Dagblaðið - 27.10.1976, Qupperneq 14
DACBLAÐH). MIDVIKUDACUR 27. OKTÓBER 1976.
14
DAVID CASSIDV.
Mick Ronson stofnar
hljómsveit
með David Cassidy
— Ja, lítið lagðist fyrir kapp-
ann, hugsuðu eflaust margir,
þegar þeir fréttu, að gítarleik-
arinn Mick Ronson væri búinn
að stofna hljómsveit með
súkkulaðidrengnum David
Cassidy. Sú er nú samt raunin.
Hljómsveitin var stofnuð er
Mick var fenginn til að stjórna
upptöku á nýjustu hljómplötu
Cassidys.
Meðan á því samstarfi stóð,
ákváðu þeir að smala saman í
hljómsveit, sem hlaut nafnið
Ronson-Cassidy Band. Hljóm-
sveitin æfir nú af kappi vestur í
Bandarikjunum.
Mick Ronson er mjög virtur
meðal brezkra og bandarískra
tónlistarmanna. Hann vakti
fyrst á sér athygli er hann
starfaði með David Bowie.
Síðar vann hann með Ian
Hunter og fleirum en fræg-
astur varð hann þó fyrir að
leika með í hljómleikaferð Bob
Dylan og the Rolling Tunder
Band í fyrra.
Ný stórhljómsveit í Bretlandi:
Verður hón jafn vinsœl og
JI/IEGIMEGAS VERÐA SEM
LENGST í BLINDGÖTUNNI
MEGAS: Fram & aftur blindgötuna. (01-
006).
Útgefandi: Hrím hf. 1976.
Upptaka: Hljóöriti.
Upptökumaöur: Tony Cook.
Skuröur / Pressun: CBS, Hollandi.
Með nafni plötunnar, Fram
og aftur blindgötuna, má túlka
efni hennar. Megas er á sömu
bylgjulengdinni og á síðustu
plötu sinni, Millilendingu, hvað
viðfangsefni varðar. Þarna er
enn á ferð'nni mjög góð rokk-
tónlist með sláandi textum um
alls konar viðburði 1 þjóðfélag-
inu, sem I fljótu bragði virðast
smáir, en I meðferð Megasar
virðast mikilvægir.
Það verður væntanlega verk-
efni Megasar á næstu plötu
sinni að finna leið út úr blind-
götunni og takast á við ólík
verkefni. Lærimeistari hans,
Bob Dylan, hefur iðkað þau
vinnubrögð að senda frá sér
tvær plötur I sama stíl og skipta
svo um stíl. Ef það stenzt, þá
megum við kannski eiga von á
að heyra Megas syngja með
engilblíðri rödd um ástina,
vorið og land sitt og þjóð á
næstu plötu.
Frekar vildi ég að engin
næsta plata kæmi út með
Megasi en að hann rataði út úr
blindgötunni. Þar á hann
heima og þar er ekki annað að
heyra en að hann uni sér vel.
Á Fram og aftur... kemur
fram hópur meðspilara, sem
sleppur að mínum dómi mjög
vel frá sínu. Ég held að segja
megi að miðað við að hér komi
fram fólk úr mörgum áttum þá
sé um toppundirleik að ræða.
Þarna koma fram þrír meðlimir
hljómsveitarinnar Celsíus,
tveir úr Eik, Aagot, sem lék
með Diabolus og loks Þorleifur
Gíslason vélstjóri í Héðni.
Mér er sagt, að platan hafi
þegar í stað selzt mjög vel. Tæp-
lega er það vegna góðrar sölu
til almennra neytenda, heldur
háskólaborgara, sem jafnan
hafa hampað Megasi hátt.
Meðal þessa fólks kann Megas
jafnan bezt við sig og á skemmt-
unum þess er hann beztur.
Þetta tel ég mjög miður, því að
með svolítilli pælingu kemur í
ljós að Megas höfðar til allra.
Óvinsældir hans meðal almenn-
ings má rekja til hrjúfrar og
óaðlaðandi raddar hans og ekki
síður nöturlegra umfjöllunar-
efna eins og til dæmis í laginu
Jólnanáttburður.
Þar birtist þó veruleikinn
eins nakinn og hann frekast
getur orðið, en það eru bara
sorglega fáir, sem vilja taka
niður dökku gleraugun sín og
sjá þennan veruleika.
Fram og aftur blindgötuna er
þriðja plata Megasar. Því miður
hef ég ekki haft tækifæri til að
hlusta á fyrstu plötu hans að
neinu marki, en Millilendingu
kann ég utan að. Af fyrri kynn-
um minum af tónlist Megasar
leyfi ég mér að fullyrða að
Fram og aftur... sé það bezta,
sem ég hef heyrt frá honum.
— AT —
»
Jólaplötuflóðið er skollið á:
„JÓLASTJÖRNUR" MEÐ HALLA
OG LADDA, RÍÓ, BJÖRGVINI
HALLDÓRSSYNIOG GUNNARI
ÞÓRÐARSYNI - Ýmir gefar út
Hér áður fyrr var talað um
jólabókaflóð, en tímarnir hafa
svo sannarlega breytzt. Fyrir
hver einustu undanfarin jól
hafa verið gefnar út hljóm-
plötur hinna ýmsu listamanna,
innlendra sem erlendra, og nú
eru meira að segja bókaforlögin
farin að gea út hljómplötur til
þess að fylgjast með timanum,
samanber utgáfu Iðunnar á
,,Vísnabókinni“.
Jólalög hafa líka alltaf reynzt
vinsæl og fara hljómplötur með
þeim nú óðum að berast á
markaðinn.
Ein fyrsta platan i þeim dúr
kemur frá fyrirtæki Gunnars
Þórðarsonar, Ými, og mun hún
eiga að bera nafnið ,,Jóla-
stjörnur".
Þar er álitlegur hópur sam-
ankominn til þess að syngja
jólalög, — Halli og Laddi, Ríó,-
Björgvin Halldórsson og svo
Gunnar sjálfur.
Verður gaman að vita
hvernig þeim hefur tekizt til
við að búa til jólastemmningu.
— AT
EMERSON, LAKE AND PALMER?
Enn ein stórhljómsveitin
hefur verið stofnuð I Bretlandi.
Að henni standa þrír vlðfrægir
menn, — þeir Rick Wakeman
hljómborðsleikari og tónskáld,
John Wetton bassaleikari og
trommarinn Bill Brudford.
í Melody Maker er sagt frá
þessari hljómsveitarstofnun og
sú ályktun dregin, að hún eigi
jafnvel eftir að ná iafnlangt og
Emerson, Lake og Palmer.
Þeir Rrck Wakeman og Bill
Bruford hafa unnið saman áður
og þá með hljómsveitinni Yes.
John Wetton starfaði síðast
með Uriah Heep, en sagði þar
upp í sumar. Hann lék áður
með Family og King Crimson.
I næsta mánuði kemur út ný
plata með Rick Wakeman. Sú
nefnist White Rock. Lögin á
þessari plötu eru notuð við
kvikmynd, sem tekin var á
síðustu vetrarólympíuleikum.
HVER ER NÓ ÞETTA?
ÁSGEIR
TÓMASSON
— Jú, hún heitir Suzi Quatro
Suzi Quatro, söngkonan
fræga, sem varð geysilega vin-
sæl fyrir nokkrum árum, hefur
heldur betur breytt um útlit.
Nú gengur hún með krullað hár
og er eiginlega með öllu orðin
óþekkjanleg.
Fremur hljótt hefur verið
um Suzi að undanförnu. Hún
hefur þó ekki verið með öllu
aðgerðalaus, því að nú vinnur
hún að nýrri plötu, sem kemur
út einhvern tíma fyrri hluta
vetrar. Suzi semur efnið á plöt-
una sjálf.
Hún var að því spurð, hvort
útlitsbreyting hennar þýddi, að
tónlistarstefnan breyttist líka.
„Nei, hún breytist ekkert,"
svaraði Suzi. „Tónlistarflutn-
ingur minn hefur verið
svipaður frá byrjun og gengið
vel I fólkið, svo að ég sé enga
ástæðu til að skipta um stíl.“