Dagblaðið - 22.11.1976, Side 16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR22. NÖVEMBER 1976.
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Púðurskot, þar til Kenn-
edy tætti netmöskvana!
Arsenal stefndi i sinn fjórða
sigur á laugardag gegn Liver-
pool í fimm síðustu leikjum
liðanna. Aðeins tvær mínútur
til leiksloka og leikmenn Liver-
pool virtust búnir með allt sitt
púður eftir nær stanzlausar
sóknaraðgerðir allan síðari
hálfleikinn til þess að reyna að
jafna mark George Armstrong
frá níundu mínútu. Leikmenn
Lundúnaliðsins voru farnir að
sækja á ný og þá skeði það.
Frank Stapleton, miðherji
Arsenal, missti knöttinn heldur
klaufalega til Ray Kennedy,
leikmannsins, sem áður fyrr
var með sömu tölu á skyrtu
sinni I Arsenal-liðinu og Staple-
ton nú. Kennedy gaf knöttinn
og geystist sjálfur upp völlinn.
Fékk knöttinn aftur og ein-
hverja aukahleðslu átti hann
eftir — sveiflaði vinstri fætin-
um og knötturinn flaug í átt að
marki Arsenal. Hafnaði i net-
möskvunum án þess hinn
snjalli markvörður Arsenal,
Jimmy Rimmer, kæmi við
nokkrum vörnum. Hörkuskot
— ekki púðurskot eins og hent
hafði leikmenn Liverpool fyrr i
leiknum. Þar hafði komið fram
veikleiki enskra nú. Skorturinn
á miklum markaskorara. Liver-
pool hafði fengið næg tækifæri
til að jafna.
Leikurinn bauð upp á allt
það bezta I enskri knattspyrnu
— nema mikið af mörkum. Til
þess voru tækifærin og 17
íandsliðsmenn á vellinum. En
markvarzla þeirra Rimmer og
Clemence var lika snjöll.
Clemence var bókaður f leikn-
um, nokkuð, sem sjaldan
kemur fyrir markverði. Dæmt
var á hann fyrir skref — síðar
þegar hann greip knöttinn utan
vítateigs. Það var meir en
markvörður Liverpool og Eng-
lands þoldi. Hann reifst við
dómarann.
Arsenal byrjaði vel í leiknum
til mikillar gleði fyrir flesta
hina rúmlega 45 þúsund áhorf-
endur — bezta aðsókn Arsenal í
haust. Á níundu mín. skoraði
liðið. Sammy Nelson, bak-
vörður, lék upp vinstri kantinn
og gaf vel á George Armstrong
og aldrei þessu vant var vörn
Liverpool víðs fjarri. George
skoraði örugglega hjá
Clemence. Annað mark hans á
leiktímabilinu — þessa leik-
manns, sem verið hefur hjá
Arsenal i 16 ár, en vill nú fara
frá félaginu.
Lið Liverpool náði sér ekki á
strik í fyrri hálfleiknum, þó það
léki undan góðum vindi. Merki-
legt, að breyting var gerð á
Liverpool-liðinu frá 5-1 sigrin-
um gegn Leicester. McDermott
kom á ný í liðið — eftir meiðsli
— en Jimmy Case var settur út.
1 síðari hálfeliknum snerist
blaðið við og þá höi'ðu varnar-
menn Arsenal nóg að gera.
Liverpool fékk hornspyrnu eftir
hornspyrnu — og úr einni
þeirra skallaði John Toshack
knöttinn í mark Arsenal.
Fögnuður hans var skamm-
vinnur, því á sama tíma og
hann skoraði féll Peter Simp-
son í völlinn, og dómarinn
dæmdi á stundinni aukaspyrnu
á Liverpool. Ekki voru leik-
menn liðsins ánægðir með það.
Helmingur þeirra elti dómar-
inn og vildi fá hann til að
breyta ákvörðun sinni. Undir
lokin fór leikur Liverpool að
dofna og Arsenal-liðið komst
meira í spilið, en þá skeði at-
vikið, sem fyrst er lýst. Liver-
pool jafnaði og hefur því hlotið
tvö stig í síðustu fimm leikjun-
um við Arsenal — náð tveimur
jafnteflum. Tapað þrisvar. Já,
Lundúnaliðið hefur verið
ensku meisturunum erfitt.
En lítum á úrslitin áður en
lengra er haldið.
Frank Worthington, Leicester, skorar hjá Manch. Utd. fyrr á árinu, en honum tókst það ekki á
laugardag, þrátt fyrir góð tækifæri.
1. deild
Arsenal — Liverpool 1-1
Aston Villa — Coventry 2-2
Bristol C. — Norwich 3-1
Everton — Derby 2-0
Ipswich — Leeds 1-1
Leicester — Manch. Utd. 1-1
Manch. City — WBA 1-0
QPR — Middlesbro 3-0
Stoke — Birmingham 1-0
Sunderiand — Tottenham 2-1
West Ham — Newcastle 1-2
2. deild
Burnley — Bristol Rov. 1-1
Carlisle — Millvall 0-1
Charlton — Blackpool 1-2
Fulham — Notts Co. 1-5
Hereford — Oldham 0-0
Hull — Plymouth 3-1
Luton — Cardiff 2-1
Nottm. For. — Chelsea 1-1
Sheff. Utd. — Orient 1-1
Southampton — Bolton 1-3
Wolves — Blackburn 1-2
Þó Liverpool tapaði stigi í
Lundúnum — fyrsti leikur
liðsins í heimsborginni á þessu
leiktímabili — hefur það enn
fimm stiga forustu í 1. deild,
þar sem bæði Ipswich og Aston
Villa töpuðu stigi á heimavelli á
laugardag. Dómarar höfðu nóg
að gera í leikjunum. Alls voru
níu leikmenn látnir víkja af
velli í deild og bikar, þar af þrír
í 1. deild. Stan Bowles hjá QPR,
Mike Pejic hjá Stoke, og John
Beck hjá Coventry. Mikil læti
urðu i Nottingham í leik Forest
og Chelsea. Stöðva varð leikinn
það til marka. Leikurinn var
stórgóður. Svo loks á 50. mín.
tókst Leeds að skora. Lorimer
tók aukaspyrnu. Gaf á Eddie
Gray og hann sendi á mið-
vörðinn sterka, Gordon
McQueen, sem skallaði í mark.
Þá vaknaði Ipswich-liðið til
dáða, en markvörður Leeds,
Harway, var því erfiður. Varði
snilldarlega, en réð þó ekki við
skot Brian Talbot — eftir að
Trevor Whymark hafði leikið
hann frían — á 75. mín. Þar við
sat. Fleiri urðu ekki mörkin og
jafntefli réttlát úrslit. Bæði
liðin hafa sótt mjög á siðustu
vikurnar.
Aston Villa lék við Coventry
og setti John Burridge úr mark-
inu i fyrsta skipti síðan hann
var keyptur frá Blackpool.
John Findley kom í hans stað.
Bakvörðurinn John Gidman
náði forustu fyrir Villa á 30.
mín., en það stóð ekki lengi.
Átta mínútum síðar stóð 2-1
fyrir Coventry. Mike Ferguson
skoraði tvívegis. I síðari hálf-
leiknum jafnaði Andy Gray
fyrir Villa — 16. mark hans i
haust — en liðinu tókst ekki að
knýja fram sigur, þó svo John
Beck væri rekinn af velli 12
mín. fyrir leikslok. Sama skeði í
leik Stoke og Birmingham.
Mike Pejic, bakvörður Stoke,
rekinn af velli. Samt sigraði
Stoke. Garth Crooks skoraði
eina mark leiksins í síðari hálf-
leik. Birmingham fékk gott
heimaliðið lengi vel. Ian
Moores skoraði strax á 3ju min.
fyrir Tottenham og þannig stóð
þar til langt var liðið á leikinn.
Pat Jennings, markvörður
Tottenham, varði frábærlega
en á 76. mín. tókst honum ekki
að koma I veg fyrir jöfnunar-
mark Ray Train. Fjórum mín-
útum síðar skoraði Bob Lee
sigurmark Sunderland eftir
sendingu frá Billy Hughes. Frá-
bært mark. Sunderland var
betra liðið, en þó má segja, að
Tottenham-liðið hafi verið
óheppið, þegar Alfie Conn
spyrnti á mark. Knötturinn fór
í báðar stangir, en hrökk út
aftur. Þekktasti leikmaður
Sunderland — enski landsliðs-
maðurinn Tony Towers var
varamaður í leiknum.
David Cross lék sinn fyrsta
leik með WBA gegn Manch.
City á Maine Road, en komst
lítið áleiðis gegn miðvörðunum
sterku hjá City, Doyle og
Watson. Báðir enskir landsliðs-
menn. Dennis Tueart skorði
eina mark leiksins á 10. mín.
með þrumufleyg af 25 metra
færi og með góðum framvarða-
leik Asa Hartford og Jim Con-
way réð City að mestu gangi
leiksins. WBA átti þó sín færi
— en Joe Corrigan var hreint
frábær í marki Manch. City.
Hitt Manchester-liðið var
heppið að ná stigi i Leicester.
Jeff Blockley lék á ný eftir
meiðsli í Leicester-liðinu og
— og Liverpool náði jafntefli gegn Arsenal.
Hefur enn fimm stiga forustu í 1. deild. Leeds
náði jafntefli í Ipswich
í fimm mínútur meðan lögregl-
an kom áhorfendum, sem
þyrpst höfðu niður á völlinn, á
brott. Allt logaði í slagsmálum.
Níu voru fluttir á spítala og 27
handteknir strax. Mun fleiri
eftir leikinn. Jafntefli varð 1-1.
O’Neil skoraði fyrir Forest á 34.
mín. en Britton jafnaði fimm
mín. siðar fyrir Chelsea.
En snúum okkur að 1. deild á
ný. Ipswich lækkaði flugið eftir
sex sigurleiki i röð. Tókst ekki
að sigra Leeds á Portman Poad,
en þar lék Poul Reeney sinn
700. leik með Leeds. Yorkshire-
liðið hafði yfirhöndina í fyrri
hálfleik, en tókst ekki að nýta
tækifæri til að jafna, en Trevor
Francis misnotaði vítaspyrnu.
QPR lék Middlesbro sundur
og saman í síðari hálfleik og
skoraði þá þrívegis. Fyrst Don
Givens úr vítaspyrnu — síðan
Don Masson og Stan Bowles
rétt fyrir leikslok. Hann var
síðan rekinn af velli fyrir gróft
brot á Willie Maddren, hinn
sterka miðvörð Middlesbro.
Dómarinn frægi, Reynolds,
hafði nóg að gera. Bókaði fjóra
aðra leikmenn.
Sunderland vann sinn fyrsta
heimasigur — í leik „botnlið-
anna“ Sundarland og Totten-
ham. Þó leit ekki vel út fvrir
styrkti vörnina mjög — og
Jimmy Greenhoff var með í
fyrsta sinn hjá United eftir söl-
una frá Stoke. 120 þúsund
sterlingspund. Leicester-liðið
með Weller, Worthington,
Garland og Sammels frábæra i
fyrri hálfleik sótti mjög. Þó
skoraði liðið aðeins eitt mark —
Chris Garland á 9. mín. eftir að
Keith Weller hafði leikið á
. hinn unga bakvörð, Arthur
Albiston, og gefið á Garland. 1
síðari hálfleik lagaðist leikur
Manch. Utd. og sex mínútum
fyrir leikslok tókst Gerr.v Dalv
að jafna úr vitaspyrnu. sem
mörgum þótti vafasöm. Martin
Buchan átti að leika með
United, en komst ekki gegnum
læknisskoðun á síðustu stundu.
En við verðum nú víst að fara
fljótt yfir sögu. Enn tapar West
Ham og er í neðsta sæti. Geoff
Nulty skoraði fyrsta mark leiks-
ins fyrir Newcastle. Pob
Robson jafnaði, en það nægði
WH ekki. Mickey Burns skoraði
sigurmark Newcastle í síðari
hálfleik. Bristol City vann sinn
annan sigur í röð og komst af
mésta hættusvæðinu. Peter
Cormack skoraði eitt af mörk-
um liðsins í 3-1 sigrinum gegn
Norwich. Hins vegar gengur
lítið hjá Derby. Enn tap — nú í
Liverpool, þar sem Andy King
skoraði fyrra mark Everton.
í 2. deild kom tap Ulfanna á
heimavelli mest á óvart og það
virðist ekki ætla að verða eins
létt fyrir Ulfana að komast
aftur í 1. deild og í fyrstu var
talið. Byron skoraði bæði mörk
Blackburn í Wolverhampton.
Chelsea hefur þriggja stiga for-
skot á Lancashire-liðin frægu,
Blackpool og Bolton, sem bæði
unnu athyglisverða útisigra í
Lundúnum og Southampton, og
er sex stigum á undan þeim
liðurri, sem eru í 4.—6. sæti.
Southampton hafði mark yfir
gegn Bolton eftir fyrri hálfleik-
inn, en i þeim siðari skoraði
Bolton þrívegis. Blackpool
skoraði tvívegis í fyrri hálfleik
gegn Charlton.
Allt gengur á afturfótunum
hjá Fulham. — Áhorfendum
fækkar mjög og á laugardag
tapaði liðið mjög illa á heima-
velli gegn Notts County. Bobby
Moore átti afleitan leik í vörn
Fulham og gaf Nottingham-
liðinu tvö mörk. Stjórnar-
fundur var hjá Fulham á föstu-
dagskvöld. Engar fréttir hafa
borizt af fundinum nema hvað
þar var rætt um kappana frægu
Best, Marsh og Moore og fram-
tíð þeirra hjá félaginu. Það er
ekki sama hrifning hjá
stjornarmönnunum og var,
þegar þeir byrjuðu að leika
með félaginu.
Staðan er nú þannig:
Liverpool 15 : 10 3 2 26-10 23
Ipswich 13 7 4 2 26-14 18
Aston V. 15 8 2 5 30-19 18
Man.City 14 6 6 2 18-11 18
Newcastle 14 6 6 2 20-14 18
Leicester 16 4 9 3 16-17 17
Everton 14 6 4 4 24-19 16
Leeds 15 5 6 4 20-18 16
Stoke 15 6 4 5 12-14 16
Arsenal 14 6 3 5 24-22 15
Coventry 14 5 5 4 18-16 15
Middlesbr 14 6 3 5 9-13 15
Man.Utd. 14 4 6 4 23-22 14
Birm’ham 15 6 2 7 20-20 14
QPR 15 5 4 6 20-21 14
WBA 15 5 4 6 20-21 14
Bristol C. 15 4 4 7 14-17 12
Norwich 16 4 4 8 15-24 12
Derby 13 2 6 5 18-20 10
Sunderl. 14 2 5 7 12-21 9
Tottenn. 15 3 3 9 18-3* 9
West Ham 15 2 3 10 15-31 7
2. deild Chelsea 15 10 3 2 27-19 23
Blackpool 16 8 4 4 26-18 20
Bolton 15 9 2 4 27-19 20
Nott.For. 15 6 5 4 31-19 17
Wolves 15 6 5 4 33-20 17
Oldham 15 6 5 4 21-19 17
MiIIvalI 14 7 2 5 24-18 16
Charlton 15 6 4 5 32-30 16
Notts Co. 15 7 2 6 24-24 16
Blackburn 15 7 2 6 17-18 16
Hull 14 5 5 4 19-16 15
Sheff.Utd. 15 4 7 4 18-20 15
Fulham 15 4 6 5 20-23 14
Luton 15 6 2 7 23-26 14
Bristol R. 15 4 5 6 18-21 13
Burnley 15 4 5 6 20-24 13
Cardiff 15 5 3 7 21-25 13
Plymouth 15 3 6 6 22-25 12
South’ton 15 4 4 7 24-29 12
Hereford 15 3 4 8 21-34 10
Carlisle 16 3 4 9 17-33 10
Orient 13 2 5 6 12-17 9