Dagblaðið - 25.11.1976, Blaðsíða 24
HÆTTA A FRIMERKJA-
SKORTIIJOLAOSINNI
fxjálst, úhád daghlað
FIMMTUDAGUR 25. NÖV 197.6.
Verður þá að leysa vandann með tveim
merkjum á hvert bréf í stað eins
Austfirðingar
fá nóg
af rjúpu
— í jólamatinn
Það er ekki nokkur hætta á þvi
að Austfirðingar fái ekki rjúpur i
jólamatinn í ár. Rjúpnaveiði hér á
Eskifirði hefur verið allsæmileg
þrátt fyrir snjóleysið. Ég hef þeg-
ar keypt rjúpur sjálf á 350 kr.
stykkið. Rjúpan er snjóhvit og
sézt þvi vel, en þess ber að gæta i
svona tið að langt er að sækja
hana.
Fyrsti snjórinn hér á þessu
góða veðri i haust og í vetur féll
snemma í vikunni og menn fóru á
kaf upp í ökkla. Nú er hann
bráðnaður og kominn 6 stiga hiti.
Regfna.
Hætt er við að komið geti til
erfiðleika einhvers staðar með
frímerkingu jólapóstsins. Hið
almenna gjald fyrir bréf innan-
landsog bréf til Norðurlanda
er 35 krónur. Aðeins eitt 35 kr.
merki er nú í umferð. Það
er merki sem gefið var út í
tilefni 200 ára afmælis
póstþjónustunnar. Kom það út.í
september og upplagið var hálf
önnur milljón. Þessu merki er
ætla að duga fram yfir jól og
fram á næsta ár, því næsta
útgáfa frímerkja mun ekki
koma fyrr en í febrúar.
í maí kom út Evrópumerki
sem var 35 kr. að verðmæti.
Upplagið var milljón og dugði
það í 2 mánuði.
í fyrra var 35 króna
skógræktarmerki gefið út í
nóvember i einnar milljónar
upplagi. Það dugði á
pósthúsunum en var uppselt
fyrir jól frá frímerkjasölu
Pósts og síma.
Bjarni Sigurðsson birgða-
vörður sagði í viðtali við DB
i morgun,að það væri vissulega
hugsanlegt að birgðir mundi
þrjóta hjá Frímerkjasölunni.
Hann kvaðst þó álíta að pósthús
um allt land hefðu nú þegar
þær birgðir sem nægja mundu
SUMAR-
HITI A
AKUR-
EYRI í
GÆR-
KVÖLDI
— engar
verulegar
breytingar
íaösigi
Hitinn fór upp 1 10 til 11
stig á Akureyri í gærkvöldi
og var þar nánast sumar-
veður. Klukkan sex i
morgun mældist svo sex
stiga hiti á Dalatanga en þar
mældist mestur hiti þá.
Að sögn Páls Bergþórs-
sonar í morgun fer veðrið nú
hægt kólnandi en ekki eru
verulegar bre.vtingar f.vrir-
sjáanlegar.
Er hann var spurður hvort
þetta væri ekki eitt bezta
haust sem hann myndi í
langan tima. sagðist Páll
vfirleitt muna lítið unt veður
til að gera samanburði svona
fyrirvaralaust. en haustið
væ*ri gott.
G.S.
til að brúa bilið fram að næstu
frímerkjaútgáfu.
En fari svo að birgðir þrjóti á
ekki að koma til neinna vand-
ræða sagði Bjarni „Við höf-
um gnægð merkja á 30 kr og
einnig 5 króna merki. Þá er
bæði til nóg af 15 kr. merkjum
og 20 króna. Erfiðleikarnir, ef
einhverjir verða, leysast þá
með notkun tveggja frímerkja i
stað eins.“
Bjarni sagði að aðalfrímerkið
í desember yrði 30 kr. merki
sem nægði á allan venjulegan
jólapóst. Af því væri nóg til.
Bjarni vissi ekki hvaða
verðgilcji yrðu á næstu útéafu
eða hvort það væri endanlega
ákveðið. „Verðbólgan er svo ör
að í raun er komið að hækkun
burðargjalda um svipað leyti og
ný merki koma út.“
-ASt.
„Nýja bylgjan” á
Laufásveginum
„Nýja bylgjan" er
aðaluppistaðan í fyrirlestri
Gérard Lemarquis um franska
kvikmyndagerð frá upphafi fr*n
á okkar tíma í Franska bókasafn-
inu, Laufásvegi 12 í kvöld kl.
20.30.
Gérard mun halda fyrirlestur
sinn á íslenzku, svo að allir þeir,
sem hafa áhuga á kvikmynda-
gerðarlist munu geta haft gagn af
þvi sem fram fer, auk þess, sem
hann mun sýna kafla úr mörgum
kvikmyndum til skýringa.
Fyrirlestur þessi er á vegum
Alliance Francaise, en sú ný-
breytni hefur verið tekin upp hjá
félaginu að hafa kvik-
myndasýningar, fyrirlestra eða
bókmennta-, lista- og skemmtidag-
skrár í Franska bókasafninu að
Laufásvegi 12, a.m.k.þrjá þriðju-
daga í hverjum mánuði.
-HP.
DB-m.vnd Sv. Þ.
Hettumávurinn:
Dæmigerður bæjarfugl
„Hettumávurinn er dæmi-
gerður bæjarfugl og mesti
ágætisfugl í alla staði og gerir
engum mein, nema hvað að
hann er náttúrlega í samkeppni
við aðra fugla á tjörninni um
æti,“ sagði Arnþór Garðarsson
og mesti ágætisfugl
fuglafræðingur í morgun er DB
hugðist forvitnast um þessa
fuglategund sem nú er krökkt
af á tjörninni í Reykjavík.
Eitthvað mun hettumávur-
inn hafa reynt til að verpa í
tjarnarhólmanum. en við
honum hefur verið stuggað, því
menn vilja ógjarnan missa
kríuna þaðan. Ekki mun önd-
unum hafa fækkað neitt við til-
komu hettumávsins svo allt
fuglalíf ætti að vera í mesta
jafnvægi á tjörninni.
Hið eina sem kvarta má
undan hettumávinum er að
hann' er mjög hávaðasamur en
enn hefur ekki spurzt að það
hafi raskað ró íbúanna í kring.
né að þeir hafi kvartað undan
öðru ónæði hans vegna. JB
FLENSBORGARAR
HEIMTA ELDVARNIR
Nemendur Flensborgarskóla í
Hafnarfirði hafa fordæmt að-
gerðaleysi það er þeir telja að sé á
brunavörnum skólans. Telja þeir
að brunahættan sé mikil fyrir
hendi innan veggja skólans.
Krefjast nemendur þess að nú
þegar verði hafizt handa um ról-
tækar aðgerðir af hálfu skólans í
brunavörnum hans.
Fundur nemenda um þetta inál
hefur krafizl þess að strax verði
samin eldvarnaáætlun fyrir skól-
ann og hún síðan kynnt nemend-
um sem og öðrum starfshópum
innan skólans.
„Nemendur Flensborgarskóla
hafa einnig ákveðið, að hafi þeir
ekki orðið varir við nein viðbrögð
af hálfu skólastjórnar þessu við-
hlitandi innan einnar viku frá
samþykktinni, muni þeir gripa til
annarra aðgerða máli sínu til
áréttingar," segir í frétt frá nem-
endum skölans.
Hvað býður
Gundelach?
Væntanlega mun Olav Gunde-
lach opna töskur sínar og
opinbera innihaldið f.vrir
utanríkis- og sjávarútvegs-
ráðherra á fundi með þeim i
dag, en við komuna í gær
varðist hann allra frétta nema
hvað hann itrekaði að hann
kæmi hingað sem samninga-
maður Efnahagsbandalagsins
alls. en ekki Breta sérstaklega.
DB-mynd Sveinn Þorm.
Gundelaeh stigur ut ur einka-
þotu sinni á Reykjavíkurflug-
velli i ga>r. DB-mvnd Sv. Þorm.
JBP