Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDALUR 10. DESEMBER 1976. Formaður LÍÚ um leiðirnar: Takmarka sóknina í ársbyrjun — 1300 milljóna halli á bátunum — minni skuttogarar standa skást Um tvær meginleiðir er að velja ef við viljum tryggja end- urreisn þorskstofnsins, annað- hvort að hlita ráðum fiskifræð- inga og veiða ekki meira en þeir mæla með og stöðva veið- ar, þegar því marki væri náð, sem er óframkvæmanlegt, eða takmarka sóknina i ársbyrjun við þau mörk að umrætt magn entist þeim. sent veiðar stunda, út allt árið. Þetta sagði Kristján Ragnarsson, formaður stjórnar Landssambands íslenzkra út- vegsmanna. í setningarræðu þings LIU í gær. Kristján mælti sem sé með seinnt leiðinni. Hann sagði að þetta hefðu verið taldar hinar mestu hrakspár og uppgjöf þeg- ar hann lýsti þessum skoðunum fyrst í fyrra. En hann hefði ekki skipt um skoðun. Afkoma fiskveiðanna er mun betri á þessu ári en í fyrra en þrátt fyrir það er hún með því versta sem hún hefur verið i mörg ár. Bátaflotinn, að loðnuveiðum frátöldum, er nú rekinn með um 1300 milljóna króna halla og er þá reiknað með um 1500 milljónum króna f endurmetn- um afskriftum. Afkoma loðnu- veiðanna var mjög slæm siðast- liðinn vetur en horfur eru nú góðar. Afkoma minni skuttogara er skást af hinum ýmsu þáttum útgerðar og halli þeirra talinn vera um 360 milljónir króna þegar endurmetnar afskriftir eru áætlaðar um 860 milljónar. Astæðan fyrir betri afkomu þeirra er að aflabrögð hafa reynzt mun betri en hjá öðrum fiskiskipum. Stóru skuttogararnir eiga við mikla rekstrarerfiðleika að stríða. Halli þeirra er um 385 milljónir eða jafnhá upphæð og afskriftum nemur. Nýgerðar áætlanir Þjóðhags- stofnunar benda til að útflutn- ingsverðmæti sjávarafurða verði um 52 milljarðar króna í ár, samanborið við 37 milljarða í fyrra. Þessi hækkun skiptist í þrennt, 18-19% er hækkun á útflutningsverðlagi í erlendri mynt. 14-15% er hækkuh á verði erlends gjaldeyris og 4- 5% eru vegna aukins fram- leiðslumagns. Alls er hækkunin frá í fyrra þvi 40%. „Núverandi markaðsverð nægir frystiiðnaðinum ekki til þess að greiða það verð fyrir fiskinn, sem hann nú greiðir, eða verkafólki þau laun sem nú eru greidd," sagði Kristján. Upplýsingastofnun fyrir verzlunina? Þrír þingmenn Sjálfstæðis- flokksins flytja tillögu um stuðning ríkissjóðs við sérstaka upplýsinga- og rannsóknar- stofnun verzlunarinnar. Lagt er til að ríkissjóður veiti stofnuninni hliðstæða fjármagnsfyrirgreiðslu og aðr- ar höfuðatvinnugreinar í land- inu eru þegar aðnjótandi. Verzlunin sé nú mjög aískipt í þessum efnum. í nútímaþjóð- félagi sé öllum augljós sú brýna nauðsyn, sem á því sé, að á hverjum tíma liggi fyrir sem gleggstar upplýsingar um stöðu allra aðalatvinnugreina þjóðfé- lagsins. Samtök i sjávarútvegi, landbúnaði og iðnaði hafi sjálf og með stuðningi ríkissjóðs ráð- izt í umfangsmikla upplýsinga- söfnun og gagnavinnslu fyrir hlutaðeigandi atvinnugreinar. Umræður hafi farið fram um stofnun slíkrar stofnunar fyrir verzlun en þröskuldurinn í vegi fyrir framgangi málsins hafi verið fjármagnsskortur, Fyrsti ílutningsmaður er Ellert B. Sehram. -HH JOSTYKIT Hér er jólagjöfin fyrir rafeinda- áhugamanninn: ÓSAMSETT EFNI í: Magnara, frá 2w upp í lOOw, verð frá 1965 kr. Björgvin Guðmundsson í borgarstjórn: Hitaveita Reykjavíkur endurskoði framkvæmdir — vegna annarra byggðarlaga til að hamla gegn stöðugum hækkunum á afnotagjöldum Viðtœki, AM, FM, verð frá kr. 2165. Ljósashow, I, 3 og 4 rásir, verð frá kr. 5190. EINNIG BER AÐ NEFNA hina frábœru AE-bók sem fjallar um öll und- irstöðuatriði rafeinda- frœðinnar. Með bókinni fylgir prentrás. Bókin fœst bœði á ensku og dönsku, verð kr. 1590. Og ótal margt fleira. Sendum í póstkröfu. Umboðsmenn: Heimilistæki sf, Sætúni 8, Reykjavík. Huraldur Bjarnason, Hrísalundi 12F, Akure.vri. Karl Hálfdánarson. (íarðars- braut 9, Húsavík. Smári Radíóþjónustan, Skólavegi 13. Vestmanna- e.vjum. SAMEIND HF. Tömasarhaga 38, simi 15732. Opið 17—19, laugardaga 10 A fundi borgarstjórnar Reykja- víkur lýsti Björgvin Guðmunds- son nýlega þeirri skoðun sinni, að fresta beri framkvæmdum Hita- veitu Reykjavíkur vegna ná- grannabyggðarlaga til þess að ekki þ.vrfti að koma til hækkunar hitaveitugjalda um 15% sem ráð- gerð er eftir áramótin. Benti hann jafnframt á þann kost, að tekið yrði lán innan- lands til þess að fjármagna þessar framkvæmdir og að nágranna- sveitarfélögin tækju slík lán. Rifj- aði hann upp hin ýmsu sjónarmið sem uppi hafa verið um það hvernig standa ætti að fjármögn- un hitaveituframkvæmda vegna nágrannabyggðarlaga Reykjavík- ur. Sú leið var farin. sem kunnugt er, að Hitaveita Reykjavíkur sæi um allar framkvæmdir og fjár- magnaði þær. Erlendar lántökur vegna hitaveituframkvæmdanna hafa, eins og önnur slík lán, verið gengistryggð. í þeirri þróun. sem orðið heíur á sigi íslenzku krón- unnar gagnvart erlendum gjald- miðlum. hefur nokkurt gengistap orðið vegna þessara lána. Telur Björgvin Guðmundsson að enn hafi þetta gengistap um of ient á Reykvíkingum í hækkuðum hita- veitugjöldum, sem og annar sívax- andi rekstrar- og stofnkostnaður. Aætluð þörf til aukningar á kerf- inu er um kr. 730 milljónir. Sem fyrr segir lagði Björgvin Guðmundsson það til að um sinn vrði frestað frekari framkvæmd- urn á vegunt Hitaveitu Revkjavík- ur vegna annarra byggðarlaga eða að þvi horfið að taka innlend lán til þess að draga úr hækkunum á afnotagjöldum sem nú er ákveðið að leita eftir. BS Lán Húsnæöismálastjórnar og auraleysi fólks: Vanskil ekki meiri nú en á fyrri árum ..lnnheimta afborgana og vaxta af húsnæðismálastjórnar- lánum gengur ekki verr á þessu ári en undanfarin ár." sagði t'iuðbrandur Guðjónsson h.já Veðdeild I.andsbankans er DB spurði hann um ástæður f.vrir 300 nauðungaruppboðsauglýs- ingum i Lögbirtingi á. dögun- um. Voru þaú öll tengd lánum llúsmeðismálastjórnar. „Þetta er held ég ekki stærra hlutfall en áður. Lánun- um fjölgar alltaf og hlutfall milli lánafjölda og vanskila er sizt hærra nú en áður. Það eru alltaf einhverjir sem eiga erfitt nieð að greiða fvrr en i fulla hnefana og aðrir sem trassa greiðslur. En venjan er að áður en til frekari aðgerða kemur hafa svo til allir gert full skil." Guðbiamlur sagði að lána- fjtildi hjá Húsmeðismálastjórn vteri nú kotninn að eða yfir 20 þúsund. Va>ri u.þ.b. helmingur þeírra lána bundinn i fasteign- um í Reykjavík og það þætti ekki mikið að 300 lentu i aug- lvsingu i I.ögbirtingablaðinu, -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.