Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 2
2
I)A(;m.At)lf) KÖSTUDACUK 10. DKSKMHKK 1976.
Uppblásnum námsmönnum
reynist reynslan oft erffið
Siggi flug skrifar:
Miklir peningar fara nú orðið
til styrktar námsmönnum er-
lendis, annaðhvort sem styrkir
eða þá sem námslán sem virðast
með þægilegum afborgunum til
langs tíma ðg hðflegum vöxt-
um.
Ekki t'innst öllum að þeir fái
nógu mikla h.jálp, það sýndu
viðbrögð námsmanna nú
nýlega, þegar efnt var til fjölda-
hungursverkíalls, sem ekkert
varð þó úr, vegna þátttökuleys-
is þeirra sem þöttust hafa verið
beittir örétti.
Það er alveg sjálfsagt að
rétta þessu námsfólki hjálpar-
hiind, eins og hægt er og sann-
gjarnt þ.vkir. en f.vrst og fremst
Kannski væri það bezt að sem flestir námsmenn settust að úti i
hinum stóra heimi. hvrfu þar í fjöldann og sæjust aldrei á íslandi.
skrifar Siggi flug.
JOLA-
GETRAUN
verða að vera til peningar, því
þeir eru afl þess sem gera skal.
Þegar ég var ungur, fyrir all-
mörgum árum, var það venja,
og enda ákvæði um það í lögum
minnir mig, að allir þeir er
hlutu námsstyrki urðu að und-
irrita yfirlýsingu um, að þeir
skuldbyndu sig til þess að
vinna hér heima að námstíma
loknum, áður en þeir fengu
styrkinn útborgaðan. Ekki mun
nú vera farið eftir þessu leng-
ur, enda samrýmist svona
ákvæði ekki lengur hugmynd-
um námsmanna nú.
Mér hefur oft dottið í hug, og
alveg sérstaklega nú undanfar-
ið að e.t.v. sé það gott að hafa
ekki bundið námsstyrki við
slíkt ákvæði, því svo er að sjá að
lítill fengur sé í því að fá ýmsa
námsmenn heim til íslands að
námi loknu, og betur sé, að þeir
setjist að úti i hinum stóra
heimi, hverfi í fjöldann og sjá-
ist kannski aldrei á íslandi.
Að sjállsögðu gildir þetta
ekki um alla námsmenn, því
sumir sem snúið hafa heim að
námi loknu hafa reynzt okkur
miklir ágætismenn.
Nám er eitt, revnsla er svo
annað, það hefur mér komið til
hugar þegar nýbakaðir ,,próf-
menn" hafa komið heim að
námi loknu, með sitt
„DIPLOMA" (Drottinn blessi
heimilið) hangandi uppi á
veggnum, og halda í barnslegri
einfeldni sinni að nú sé öllu
náð, en svo er nú aldeilis ekki.
Fyrir mörgum árum, mjög
mörgum árum, var ég að blaða í
gömlu Familie Journal blaði, og
rakst þar á mynd, sem æ siðan
hefur festst í huga mínum, sök-
um þess hve táknræn hún var.
Myndin var af ungum manni
sem kom dansandi út úr
einhvers konar musteri, hopp-
aði niður tröppurnar léttur
og kátur og hélt á loftblöðru. A
loftblöðrunni stóð skýrum stöf-
um LÆRDÓMUR, en framund-
an var ógnþrunginn og að því
er virtist öfær þyrnirunni, og
sáust þyrninálarnar mjög
greinilega. Yfir þyrnirunnan-
um stóð með skýru letri
REYNSLA.
I gegnum þetta myrkviði
REYNSLUNNAR átti þessi
ungi maður með LOFTBLÖÐR-
UNA eftir að ganga, og hlaut þá
blaðran fljótlega að springa.
Þetta kom mér til hugar þeg-
ar ég las um hinar ýmsu fram-
kvæmdir hins opinbera og
margar aðrar sem hafa farið
ákaflega mikið úrskeiðis, svo'
ekki sé meira sagt. Hvert stór-
fyrirtækið á fætur öðru er vit-
laust „hannað" og allur kostn-
aður fer langt fram úr áætlun-
um, en skattþegnarnir eru látn-
ir borga vitleysuna.
Já, það eru margar LOFT-
BLÖÐRUR búnar að springa á
Islandi, enda þótt Hákoni
Bjarnasyni hafi ekki tekizt að
rækta ÞYRNIRUNNA, hingað
til.
Mér datt þetta (svona) í hug.
I flugvélum Flugfélags íslands er engin aðstaða til sjúkraflutninga. en samt eru sjúklingar fluttir
með þeim í farangursrými á fjórföldu farmiðaverði.
Nú erum við komin að
fimmta hluta jólagetraunar-
innar. A sinni löngu og ströngu
flugferð ofar snjóþungum skýj-
um hefur jóíasveinninn
freistazt til að lenda og hlusta á
hina seiðandi tóna flautuleikar-
ans. Sá reynist vera dökkur á
brún og brá. með túrban á höfð-
inu og hefur hreiðrað um sig
undir skugga pálmatrésins
ásamt slöngunni sem er fljót að
rétta jólasveininum óskalistann
fyrir þessi jól.Listgrein sú sem
maðurinn leggur stund á er
talin vera með þeim elztu og
bezt þekktu í landinu en
spurningin er: í hvaða landi?
Kins og venjulega setjið þið
kross við réttu lausnina.
A— Indlandi
B— Japan
C — Zambíu
SJUKRAFLUTNINGAR
FLUGFÉLAGSINS
ÓFORSVARANLEGIR
— jafnvel háhyrningar fá betri aðstöðu en sjúklingar
Önnumst ekki sjúkraflutninga nema í neyð
— segir Flugfélagið
Kona að norðan skrifar:
Hvers eiga sjúklingar að
gjalda, sem i'luttir eru í sjúkra-
körfu á milli sjúkrahúsa innan-
lands með Flugféiagi islands?
Flugfélagið virðist hafa leyfi
til að taka greiðslu fyrir fjögur
fargjöld, sem maður ætlar að
þýði, að fjögur sæti séu tekin úr
flugvélinni fyrir körfuna, en
það er öðru nær. Sjúklingnum
er troðið inn í farangursrými
flugvélarinnar, sem staðið hef-
ur opið meðan verið er að ferma
og afferma. Það er óupphitað
og óvisllegt, þannig að manni
finnst þetta frekar minna á
gripaflutning, en flutning á
sjúkum manneskjum. Hlýtur
þetta að hafa neikvæð áhnt a
sálarástand sjúklingsins. sem
eðlilega er viðkvæmari en l'ull-
friskt fólk.
Kg get ekki orða bundi/.l um
þetta fyrirkomulag. þar sem ég
hef haft náin kvnni af þessu
síðustu vikur vegna þriggja
slikra ferða aðstandanda. I tvö
skiplin varð honum illa kalt, þö
að flugfreyjurnar sýndu hlý-
legt viðmót. Þegar til Keykja-
víkur kom, var sjúkrabillinn
ekki kominn á staðinn. Þó var
b.vrjað að flytja út vörurnar svo
ailt stóð upp á gátt og gusturinn
næddi inn i farangursrýmið,
þar sem sjúklingurinn lá. Eg
spyr, er þetta forsvaranlegt?
Nii kunna þeir hjá Flugfélag-
inu að segja að það sé ekki
óeðlilegt að þeir taki fjögur far-
gjöld f.vrir slíkt og þvílíkt.
vegna þess að þeir taki sæti úr
vélinni til að konia fyrir far-
angri í staðinn fyrir körfuna.
en ég hef verið viðstödd frá því
að ílugvél lenti og þangað til
hún hóf sig til flugs, cn enginn
farangur var settur inn til far-
þeganna og þeir voru þar að
auki ekki mjög margir. Það
het'ði þess vegna verið nægilegt
rúm fyrir körfu þar inni. Senni-
lega eru það bara háhyrningar.
en ekki veikt fólk. sem fa*r að-
búnað i flugvéhnni.
Að lokum þessar spurningar:
Þegar aðstandandi eða ein-
liver annar fer með sjúklingi.
sem l'luttur er á þennan hatt.
hvernig er þá aðlnmaði háttað á
þessum stað \ l'lugvélinni. nteð
tilliti til ör.vggisútbúnaðar sem
öðrum farþegum er séð fyrir.
svo sem öryggisbeltum?
Hin spurningin er: Ef eitt-
hvað er flutt i farangursrými.
er þá ekki venjan að borga und-
ir það eftir vigt?
Einar Helgason hjá Flugfélagi
tslands svaraði spurningum
„norðanfrúarinnar" á þessa
leið:
1. Þegar sjúklingur er íluttur
við áðurnefndar kringumstæð-
ur. gefst fylgdarmanni
ekki kostur á að sitja hjá hon-
um. Fyllsta öryggis er þó gætt i
sambandi við sjúklinginn sjálf-
an. Tekið skal fram að Flugfé-
lag íslands annast ekki sjúkra-
l'Iutninga nema í neyð. vegna
mjög lélegrar aðstöðu til sliks.
en hefur þó aldrei synjað þess
liáttar beiðni.
2. Allt sem flutt er i far-
angursrými er gjaldsett el'tir
vigt nema i þessu tilfelli. Þetta
verður þó að teljast ódýrasta
sjúkraflug sem viil er á.