörk, Hörður 10
son var þá afar hættulegur vörn
Hauka og skoraði mörg stórfalleg
mörk. Valur leyfði sér þann
munað, að nota minni spámenn
liðsins langtímum saman — til
dæmis lék Jón Karlsson lítið með
í síðari hálfleiknum. í heild
komst Valsliðið vel frá leiknum.
Varnarleikur allan tímann
sterkur og markvarzla þokkaleg
hjá Óla Ben. og Jóni Breiðfjörð
Ölafssyni, þó oft hafi Öli þó verið
betri en í þessum leik. Það er
sama sagan hjá Hauka-liðinu og
áður. Liðið er stórhættulegt
hvaða liði sem er í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði. en þegar í Laugar-
dalshöllina kemur er eins og allt
fari úrskeiðis. Sóknarleikur ein-
hæfur — og það, sem meira kom á
óvart, að Haukarnir voru alls ekki
harðir af sér í vörninni. Þá var
markvarzla Gunnars Einarssonar
tilviljanakennd.
Mörk Vals í leiknum skoruðu
Jón Karlsson 11(4 víti), Þorbjörn
8, Jón Pétur 4, Bjarni Guðmunds-
son 2 og Steindór Gunnarsson 1.
Fyrir Hauka skoruðu Hörður 10
(2 víti), Sigurgeir Marteinsson 2,
Stefán Jónsson 2, Frosti
Sæmundsson 1, Jón Hauksson 1
og Þorgeir Haraldsson 1.
—hsím.
Banks langar í markið á ný
Einn frægasti knattspyrnu-
maður heims, Gordon Banks,
markvöróur er lék yfir 70 lands-
leiki fyrir England —varð meðal
annars heimsmeistari 1966 —
hefui hug á þií að reyna aftur að
verja knöttinn milli stanganna.
Banks, scm slasaðist svoillaá auga
fyrir þremur árum í bílsl .si. að
hann varð að hætta að leika mcð
Stoke City, hefur ::ö undanförnu
varið mark Scarborough — liðs
utan deildanna á Englandi— með
það góðum árangri.að hann telur
sig geta leikið í markinu á ný.
Banks, sem er 38 ára, hefur hug á
því að reyna fyrir sér annað hvort
í Bandaríkjunum eða Suður-
Afríku.
Beztu úrslít
fyrir N-íra
— þegar Brighton og Derby gerðu
jafntefli í deildabikarnum í gœrkvöld.
Arsenal sigraði Chelsea 2-1 að
viðstöddum 52 þúsund óhorfendum
Brighton, efsta liðið í 3ju deild
á Englandi, gerði Norður-írum
mikinn greiða í gærkvöld. Náði
þá jafntefli við Derby í deildabik-
arnum, 1-1, sem þýðir, að ekki
verður af leik Arsenal við Derby
9. nóvember. írsku landsliðsbak-
verðirnir, Pat Ricc og Sammy
Nelsongeta þvi leikiðmeð noróur
írska landsliðinu gegn Belgum í
HM-leiknum 10. nóv. í Liege.
Gífurlegur áhugi var í Brighton
á leiknurh við Derby í 4. umferð
deildabikarsins. Reiknað með 33
þús. áhorfendum. Stemmning var
strax mikil, því eftir aðeins 37
sek. sendi Peter Ward knöttinn í
mark Derby. Leighton James
jafnaði fyrir Derby á 24. mín. og í
s.h. sótt: Derby nnin meira án
þess að skora.
Margir leikir voru á Bretlands-
eyjum i gær og úrslit þessi:
Deildabikarinn
Brighton — Derby 1-1
Arsenal — Chelsea 2-1
Everton — Coventry 3-0
Swansea — Bolton 1-1
1. deild
Bristol C. — Birmingham 0-1
3. deild
Bury — Swindon 0-1
C. Palace — Shrewsbury 2-1
Oxford — Lincoln 1-2
Rotherham — Portsmouth 2-2
York — Northampton 1-4
4. deild
Barnsley — Southend 3-1
Huddersfield — Watford 2-2
Newport — Hartlepool 1-1
Southport — Cambridge 0-0
Þá var einn leikur í skozku
úrvalsdeildinni. Kilmarnock og
Hibernian gerðu jafntefli 1-1.
Yfir 52 þúsund áhorfendur sáu
leik Lundúnaliðanna Arsenal og
Chelsea á Highbury. Chelsea var
óheppið að tapa þessum tíunda
innbyrðisleik liðanna í bikar-
keppni frá styrjaldarlokum. Auk
þess, sem Peter Bonetti gat ekki
leikið í marki Chelsea vegna
meiðsla, fótbrotnaði Brian Bason
á 18. mín. Þá varð Gary Locke að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla
lokakafla leiksins. Arsenal hafði
þá reyndar yfir 2-1. Ekkert mark
var skorað í f.h., en á 52. mín. náði
Trevor Ross, hinn 18 ára marka-
skorari, forustu fyrir Arsenal.
David Hay jafnaði fyrir Chelsea á
60. mín., en mínútu síðarn skall-
aði Frank Stapleton knöttinn í
mark Chelsea. Það reyndist sigur-
mark leiksins. Malcolm
MacDonald átti svo slakan leik
með liði Arsenal að nú er rætt
um, að hann hljóti að verða settur
úr liðinu.
Everton fór létt meó Coventry á
Goddison Park. Andy King
skoraði tvívegis fyrir Liverpool-i
Iiðið — Mike Lyons eitt inn á
milli. 14 þúsund sáu leik Swansea
og Bolton. Liðið úr 4. deild náði
forustu með marki Curtis, en
Steve Taylor tókst að jafna fyrir
Bolton.
Danskir landsliðs-
menn með Olympia!
— Lars Bock og Thomas Pazyj leika með
2. deildarliðinu i Svíþjóð
Þar sem þeir Lars Bock og
Thomas Pazyj leika nú i Sviþjóð
getur aðeins ein ástæða verið
fyrir því — þeir vinna sér inn
góða peninga, sagði danski lands-
liðsþjálfarinn í handknattleik,
Leif Mikkelsen, nýlega í viðtali
við eitt af dönsku biöðunum.
Landsliðsþjálfarinn er allt ann-
að en hrifinn af því, að þessir
tveir af máttarstólpum danska
landsliðsins hafa flutt sig yfir til
Svíþjóðar og þó einkum og sér i
lagi vegna þess, að þeir Bock og
Pazyj leika með 2. deildarliðinu
Olympia, þar sem handknattleik-
ur er á lágu stigi.
— Allt annað ei' þessir leik-
menn hefðu til dæmis farið til
Gummersbach, eóa einhvers
annars sterks liðs í Vestur-
Þýzkalandi fyrst þeir ákváðu að
leika erlendis, segir landsliðs-
þjálfarinn ennfremur.
— Opinberlega eru þeir ekki
atvinnumenn í íþrótt sinni í Sví-
þjóð. Þeir hafa báðir góða
atvinnu.
Þeir Bock og Pazyj hafa auð-
vitað staðið sig vel í leikjum í
Svíþjóð. Síðastliðinn miðvikudag
skoraði Pazyj tíu mörk í leik gegn
Malmö, sem Olympia sigraði með
24—20. Talað var um hann sem
bezta leikmann á vellinum. Hann
hefur skorað 30 mörk í þremur
leikjum fyrir Olympia, sem nú
er í efsta sæti í 2. deild.
En danski landsliðsþjálfarinn
er þó ákveðinn í þvi að nota þessa
sterku leikmenn, Lars Bock og
Thomas Pazyj, í danska landslið-
inu þó með því skilyrði, að þeir
eigi ekki leik kvöldinu áður með
sænska liðinu og það á ekki að
vera vandamál, segir í greininni
að lokum.
Ólafur Benediktsson.
Olympía í
Svíþjóð
með óhuga
ó Óla Ben.
Sænska 2. deildarliðið Olympía
sem er efst í 2. deild hefur sýnt
mikinn áhuga á að fá Olaf Bene-
diktsson, hinn snjalla markvörð
Vals og landsliðsins yfir 1 sínar
raðir. Ef af verður sem talsverðar
líkur eru á, þá mun Ólafur fara
utan um eða eftir áramót. Olym-
pia leikur, eins og áður sagði, í 2.
deild og hefur fengið til liðs við
sig tvo danska landsliðsmenn —
þá Lars Bock og Thomas Pazyj.
Forráðamenn Olympia hafa
sett síg i samband við Ólaf og lýst
miklum áhuga og hefur Ólafur
hug á að fara ef honum lýst vel á
aðstæður.
Vart þarf að taka fram, að ef
Ólafur færi yrði það Val mikið
áfall, þar sem hann hefur verið í
mjög góðu formi undanfarið.
Hann hefur verið maðurinn á bak
við hina góðu byrjun Vals í ís-
landsmótinu en auðvitað hefur
Ólafur haft sterka vörn fyrir
framan sig.
Það yrði að sama skapi mikið
áfall fyrir landsliðið að missa
Olaf — framundan eru mikil og
erfið verkefni og Janus
Gzerwinsky þarf á öllum þeim
mönnum að halda, sem íslenzkur
handknattleikur hefur yfir að
ráða.
h. halls.
Valur að
„stinga af"
Úrslit i leikjunum i 1. deild í
gærkvöld urðu þessi:
Fram — FH 23-29
Valur — Haukgr 26-17
Staðan er nú þannig:
Valur 4 4 0 0 91-63 8
Haukar 3 2 0 1 63-66 4
ÍR 3 2 0 1 58-62 4
Fram 3 1 1 1 66-68 3
FH 3 1 0 2 63-63 2
Þröttur 3 0 2 1 51-56 2
Grótta 3 0 1 2 57-65 1
Víkingur 2 0 0 2 40-46 0
Markahæstu lcikmenn eru nú:
Hörður Sigmarss. Haukum 28/5
Jón Karlsson, Val 27/9
Þorbj. Guðmundsson, Val 23/2
Arnar Guðlaugsson, Fram 17/1
Viðar Símonarson, FH 17/7
Geir Ilallsteinsson, FH 16/5
Konráð Jónsson, Þrótti 16/2