Dagblaðið - 27.10.1976, Page 24
... ......,....„...... .. *
Saksóknari fær Guðmundarmálið og 24 önnur:
Líkiö var flutt úr
Hafnarfjardarhrauni
— Guðmundi ráöinn endanlegur bani meö hnífsstungum
„Gæzluvarðhaldsfangarnir
hafa borið það að þeir hafi flutt
lík Guðmundar Einarssonar úr
Hafnarfjarðarhrauni.“. sagði
Örn Höskuldsson rannsóknar-
dómari í samtali við fréttamanri
blaðsins í gær í tlefni þess að
rannsókn morðmáls Guð-
mundar er nú lokið og málið
afhent ríkissaksóknara til um-
fjöllunar í gær.
Örn sagði að banamenn
Guðmundar, þeir Kristján
Viðar Viðarsson, Sævar
Marinó Ciecielski og Tryggvi
Rúnar Leifsson, hefðu ekki
getað gert nákvæma grein fyrir
því hvert líkið hefði verið flutt.
Þeir munu, eftir því sem DB
kemst næst, hafa skýrt svo frá
að líkið hafi verið falið í Foss-
vogskirkjugarði einhvern tíma
ársins 1974, en þar hefur það
ekki fundizt.
örn Höskuldsson kvað eKki
endanlega ljóst hvernig dauða
Guðmundar Einarssonar bar að
höndum. Dagblaðið telur sig þó
hafa óyggjandi heimildir fyrir
því að Kristján Viðar
Viðarsson hafi greitt honum
síðasta hö^gið með hníf sem
enn hefur ekki fundiet.
Banamenn Guðmundar hafg
í sumar gengizt undir geðrann-
sókn og er henni nú lokið.
Siðasta skýrslan, um geðheil-
brigði Sævars M. Ciecielskis,
barst sakadómi Reykjavíkur á
mánudaginn og er niöurstaða
geðrannsókna þremenninganna
sú að allir séu þeir sakhæfir, að
sögn Arnar Höskuldssonar
Auk morðmálsins voru ríkis-
saksóknara send í gær tuttugu
og fjögur önnur mál sem þre-
menningarnir eiga aðild að,
ýmist saman eða hver í sínu
lagi. Ná þau mál allt aftur til
ársins 1972 er Tryggvi Rúnar
kveikti i á Litla-Hrauni svo
stórtjón varð af. Stærsta málið
af þessum 24 er frá 1974 er
Sævar Ciecielski og þáverandi
unnusta hans og sambýliskona,
Erla Bolladóttir, sviku 950
þúsund krónur út úr Pósti og
sima. Það mál leiddi upphaf-
lega til þess að upp komst um
morðið á Guðmundi Einarssyni
og síðar um afdrif Geirfinns
Einarssonar.
í pakkanum, sem saksóknari
fékk í gær, voru einnig fimmt-
án innbrots- og þjófnaðarmál
sex fjársvika- og falsanamál,
likamsárás og bílþjófnaður og
evðilegging bifreiðarinnar.
Næsta skref í þessum málum
er að ríkissaksóknari tekur
ákvörðun um ákæru og máls-
höfðun. Leitinni að líki Guð-
mundar Einarssonar verður
haldið áfram, enda telja rann-
sóknarmenn víst að þre-
menningarnir viti nákvæmlega
hvar það er a'ð finna.
—ÖV.
W
1 1P ftW'
Slóð ávísanafalsara um
Akranes og Reykjavík
Komst framhjá fvrirsát lögreglu
en handtekinn síðar við sölu
falskra ávísana
Tveir ávísanatalsarar voru
nandteknir í gær en þeir munu
^amalkunnir í faginu og höfðu
skiliðeftirsig nokkra slóð falskra
ávisana og ævintýramennsku í
sambandi við það.
Annar mannanna var handtek-
inn í útibúi Landsbankans við
Langholtsveg síðdegisí gær. Aður
hafði boriztbeiðnifrá Jögregluni á
Akranesi að handtaka ir.anninn,
en hann myndi þá á leið íileigubíl
frá Akranesi til Reykjavíkui
Hefðu Akranesiögreglunni þá
borizt tvær ávísanir sem náung-
inn hafði falsað. Hjóðuðu þær
upp á 7 þúsund og 8 þúsund krón-
ur.
Setið var fyrir Akranesbílnum
en hann mun hafa verið sloppinn
í gegn.
Næst fór maðurinn í Múlaútibú
Landsbankans og seldi þar 15 þús-
und króna ávísun, sem einnig
mun hafa verið fölsuð. Þá lagði
hann leið sína i Langholtsútibú og
hugðist þar selja átta þúsund
króna ávísun. Þar kannaðist fólk
við náungann og vakti það og at
hygli að maðurinn var undir
annarlegum áhrifum. Var lögregl-
unni gert viðvart og var maðurinn
tekinn þar í bankanum.
Síðar í gær mun félagi þessa
náunga hafa verið tekinn, einnigr
bendlaður við ávísanafals, og
mun varðhaldsdómur hafa verið
kveðinn upp í gærkvöldi en rann-
sókn málsins átti að hefjast í dag,
er menn væru orðnir allsgáðir.
— ASt.
Slasaðist alvarlega á Ijós-
lausu hjóli í umferðinni
Fjórtán ára drengur á ljóslausu reiðhjóli varð fyrír bifreið á
Réttarholtsvegi í morgun. Hlaut hann mikið höfuðhögg og var
tekinn í aðgerð í slvsadeiid svo fljótt sem verða mátti. Drengurinn
mun hafa verio á leið í skðla en siysið var á mðts við hus nr. 45-tii
við Réttarholtsveg. Það var Volkswagennifreið sem ðk aftan á
drenginn. Sá ökumaður hennar ekkerttil drengsins fyrr en bíllinn
skali á hjðli hans. Ekkert bendir til of mikils ökuhraoa.
DB-mynd Sv.Þormj
Drukknir og dópaöir sjó- — og strönduðu
mennollustórskemmdum L-!?fcssMpfs/nu
Tveir ungir sjómenn á Sigur-
vin SH frá Ölafsvík, annar
Hafnfirðingur og hinn Reyk-
víkingur sitja í gæzluvarðhaídi
á Hornafiði eftir næturævin-
týri þeirra sl. nótt. Menn-
irnir sátu að sumbli en þegar
áfengið þraut, lögðu þeir til
gúmbátsins ognáðuþar í orvandi
lyf. Vélstjóri hái'.
íns varð var vio verknað
þeirra og hugðistná í lögregluna
Tóku þeir það nu tii bragðs að
halda frá landi á bátnum.
Tókst þá ekki betur til en það
að þeir keyrðu á Þinganes sem
þarna var við bryggju og urðu
verulegar skemmdir á skipinu.
Var nú haldið áfram út á höfn-
ina, en þá tók báturinn skyndi-
lega kipp, hart i bak. Lenti bát-
urinn næst á hafskipabryggj-
unni og olli skemmdum á
henni. Þessu næst virtist
háhyrningslaugin í hættu, en
ferðinni lauk þó skammt frá
henni og strandaði báturinn
þar skammt frá.
Ekki voru skipverjarnir tveir
af baki dottnir. Þeir höfðu sam-
band við land og óskuðu eftir
að fá lóðs til að draga sig út.
.. 1 stað lóðsins héldu þeir
Guðmunc'ur Svavarsson lög-
regluþjónn og Konráð skip-
stjóri á Sigurvon'háhyrnings-
bátnum, út á gúmbáti. Réðust
þeir um borð og varð að hand-
járna annan manninn uppi í
brúnni, en hinn flúði af
staðnum og stakk sér til sunds
í kaldan sjóinn. Munaði þá litlu
að hann lenti ofan á utanborðs-
mótorinn á gúmbátnum.- Var
manninum um síðir bjargað á
þurrt eftir illa veru í köldum
sjónum.
Báðir sitja mennirnir inni og
voru enn ekki viðmælandi i
morgun, þegar taka átti skýrslu
af þeim.
— VV/JBP —
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 27. OKT. 1976
Leitað dag hvem
— án árangurs
Enn í dag verður haldið áfram
leit að Akurnesingnum tvítugá,
sem drukknaði við brúargerðina
yfir Borgarfjörð. Hafa tvær þyrl-
ur leitað dag hvern yfir svæðinu,
fjörur hafa verið gengnar og
nokkuð slætt en allt án árangurs.
Svæðið er mjög erfitt til leitar,
straumar miklir og aðstæður allar
erfiðar. í dag beinist athyglin að
svæði frá Borgareyjum inn undir
Langárósa. — ASt.
Meiðyrðamál
DB gegn
Guðjóni
Styrkárssyni
þingfest sl.
fimmtudag
— hann krefst dóms-
rannsóknará
„stuldi” skjala úr
bókhaldi Vængja
og einkaskjalasafni
sínu
Meiðyrðamál Dagblaðsins á
hendur Guðjóni Styrkárssyni,
hrl., stjórnarformanni flugfélags-
ins Vængja hf., var þingfest í
bæjarþingi Reykjavíkur sl.
fimmtudag, 21. október. Lög-
maður stefnda fékk frest til að
skila greinargerð i málinu til 4.
nóvember.
Guðjón Styrkársson lagði i fyrra-
dag fram kæru við Sakadóm
Reykjavíkur, þar *sem hann fej-
fram á að opinber rannsókn fari
fram á stuldi skjala úr bókhaldi
Vængja hf. og einkaskjalasafni
sínu á skrifstofu sinni. Myndir af
nokkrum þessara plagga voru
birtar i Dagblaðinu 8. oktðber sl.
— ÓV.
Sundkennsla:
„Hörmulegt
ástand”
— segja þingmenn
Af 64 útgerðarstöðum, sem
hafa íbúatölu undir 4000, hefur
aðeins 21 sundkennsluaðstöðu.
Þetta segja þrir þingmenn i
greinargerð með frumvarpi um
hækkun framlaga ríkisins til
sundlaugabygginga.
„Litil og fjárvana sveitarfélög
geta með engu móti lagt fram 50
prósent af stofnkostnaði slíkra
mannvirkja," segja þingmenn-
irnir, „enda sýna upplýsingar,
sem fyrir liggja, að ástand í þess-
um málum er hið hörmuleg-
asta...“
Sundkunnátta er sérstaklega
mikilvæg við sjávarsíðuna, þar
sem sjósókn er helzti atvinnuveg-
urinn.
Verst er ástandið á Vestfjörð-
um.
Þingmennirnir leggja til, að
hluti ríkisins í stofnkostnaði verði
aukinn úr 50 í 75 prósent.
Þeir eru Karvel Pálmason
(Samtökunum), Jónas Árnason
(AB) og Sighvatur Björgvinsson
(A). — HH