Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 10

Dagblaðið - 03.12.1976, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1976. frjálst,áháð dagblað Utgefandi Dagblaðiö hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. AÖstoöarfróttastjóri: Atli Steinarsson. íþróttir: Hallur Símonarson. Hönnun: Jóhannes Reykdaí. Handrit: Ásgrímur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson. Erna V. Ingóifsdóttir, Gissur Sigurösson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson. Jóhanna Birgisdóttir. Katrín Pálsdóttir, Kristín Lýðsdóttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Ámi Póll Jóhannsson, Bjarnleifur Bjamleifsson, Sveinn Þormóösson. Gjaldkeri: Þróinn Þorloifsson. Dreifingarstjórí: Már E.M. Halldórsson. Áskriftargjald 1100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 60 ‘kr. ointakiö. Ritstjóm Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskríftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerö: Hilmir hf., Síöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Lexía ASÍ-þings Geir Hallgrímsson forsætisráð- herra var um það spurður á einum kjördæmisfundi sínum, hvernig verkamaður með 60—70 þúsund króna mánaðarlaun færi að því að lifa. Forsætisráðherrann svaraði sem svo, að það hefði aldrei verið unnt að sýna fram á það í reikningi á pappírn- um, að menn gætu komizt af með lægstu Dags- brúnarlaun. Það væri heldur ekki hægt nú. „Alþingismenn og uppgjafabankastjóri“, þannig var lýsing einnar verkakonu, sem til máls tók á Alþýðusambandsþingi, á forystu Alþýðusambandsins. Hún sagði, að svo mikil væri óánægja verkafólks almennt með frammi- stöðu forystu ASÍ í kjaramálum, að forystu- mennirnir mundu ekki ná kosningu, ef almenn- ingur á vinnustöðunum kysi. Staðreynd er, að verkamenn á almennasta Dagsbrúnarkaupi ná ekki nema helmingnum af því, sem vísitölufjölskyldunni er ætlað að verja til útgjalda sinna samkvæmt vísitölu fram- færslukostnaðar. Sumir hagfræðingar mundu að vísu segja, að sá vísitölureikningur segði ekki til um, hvað menn þyrftu minnst að bera úr býtum til að framfleyta meðalstórri fjöl- skyldu. Sannleikurinn er engu að síður, að sá vísitölugrundvöllur, sem kominnertil ára sinna en enn er byggt á, gefur hugmynd um, hvað meðalfjölskyldan þurfi að hafa til að mæta útgjöldum við það, sem kalla mætti mannsæm- andi skilyrði árið 1976. Það gefur ömurlega mynd af þjóðfélaginu, þegar Dagsbrúnarmenn og fjöldi annars launafólks er ekki nema hálf- drættingar í tekjum miðað við þessa vísitölu. Ennfremur sýnir samanburður við ná- grannalöndin, að launþegar hér eru hálfdrætt- ingar í tekjum miðað við launþega í hinum löndunum. Á Alþýðusambandsþinginu kom fram, að kaupmáttur launa hefði rýrnað um þrettán af hundraði, síðan síðasta þing sambandsins stóð fyrir f jórum árum. Þing Alþýðusambandsins nú einkenndist af upphlaupi þeirra, sem um sárast eiga að binda í kjaraskerðingunni. Árum saman hefur þetta fólk horft á, að það hefur verið sett hjá við skiptingu kökunnar. Ýmsir forystumenn upp- mælingahópanna innan verkalýðssamtakanna hafa leikið þann leik að halda annaðhvort lága kaupinu niðri með málamyndauppbótum eða beinlínis ryðjast fram og taka, jafnvel í pró- sentum reiknað, miklu meiri kauphækkun en láglaunafólkið fékk. Nú sauð upp úr, einmitt vegna þess, hversu kjaraskerðingin hefur verið mikil að undanförnu. Mikill þorri félaga í Alþýðusamtökunum til- heyrir hópi láglaunamanna. Hinir hærra laur- uöu höfðu hins vegar komið sér vel fyririnnan samtakanna. Alþýðusambandsþingið hefur verið þörf lexía fyrir stjórnendur þess í nánustu framtíð. Þeim á að vera ljóst, að raddir aimenns verka- fólks verða háværari innan samtakanna. Fólkið mun fylgjast betur með en áður í næstu kjarasamningum og ekki sætta sig við hlutverk fórnardýra, sem notuð séu til verk- falls til að knýja fram kjarabætur handa hinum betur settu. r SÆNSKA LÖGREGLAN K0M í VEG FYRIR SPRENGJUTILRÆÐI í KJARNORKUVERI Baráttan gegn kjarn- orkuverum í Svíþjóð tók á sig nýja og alvarlegri mynd um síðustu helgi er sænska lögreglan fann dynamíthleðslu um 25 kíló alls ínágrenni kjarn- orkustöðvarinnar við Ringhals, skammt sunnan við Gautaborg. Sprengjuhleðslunni hafði verið komið fyrir utan við V_i__-___ girðinguna, er girðir kjarn- orkuverið af frá umheiminum. Þetta er í fyrsta skipti, sem svo alvarleg meðuí eru notuð til þess að berjast gegn kjarn- orkuverunum þar í landi. Kjarnorkuverin voru eitt helzta mál kosningabaráttunnar nú fyrir skömmu. Sænska lögreglan komst á sporið um tilvist sprengíefnis- ins, er sendisveinn á Gauta- borgardagblaðinu „Göteborgs- Tidningen" fann umslag á laug- ardagsmorguninn í póstkassa blaðsáns. í umslaginu var hluti af dýnamittúbu og hótunar- bréf. I bréfinu stóð, að komið-hefði verið fyrir sprengiefnishleðslu /■ Hvaö eru fjár- málatengsl? — Hvað eru mútur? Mannlífsins morgunblöð rumska oftast seint en stundum rumska þau samt. Slíkt gerðist fyrir hálfum mánuði þegar þrír blaðamenn Morgunblaðsins ís- lenzka tóku saman myndar- legan greinaflokk um Klúbb- málið svokallaða, sögu þess og ýmsar hliðar. Ég hygg að ýmsir, sem áður voru á báðum áttum um eðli þessa máls hafi látið segjast. í þessum greinaflokki var kerfið, sem svo er stundum nefnt, að vísu umfjallað af full- miklum virðuieik — og einn stóran og alvarlegan þátt vant- aði gersamlega: Samskiptasögu stjórnar Framsóknarflokksins og Klúbbsins eftir að þau skrautlegu mál áttu sér stað sem hófust sumarið og haustið 1972. Um svipað leyti hóf raunar Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, að rita greina- flokk sinn í Dagblaðið til varnar samfélagsspillingu. Leitaðist verkfræðingurinn við að sýna fram á að sögur um tengsl flokks og veitingahúss séu einasta og hafi verið hugar- órar vondra manna, og eigi sér enga stoð í veruleikanum. Vert er að skoða það nokkru nánar. Til grundvallar liggur meðal annars þetta alkunna stef — þessi minnisvarði um íslerzka stjórnarhætti á áttunda áratug tuttugustu aldar: Halldór E. Sigurðsson gerði á fjármálaráð- herratíð sinni núv. rekstrar- aðilum Klúbbsins kleift að selja brunarústir Glaum- bæjar og kaupa nýtt veitinga- hús með útgáfu skuldabréfs án sjáanlegrar heimildar. Þetta skuldabréf lét hann Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins kaupa. Olafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra, aðstoðaði sömu veitingamenn, þegar þeir höfðu þvælzt inn í sakamál skömmu síðar. Þessir veitinga- menn hafa komizt upp með að skulda tugmilljónir í söluskatt. Sakamál þau, sem þeir flæktust í vegna ólöglegra áfengisflutn- inga, og önnur undarleg .fjár- málaviðskipti tengd veitinga- húsinu virðast ekki hafa verið rannsökuð til hlítar. Á sama tíma hafa þeir leikið vafa- sama viðskiptaleiki fyrir framan nefið á bankakerfinu: Reynast vera höfuðpaurar í ávísanahring. Þætti ýmsum nóg. Umrœður um réttarríki Um nokkurra mánaða skeið hefur nokkur umræða um íslenzkt réttarríki, kosti þess og ókosti, átt sér stað. Og var varla seinna vænna. Það hefur orðið æ fleirum ljósara að um margt búum við við rangsnúið réttar- kerfi. Dómskerfi okkar virðist hafa þann innbyggða eiginleika að vera valdhlýðið. Refsikerfið er meingallað og framkvæmd refsinga virðist með höppum og glöppum. En hitt er verra, að íslenzkt dómskerfi hefur aftur og áftur orðið bert að því að vera yfir- hylmandi og einkum svo gagn- vart einni tegund af glæpum: fjársvikum. Dæmi um slík mál, slíkar rannsóknir, sem koðna niður og virðast síðan gufa upp, eru mýmörg. Eitt slíkt dæmi má nefna hér. I fyrra var sagt frá einkennilegu máli sem snerti bifreiðainnflutning Ræsis hf. Þar var augljóslega um undarleg fjármál að ræða. Þetta Ræsismál virðist hafa dagað uppi í dómskerfi okkar. Svona er farið með fjölmörg mál af þessu tagi. Mannafla- skorti er borið við, og efalítið er það einhver hluti skýringar- innar. En hitt er líka hætta: Að valdhlýðni sé einnig hluti þessarar skýringar. í þessum umræðum setja ménn gjarnan fram hugmyndir um réttaröryggi og að hér megi aldrei koma lögregluríki. Þetta er auðvitað sjálfsagt og eðlilegt. En hitt er ömurlegra; þegar slíkar athugasemdir eru ein- ungis orðnar innantómt hjal. Og þessu innantóma hjali fagna fjársvikarar og aðrir þeir, sem eiga allt sitt undir því að dóms- kerfið sé fáliðað, sinni rannsóknum fjársvikamála lítið eða ekki, og láti slík mál helzt daga uppi. Rök af þessu tagi eru stórhættuleg og til þess fallin að kalla á harðari lög- regluaðgerðir og annars konar þróun í þá átt, sem enginn gæti séð fyrir endann á. Hvað eru mútur? Hvað éru óeðlileg fjármálatengsl, sem gætu haft óeðlileg áhrif á valdið? íslenzkt dómskerfi hefur aldrei fengizt til að skil- greina slíkt. Þegar verið var að reka svokallað Ármannsfells- mál fyrir Sakadómi um árið og sællar minningar, þá lá engin skilgreining fyrir um það, hvað væru mútur. Og hvernig áttti þá að vera hægt að reka málið? Og hverjum skyldi slík afstaða — eða skortur á afstöðu — hjálpa? Verst af öllu er þó kannske það þegar frumstæð íslenzk flokkapólitík hleypur í þessi mál og snarruglar dómgreind kannske heillar þjóðar. Dæmi um slíkt er viðtal, sem Alþýðu- blaðið átti nýlega við Björn Vil- mundarson, forstjóra Ferða- skrifstofu ríkisins, en svokallao antík-mál, sem hann á aðild að, mun eitthvert skrautlegasta meinta fjársvikamálið, sem hér hefur komið upp um langa hríð. en þó mál af því tagi sem hingað til hefur gjarnan koðnað niður og týnzt í spilltu dómskerfi. Og Alþýðublaðið, sem varla eða ekki hafði fjallað um málið að öðru leyti, tók gagnrýnislaust viðtal við flokksmann sinn, sem sagði eitthvað á þá leið að hann ski ldi ekkert í því að sér hefði verið sagt upp störfum hjá Ferðaskrifstofu ríkisins, þar sem hann hefði engu stolið frá Ferðaskrifstofunni! Sakamál hættir að vera sakamál þegar flokksmaður á í hlut, það er gömul og ný íslenzk aðferð. Sömu ættar er raunar Tíma- grein sem hugguleg kona úr Hafnarfirði, Ragnheiður Svein- björnsdóttir, ritar á sunnudag. Þar kemst hún að þeirri niður- stöðu að allt það sem skrifað hefur verið um Ölaf Jóhannes- son og vafasamar gjörðir hans, eigi rætur að rekja til póli- tískrar öfundar, vegna þess að Ölafur sé stórmenni. Skyldi konan trúa þessu sjálf — eða eru skrif af þessu tagi kækur? En hitt er beinlínis hættulegt samfélaginu: Ef lágkúra af þessu tagi verður enn einu sinni ofan á.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.