Dagblaðið - 25.11.1976, Side 15
DAC.BLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1976.
Börnin eru alveg „vitlaus” í
gerilmjólkina
„Eg er með þrjú lítil börn og
þau eru alveg vitlaus í geril-
mjólkina, og við hjónin raunar
einnig,“ sagði Rakel Benja-
mínsdóttir sem hringdi til
okkar frá Keflavík.
„Ég er búin að eiga minn
geril frá því snemma í vor að ég
fékk hann frá vinkonu minni
og mér hefur tekizt vel með-
framleiðsluna á gerilmjólkinni.
Eg er búin að gefa mörgum
vinum og kunningjum af
honum og veit ekki betur en að
hann hafi alls staðar dafnað
vel.
Mér fannst ekki alveg nógu
góðar leiðbeiningar um með-
ferðina hjá ykkur i greininni
segir húsmóðir í Keflavík sem
hefur notað hana síðan í vor
um daginn. Eg gat ekki betur
séð en gerillinn sem var í sigt-
inu væri alltof stór, það þarf
ekki nema svona tvær mat-
skeiðar út í einn lítra af mjólk
Ef það er of mikið af gerlinum
verður mjólkin alltof súr.“
— Hve oft má skipta gerlin-
um?
„Ef það er góð gróska í
honum má skipta honum einu
sinni í viku. Ég hef meira að
segja geymt hann í frystikist-
unni. Ég skola hann þá vand-
lega úr volgu vatni, læt hann
síðan í plastpoka. Eg hef geymt
hann þar í heilan mánuð. Þegar
gerillinn er vakinn upp aftur á
að hafa mjólkina kalda, þ.e.
beint úr ísskápnum. Þannig er
hann síðan látinn standa á eld-
húsborðinu í eina 30-40 klukku-
tíma áður en mjólkin er orðin
neyzluhæf á nýjan leik.
— Hvernig borðið þið geril-
mjólkina?
„Okkur þykir mjög gott að
hafa berjasaft út á hana.
Stundum blöndum við einnig
öðrum ávöxtum út í, allt eftir
því hvað er við hendina. Svo
nota ég líka gerilmjólk í salöt.“
— Hvað drekkið þið mikið á
dag?
„Ég hef vanalega 3 potta af
mjólk í gangi í einu. — Ég hef
ekki orðið vör við að við fitn-
uðum neitt af þessum ágæta
drykk. Nú er ég að reyna aðra
framleiðslu og það er að búa til
jógúrt úr jógúrt. Eg kaupi
lítinn bikar af venju-
legu jógúrt og læt út í
einn pott af mjólk. Ég
byrja með kalda mjólkina áð
kvöldi og jógúrtin er tilbúin til
neyzlu næsta morgun. Þá sigta
ég jógúrtina, skil smávegis
eftir, velgi nýmjólk og helli
yfir. —
Þetta virðist ganga vel, en ég
hef ekki gert þetta nema í
nokkra daga,“ sagði Rakel
Benjamínsdóttir.
A.Bj.
15
N
Rakei telur að gerillinn
„okkar“ sé heidur stór en við
erum líka búin að skipta
honum og deila út á meðal les-
enda okkar.
DB-mynd Bjarnleifur.
/S
Svanir skemmta sér í bátsferð
Það er ýmislegt sem gerist í
hinum stóra heimi. Meðal annars
það að svanir fljúga ekki alitaf
þangað sem þeim er ætlaður
dvalarstaður á vetrum heldur fá
þeir fría bátsferð.
Hvað um það. Þeim virðist
ekkert mislika þessum svönum og
vonandi er bátsferðin’það stutt að
þeir verði ekki hið minnsta sjó-
veikir. Nánar tiltekið er myndin
tekin á Aister vatninu í Hamborg.
„Albino” broddgöltur — með rautt nef
Það er betra að broddgeltir séu
vinir manns, að minnsta kosti
þegar komið er við hann eins og
gert er hér. Annars va-ri haMta á
að stinga sig all óþyrmilega. Þessi
broddgöltur er raunar alveg sér-
sta“ður þvi að liann er „albino"
(litlaus eða hvítleitur), þar að
auki er nefið á honum rautt og
líka e.vrun.
Það voru nokkrir göngugarpar
sem fundu hann í (ioettingen i
Þýzkalandi og eftir að hafa farið í
„viðtal** við nokkra dýralækna í
einum af háskóiunum þar fékk
hann nýtt heimilisfang og býr nú
í dýragarðinum i Hannover.
Ekki afkomendur
Gúllívers í Putalandi
Ungmennin sem standa uppi á stólnum þeim arna eru alls ekki
afkomendur Gúllívers í Puttalandi. Þau eru af eðlilegri stærð. Það er
stóilinn sem er af stærri gerðinni.
Hann var smíðaður til þess að vekja athygli á happdrætti sem er í
gangi í Paderborn í V-Þýzkalandi.
Stóllinn er sex metrar á hæð og vegur eitt tonn.
Karlmanns-
hjörtu
slá hraðar
Cindy Brealtspeare, fröken
Jamaica, fær víst hvert kari-
mannshjarta til að siá hraðar
enda fegurð hennar viðurkennd
um víða veröld. Hún sigraði i
fegurðarsamkeppni heimsins
f.vrir nokkru. Lokakeppnin för
fram í London og gekk mikið á
vegna „apartheit** stefnu Suður-
Afríku. Lá við að ekkert vrði úr
lokasprett inuni þvi aö margar
stúlkur hættu við — en sem sagt.
af henni varö og þess vegna fá
menn að líta augum failegustu
stúlku heinisins í ár.