Dagblaðið - 15.11.1976, Síða 8

Dagblaðið - 15.11.1976, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 15. NÖVEMBER 1976. Erlendar fréttir REUTER Frakkland: Chirac sigraði í aukakosn- ingum Jacques Chirac, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands. Jacques Chirac, fyrrum for- sætisráóherra Frakklands, sem varð að vika úr sæti vegna ágreinings við Giscard d’Estaing á dögunum, hlaut umtalsvert magn atkvæða f fyrstu aukakosningunum til þingsins í morgun. Fjórir fyrr- verandi ráðherrar i ríkisstjórn hans fengu slæma útreið í þessum kosningum á kostnað sósíalista, sem eru í stjórnar- andstöðu. Alls verða haldnar sjö slíkar aukakosningar áður en þing- kosningarnar fara fram í Frakklandi eftir 16 mánuði. Urslit þessara kosninga geta gefið mikilvægar vísbendingar um úrslit þingkosninganna og ef Chirac hlýtur svipaðan stuðning og hann fékk í morgun virðist hann vera lík- legur í forsætisráðherrastólinn aftur. Kosiö um frjálst Quebec í dag Kjósendurí frönskumæiandi fylkinu i Kanada — Quobec, taka um það ákvörðun i dag hvort þeir vilji fylkisstjórn sem muni ganga að því með oddi og egg að fá fram aðskilnað frá Kanada. Stjórnarandstöðuflokkurinn, Quebecois, sem berst fyrir hóraðskosningum til að prófa aðskilnaðarstefnu sína, hefur náð miklu fylgi fram yfir stjórnarflokkinn, Frjdlslynda, í forkosningunum. Þriðji hluti kjósenda í fylkinu er þó óákveðinn enn þá í afstöðu sinni til aðskilnaðarins. Líbanon: Sýrlendingarnir eru komnir inn í Beirút Sýrlenzkar hersveitir streymdu inn í Beirút, höfuð- borg Líbanons, í morgun á skriðdrekum og bifreiðum til að halda þar uppi lögum og reglu samkvæmt vopnahléssátt- mála Arababandalagsríkjanna. Að minnsta kosti fimm her- deildir komu inn í borgina frá úthverfunum um dögun og skömmu eftir að sólin fór að skína á rústir þorgarinnar náði W* H| Sýrlenzkur skriðdreki kemur inn i Beirút i morgun. fyrsta herdeildin til hafnar- svæðisins. Engrar andspyrnu várð vart á fyrstu klukkutímunum. Þess hefur verið beðið í nokkra daga að friðargæzluliðið kæmi inn 1 borgina. Sýrlendingarnir hafast að samkvæmt samkomulagi þjóðarleiðtoga Arababanda- lagsríkjanna og undir beinni stjórn Eliasar Sarkis, forseta Libanons, sem undirbjó komu friðargæzluliðsins til borgar- innar með samningum við hin strfðandi öfl. Sýrlendingunum var feiki- vel fagnað í einu af hverfum múhameðstrúarmanna þar sem vinstrimenn ráða lögum og lof- um. Einn skriðdrekanna fór fram og aftur um aðalgötuna með sýrlenzkan herforingja og einn leiðtoga heimamanna með uppréttar hendur í fögnuðu á þaki hans. Móttökurnar í austurhluta borgarinnar, þar sem hægri- menn og kristnir ráða, voru hljóðlátari. Þar fylgdust menn með úr hæfilegri fjarlægð og sögðu lítið. Harðir bardagar geisuðu í borginni í nótt en þeim var lokið áður en friðargæzluliðið kom inn í hana. Carter bjargað úr klípu: Babtistakirkjan opin fyrir alla Jimmy Carter, kjörinn Banda- ríkjaforseti, hittir fréttamenn í kvöld — daginn eftir að fundin var lausn á vandamáli sem reynd- ist það viðkvæmasta er hann hafði átt við að glíma síðan hann var kjörinn forseti. Forsetaefnið er talið hafa átt verulegan þátt í því að fá babtistasöfnuð sinn heima í Plains í Georgíu til að opna dyr kirkjunnar fyrr blökkumönnum í fyrsta skipti. Linnir nú væntan- lega þeim röddum, sem hafa krafizt þess að Carter hætti að sækja þessa kirkju sem hann hefur sótt ásamt fjölskyldu sinni síðan hann var lítill drengur. Því verður ekki neitað að það lítur ekki vel út fyrir forseta Banda- ríkjanna að sækja kirkju sem blökkumenn fá ekki aðgang að. Mál þetta kom upp tveimur dögum fyrir kjördag þegar blakk- ur prédikari úr nágrannabænum Albany sótti um aðgang að kirkj- unni í samræmi við yfirlýsingar Carters og sóknarprestsins. Sóknarnefndin lét heldur hætta við guðsþjónustuna þann daginn. Leikurinn æstist og iauk í gær þegar söfnuðurinn kom allur sam- an til fundar að lokinni messu og ákvað með 120 atkvæðum gegn 66 að opna dyr kirkjunnar fyrir öllum, bæði svörtum og hvítum. Carter beitti áhrifum sínum í síðustu viku til að tryggja þessi úrslit og sagðist hafa tekið þrisvar til máls á safnaðarfundinum í gær. Mörg ár eru liðin síðan hann lagði fyrst til að kirkjan yrði opn-i uð blökkumönnum. Carter er kennari i sunnudaga- skólanum í baptistaklrkjunnl f Plains og hefur farið vfða um landið á vegum hennar og pré- dikað Orðið. t gær sagði hann stopp — nú hleypum við blökkum. hér inn. Hamstrað í verzlunum í London: TUGIR ÞUSUNDA KOMU TIL L0ND0N í GÆR Jackie fékk átta milljón dollara íarfeftirAra TIL AÐ VERZLA ÓDÝRT Fjöldi kaupmanna í London braut lögin í gærkvöld, er þeir höfðu verzlanir sínar opnar fram eftir vegna tuga þúsunda ferða- manna, sem komu frá meginlandi Evrópu um helgina íþeim tilgangi einum að verzla í London. Sala í verzlununum var líka mjög mikil og ferðamennirnir gerðu góð kaup vegna falls sterlingspunds- ins undanfarna daga. Margir komu á bílum sínum og sumir í flutningavögnum yfir Ermarsund og sneru til baka drekkhlaðnir hlutum eins og ísskápum, hljómflutningstækjum og ritvélum að ógleymdum fötum og matvöru úr stórmagasínunum. Brezkar verzlanir eiga að vera opnar á sunnudögum en aðeins tii að selja nauðsynjavörur. Margir kaupmannanna eiga því á hættu að verða að greiða sektir vegna þess að þeir höfðu opið. Þeir greiða sektirnar með glöðu geði vegna þessarar gífurlegu sölu í gær. Kaupmenn og verzlunar- stjórar áttu von á miklum fjölda fólks frá meginlandinu og höfðu því birgt sig ótæpilega upp af alls konar varningi í vikunni sem leið, til að mæta þessari gífurlegu flóðbylgju ferðamanna. Christina Onassis, skipa- kóngsdóttirin, hefur greitt stjúpmóður sinni, Jackie: Kennedy Onassis, átta milljónir dollara (1,5 milljarða ísl. króna) sem lokagreiðslu vegna arfsins eftir Aristoteles Onassis, að sögn bandariska blaðsins National Enquirer Blaðið hefur þetta eftir- náinni vinkonu Christinu, sem sagði jafnframt að þetta væri endapunkturinn á sambandi Jackiar við Onassis fjölskyld- una. Jackie fékk ei'na milljón dullara í ávísun, — hinar sjö milljónirnar eru hlutabréf í fyrirtækjum fjölskyldunnar. Jackie fór fram á að fá greiddar 15 milljónir, dollara í arf en Christina harðneitaði að greiða þá upphæð.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.