Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.11.1976, Qupperneq 7

Dagblaðið - 22.11.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 22. NÓVEMBER 1976. 7 Rabin vill hitta Sadat og ræða fríö i Miðaustur- löndum ^ Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak Rabin hefur opinber- lega hvatt forseta Egyptalands, Anwar Sadat, til þess að hitta sig að máli þar sem þeir gætu fundið friðsamlega lausn á mál- efnum Miojarðarhafsþjóða. I viðtali við vikuritið Time. segir hann að hann sé þess albúinn að undirrita samkomu- lag við Arabaþjóðir þar sem segði að ísraelsmenn yrðu að hverfa frá herteknu svæðunum, en hefðu þó aðgang að Aqaba-flóa. Hins vegar hefur Simon Per- es landvarnaráðherra Israels nú sagt að þeir muni ekki þola það að sýrlenzkar eða palestínskar hersveitir væru Sífelldar skærur þjóða á milli í Miðausturlöndum hafa auð- vitað sett sitt mark á daglegt líf borgaranna. Hér má sjá einn þriggja skæruliða er skotinn var til bana í árás þeirra á Intercontinentalhótelið í Amm- an, höfuðborg Jórdaníu, nú fyrir helgina. við landamærin í Suður- Líbanon. Þorpið Nahariya, sem er um 10 km frá landa- mærunum varð fyrir eldflauga- árás í nótt, en samkvæmt heimildum Reuters- fréttastofunnar, urðu litlar skemmdir og manntjón ekkert. Patty Hearst bíður áfrýjunarniðurstöðu í lúxusumhverfi for- eldrahúsa, umkringd varðmönnum. Patricia Hearst laus úr fangelsi: Ætlar að fara í leikhús og fá sér varðhunda Patricia Hearst, sem látin var laus úr fangelsi fyrir helgina gegn tryggingu sagði í blaða- viðtali í San Francisco i gær, að nú þegar hún væri laus langaði sig til þess að fara á veitinga- hús, sjá leiksýningar og tefla skák við föður sinn sem hún kallaði eitt sinn svín. Patricia, sem er 22ja ára erfingi gífurlegra auðæfa blaðakóngsins Hearst og verið hefur dæmd fyrir bankarán, sem hún framdi eftir að henni var rænt af Symbionesíska frelsishernum fyrir þremiárum, ætlar ennfremur að fá sér varð- hund, annaðhvort doberman eð shephard. Ungfrú Hearst, sem verið hefur í fangelsi undantarna i'r mánuði, var látin laus, gegn 1.5 milljón dollara tryggingu og dvelst nú á heimili foreldra sinna, þar sem hafðar eru á henni stöðugar gætur. ,,Ef hún hleypur í burtu, fer ég með henni,“ sagði faðir hennar Randolph Hearst, er hann var spurður að því hvað gerðist í því tilfelli, með samkomulag hans við dómarann í huga. íbúar borgarinnar Darwin í Ástralíu: Hafa spilað um hjálparféð eða drukkið það út Borgarstjóri i borginni Dar- win í N-Ástralíu, en hún, gjöreyðilagðist í fellibyl á jóla- dag 1974, hefur sagt að mestum hluta af sjö milljón dollara hjálparsjóði, sem safnað var með alþjóðlegum framlögum, hefði annaðhvort verið eytt í spilum eða hreinlega drukkið út. „Ég veit að það er hart að heyra þetta, sérstaklega fyrir fólkið sem gaf peningana, en þetta eru staðreyndirnar,"' sagði Ella Stack borgarstjóri, sem er varaformaður sjóð- stjórnarinnar. Stack sagði að mikill hluti peninganna hefði verið greidd- ur beint til íbúa borgarinnar og að sumir hefðu alls ekki haft þörf fyrir þá. „Sumir sviku út fé, aðrir lugu til nafns,“ sagði borgarstjórinn ennfremur. TOYOTA SAUMAVELIN er óskadraumur konunnar. Toyota-saumavélin mest selda saumavélin ó ísiandi i dag TOYOTAvarahlutaumboðið h.f Ármúla 23, Reykjavík, sími 81733 r Einkaumboð ó Islandi

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.