Dagblaðið - 16.11.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 16.11.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1976 — 258. TBL. RITSTJORX SIÓUMULA 12, SIMI 83322. AUGI.YSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SIMI 27022 r Ekki virðist mikið liggja á: Hæstiréttur fær ekki gögnin frá Sakadómi Hæstiréttur hefur enn ekki getað tekið til meðferðar kæru á gæzluvarðhaldsúrskurði sem Birgir Þormar, fulltrúi yfir- sakadóntara, kvað upp að- fararnótt sí. laugardags, þar eð gögn málsins hafa ekki fengizt afhent úr Sakadómi. Rúmlega þrítugur Reykvík- ingur var úrskurðaður í gæzlu- varðhald vegna vitneskju sem hann er talinn geta búið yfir um atriði sem varða Geirfinns- málið, eins og frá var skýrt í fréttum DB í gær. Réttargæzlumaður gæzlu- varðhaldsfangans kærði úr- skurðinn strax og hann átti þess kost en þar sem gögn máls- ins og útskrift á yfirheyrslum hafa enn ekki fengizt úr Saka- dómi getur Hæstiréttur enn ekki fjallað um hinn kærða úr- skurð. Er nú þess að vænta að ekki verði dráttur á þeirri af- hendingu nauðsynlegra gagna frekar en orðið er. Maður sá sem nú hefur verið úrskurðaður í gæzluvarðhald átti bíl þann sem m.a. Sævar Marinó Ciecielski notaði í des- ember í fyrra til þess að smygla í hassi til íslands. Um aðild mannsins að því smygli að öðru leyti er ekki vitað. Víst er talið að nýlegur fram- burður Sævars M. Cieeielskis, sem setið hefur í gæzluvarð- haldi í nærri því eitt ár, hafi leitt til þess að áðurgreindur maður var tekinn til yfir- heyrslu og síðan úrskurðaður í gæzluvarðhald, sem fyrr segir. ÓV/BS. Vörur jafnvel ódýrari út úr búð í London en í innkaupum íslenzkra stórkaupmanna Dregur úr jarðskjálftum á Kötlusvæðinu Mjög hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Kötlu- svæðinu á undanförnum 5—6 dögum að sögn Einars Einars- sonar, bónda á Skammadalshóli í Mýrdal, en hann hefur fylgzt með jarðskjálftamæli þar eystra að undanförnu. ,,Mér ■ þykir þetta ekkert alvarlegt," sagði Einar í samtali við DB í morgun, „þetta hefur áður komið hér fyrir á svipuðum árstíma.“ Jarðhræringar á Kötlusvæðinu hófust fyrir alvöru 17. september og hafa verið nokkuð stöðugar siðan þar til fyrir tæpri viku sem fyrr segir. Snörpustu kippirnir, sem þó hafa aðeins komið fram á mælum, hafa mælzt 3.5-3.6 stig á Richter. Flestir mældust kippirnir í lok október, þá urðu þeir yfir tíu á dag. Upptökin virðast vera í vestan- verðum Mýrdalsjökli og einnig í eða við Kötlu. -ÖV. Útlendingar verzla í stórverzluninni Marks og Spencer við Oxford götu í London. Þar eins og víða í London gera þeir góð kaup. Verðlagsstjóri hefur jafnvel fundið þess dæmi að vörur hafa verið á lægra verði út úr búð- inni í London en það verð hefur verið sem íslenzkir stórkaup- menn hafa greitt fyrir sömu vöru í innkaupi. Sem sé, að smásöluverð í London hafi verið lægra en heildsöluverðið til íslenzku innflytjendanna. í viðtali við Dagblaðið nefnir verðlagsstjóri þann möguleika að unnt væri að lækka vöruverð með því að koma í veg fy. ir umboðslaunin, kommissionina, þótt einhver hækkun álagn- ingar hér innanlands kæmi á móti í sumum tilvikum. Sjó frétt á bls. 9 Vængir munu ekki fljúga á næstunni — engin vélanna í lagi og enginn flugvirki til staðar Ekkert bólar enn á banda- ríska flugvirkjanum sem átti aJ koma til að skrifa út flug- vélar Vængja og reyndar vant- ar talsvert á að þær séu flug- hæfar þótt hann komi. Erlendur maður, sem vann að viðgerðum fyrir Vængi fyrir nokkru, fór utan með annan mótor annarrar Otter flug- vélarinnar og kemur ekki fyrr en eftir mánuð. Talsvert vantar á að hinn Otterinn geti talizt flughæfur skv. reglum en lítilsháttar mun vanta á að Islander flugvélin. sú minnsta 1 eigu félagsins.sé flughæf. Hún annar hins vegar aðeins hluta verkefnanna miðað við eðlilegt ástand. Allir starfsmenn Vængja eru á launum enn og mæta til vinnu. Hafa þeir eftir Guðjóni Styrkárssyni að flugvirkinn bandaríski sé ekki kominn þar sem svo langan tíma taki fyrir Bandaríkjamenn að fá vega- bréf. -G.S. r Milljón króna bótakrafa vegna ummæla um Einar Bollason ,,Ef gæzluvarðhaldsúr- skurðurinn yfir þeim manni sem nú hefur verið tekinn er byggður á álíka traustum grunni og úrskurðurinn yfir Einari Bollasyni á sínum tíma þá er ég ekki trúaður á að lausn Geirfinnsmálsins sé i nánd,“ sagði Ingvar Björnsson, lög- maður Einars, í viðtali við Dag- blaðið í morgun. Ingvar Björnsson hefur nú gefið út stefnu fyrir hönd Einars Bollasonar, vegna æru- meiðandi ummæla sem birtust í fjölmiðli á meðan Einar sat í gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar á Geirfinnsmál- inu. Ingvar kvaðst ekki vilja skýra frá því hverjum stefnt yrði í þessu sambandi, þar sem hann væri ekki viss um að stefnan hefði verið birt á lög- formlégan hátt. Hilmar Jónsson, bókavörður i Keflávfk, staðfesti í viðtali við Dagblaðið í morgun að sér hefði i gærkvöld 'verið birt stefnan sem hér um ræðir. Er krafizt einnar milljónar króna í bætur fyrir tiltekin ummæli og þess krafizt að þau séu dæmd dauð og ómerk. Verður málið þing- fest f.vrir bæjarþingi Kefla- vikur á morgun. Stefnt er út af tveim setning- um sem birtust í grein Hilmars Jónssonar i Dagblaðinu hinr. 7. apríl sl. Eru þær svohljóðandi: „Stórglæpamenn, sem ekki guggna fyrr en öll sund eru lokuð", og „eitt mesta réttar- hneyksli i íslenzkri sögu, þar sem grunaðir stórafbrotamenn munu innan skamms snúa vörn í sókn og fá sér dæmdar óhemju fjárfúlgur frá ríkinu vegna skorts á sönnunum." „Eg hefi ekki sagt annað en dómstólar hafa gefið tilefni til," sagði Hilmar Jónsson í við- tali við DB i morgun. „Af hverju stefnir hann ekki rík- inu?“ spvr Hilmar. BS.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.