Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 23
DAl’.BLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. NOVEMBER 1976. Útvarp í kvöld kl. 20,15: Leikrit vikunnar Kynþáttavandamálið verður ekki að verulegu vandamáli fyrr en það snertir mann sjálfan persónulega Leikritið sem er á dagskrá útvarpsins I kvöld kl. 20.50 heit- ir Djúpt liggja rætur og er eftir Arnaud d'Usseau og James Gow. Tómas Guðmundsson þýddi leikinn og leikstjóri er Þorsteinn Ö. Stephensen. Þetta leikrit var áður flutt í útvarp- inu 1960. Leikfélag Reykjavík- ur sýndi þetta leikrit árið 1952 í Iðnó. Með aðalhlutverkin fara þau Brynjólfur Jóhannesson og Helga Valtýsdóttir. sem nú eru bæði látin, auk þess Rúrik Haraldsson, Kristin Anna Þórarinsdóttir og Helgi Skúla-- son. Með minni hlutverk fara Róbert Arnfinnsson, Arndís Björnsdóttir, Steinunn Bjarna- dóttir, Jón Aðils og Jónas Jónasson. Þetta leikrit fjallar að miklu leyti um kynþáttavandamálið og gerist á heimili öldunga- deildarþingmanns í Suður- ríkjum Bandaríkjanna. Fólk sem þarna kemur við sögu hefur látið sem vandamál þetta komi því ekki við en það er sk.vndilega neitt til þess að taka afstöðu til málsins. Slíkt getur stundum reynzt erfitt. Ekki tekur betra við þegar vandamálið teygir arma sína inn í eigin fjölskyldu. Höfundarnir eru báðir bandarískir. D’Usseau er fæddur í Los Angels árið 1916 og var blaðamaður framan af ævi sinnir. Síðar fór hann til Hollywood og tók að skrifa kvikmyndahandrit. James Gow var fæddur 1907 en hann lézt árið 1952. Djúpt liggja rætur kom fyrst út 1945. -A.Bj. Leikritið sem flutt verður í útvarpinu í kvöld heitir Djúpt iiggja rætur og var áður á dagskrá útvarpsins árið 1960. Af þeim Jeikendum semþar koma fram eru þrír látnir, þau Brynjólfur Jóhannesson, Heiga Valtýsdóttir og Arndís Björnsdóttir. Útvarpið í dag kl. 16,40: MLestur úr nýjum barnabókum" ,,Lestur úr nýjum barnabók- um" heitir þáttur sem nú er að byrja fyrir jólin og er umsjón- armaður Gunnvör Braga en kynnir er Sigrún Sigurðar- dóttir. t fyrsta lagi verður lesið úr Nancy og rauðu ballettskónum eftir Carolyn Keene í þýðingu Gunnars Sigurbjörnssonar. Ut- gefandi er Leiftur en lesari er Helga Stephensen leikkona. Síðan les Baldvin Halldórsson leikari úr Robinson Cruso eftir Daniel Defoe. Jane Carruth hefur endursagt en þýðingu annaðist Andrés Kristjánsson. Útgefandi er Örn og Örlygur. Drífa Steinþórsdóttir les upp úr bók er nefnist GT- kappaksturinn eftir Eric Speed. Arngrímur Thorlacius þýddi en útgefandi er Leiftur. Það er ekki aðeins um bóka- kynningu að ræða í þættinum því kynnt verður plata þeirra Björgvins Halldórssonar og félaga, Vlsur úr vísnabókinni, sem Iðunn hefur nýlega gefið út. -EVÍ. Gunnvör Braga dagskrár- fulltrúi fyrir barna- og unglingacfni hefur umsjón með þaútinum „Lestur úr nýj- um harnahókum". 'VESTMANNAEYJAR------ Símanúmer umboðsins í Vestmannaeyjum er 98-1343 «Dagblaðiö■ Allar stærðir snjóhjólbarða Ótrúleg ending Póstsendum Gúmmíviðgerðin Keflavík Michelin-umboðið Sími 92-1713 og 92-3488 Kópavogsbúar Leitið ekki langt yfir skammt. Allar nýlenduvörur með 10% lægri álagningu en heimilt er. M jög ódýr egg, kr. 380,- kg Við erum í leiðinni að heiman og heim. VERZLUNIN KÓPAVOGUR Borgarholtsbraut 6 — Sími 41640

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.