Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976. rTiii Hlakkaði í áhorfendum en það breyttist! — og leikmenn Dankersen fögnuðu sigri í Nettelstedt þetta tap i Hiittenberg. Hofweier hefndi fyrir ósigur i fyrri leiknum vió Grosswallstadt (10- 16) og vann með frábærum leik. 3000 áhorfendur sáu þann leik og fengu mikió fyrir aurana sína. Kliihspies (Grosswallstadt) var tekinn úr umferð og það dugði. Meistarar suðurdeildarinnar í vor, Dietzenbach, virðast nú ékki eins sterkir og má segja, að liðið sé fallið úr keppninni um úrslita- sæti. Hefur tapað níu stigum. Staðan er nú þannig: Norðurdeild Minden 6. desember. Línurnar í Bundeslígunni urðu eitthvað skýrari eftir tíundu umferð. sem fram fór nú um helgina. Nokkrir ..úrslitaleikir" voru í báðum riðlum og mikilvægur hver punktur. í norðurdeild er Gummersbach ckki lengur ríkjandi lið og í suðurdeild virðist Grossvallstadt vera að missa flugið. Ekki vil ég fullyrða hvort Gummersbach sé lengur með I kapphlaupinu um meistaratitilinn. en vonir leikmanna liðsins eru ekki miklar. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1966 að Gummersbach er svo snemma ekki talið eiga möguleika á úrslitasætum. Eins og nú er koma tvö félög, Grúnn Weiss , Dankersen og Rheinhausen, til með að berjast um fyrsta og annað sætið í norðurdeild. Þessi lið hafa á að skipa jafnbeztu leikmönnunum og bæði hafa mjög góða markverði'. I suðurdeild skauzt Húttenberg upp í fyrsta sæti með sigri sínum yfir Göppingen og Grossvallstadt færist í annað sætið eftir annan ósigurinn í röð á tveimur vikum. Snúum okkur þá að úrslitum einstakra leikja Norðurdeild Nettelstedt—Dankersen Fúsche B.—Wellinghofen Gummersb.—Rheinh. Grambke—Derschlag Phönix Essen—Kiel 15-16 17-14 14-17 17-12 17-17 Gummersbach—Rheinhausen. Lið Gummersbach, sem nú lék í fyrsta skipti í nýrri höll í Gummersbach — rúmar 2500 áhorfendur — virðist ekki geta verið án Joachim Deckarm, sem er handarbrotinn og Rheinhausen var allaf sterkari aðilinn í þessari viðureign. Markmaður Rheinhausen, Borfke, sem er 2.15 metrar á hæð, bar af, ennfremur Heusen og Rosendahl, sem skoruðu fimm mörk hvor. Hjá Gummersbach var Schlagheck markhæstur með 4 mörk og var með fjölda tilrauna. Útlitið hjá Gummersbach er ekki gott þessa stundina og óvíst hvort liðið nær sér aftur á strik. Deckarm verður frá fram að áramótum og 18. desember leikur Kater, markmaður, sinn síðasta leik með Gummersbach. í framtíðinni leikur hann líklega með liði Hansa Schmidt í 3ju deild. Nú eru uppi raddir um það, aó Gummers- bach verði að fá nýja leikmenn til sín ef félagið hafi áhuga á að halda sér við toppinn. Nettelstedt—Dankersen Derby-leikurinn Nettelstedt GWD var það, sem rnenn biðu eftir hér fyrir norðan og segja sérfræðingar, að hægt hefði verið að fylla Dortmúnder-höllina, sem rúmar 10 þúsund áhorfendur, á hvorn leik þessara liða. En höllin í Nettelstedt tekur aðeins 1500 áhorfendur, sem allir eru ,,árs áhorfendur" — það er kaupa sér ársmiða fyrir keppnistímabilið. GWD fékk t.d. aðeins 60 miða fyrir leikmenn og helztu áhang- endur. Það sem þessir 1500 GWD jafnaði í 14-14 og var furðulegt, að Nettelstedt skyldi ekki taka mann úr umferð hjá GWD þegar þeir voru einum fleiri. Lúbking skoraði úr vítakasti. 15-14 fyrir Nettelstedt og þrjár mín eftir Gerd Becker jafnaði í 15-15 með skoti úr vinstra horninu — Nettelstedt missti boltann og tæp mín. eftir. Allt á suðupunkti — spennan í hámarki. GWD tók þá ,,stimplun“ frá hægra horni og yfir, sem endaði með því, að Becker skoraði sigur- Suðurdeild Leutershausen—Wiesbaden 22-14 Hofwier—Grossv.st. 19-13 Huttenberg—Göppingen 15-13 Milbertsh.—Dietzenb. 21-16. Rintheim—Osswil 20-9 Með heimasigri yfir Göppingen náði Húttenberg fyrsta sætinu. 1500 áhorfendur sáu harðan leik —hraða og mistök. I hálfleik var staðan 8-8. Það var ekki fyrr en Dork skoraði tvö mörk í röð og breytti stöðunni úr 12-12 í 14-12. að sigur Húttenberg var í höfn. Rheinhausen 9 s 0 1 165-132 16 Dankersen 10 8 0 2 193-158 16 Nettelstedt 10 6 1 3 194:157 13 Gummersb. 10 6 0 4 201-164 12 Derschlag 10 5 0 5 159-158 10 Wellingh. 10 4 2 4 142-142 10 Grambke 10 4 1 5 152-169 9 Kiel 9 3 1 5 139-144 7 Túsche 10 2 0 8 144-189 4 Ph. Essen 10 0 1 9 154-230 1 Suðurdeild Húttenberg 10 7 1 2 148:132 15 Grossw.st. 10 6 2 2 131-120 14 Hoxweier 10 6 2 2 158-150 14 Dietzenbach 10 5 1 4 157-154 11 Ólafur H. Jónsson Handboltapunktar frá V-Þýzkalandi Axel Axelsson áhorfendur geta látið í sér heyra, er ótrúlegt. Ég held að það sé verra heldur en þegar 7000 áhorfendur hvetja sína menn í Kiel. Leikurinn var gífurlega harður. en þó ekki grófur. Það var auðfundið, að nú átti að hefna ósigursins í fyrri leik liðanna. Nettelstedt hefur ekki tapað leik á heimavelli síðan 1970!! — þannig, að veðmálin stóðu liðinu í hag. Fyrri hálíleikur var jafn og að mestu leiddi GWD með einu marki eða þar til fimm mín. voru eftir áf hálfleiknum Þá jafnaði Nettelstedt og komst síðan einu marki yfir, 10-9 í hálfleik. Peter Pickel, áður Hamburger SV, hafði verið atkvæðamikill í fyrri hálfleik (6/1 mörk) og auðséð að fara þurfti lengra út á móti honum til að stöðva þennan sterka leikmann. Seinni hálf- leikur einkenndist af varkárni í sókn og hörku í vörn. GWD spilaði vörnina mjög framarlega og það hreif, því skyttur Nettelstedt náðu sér ekki upp í hálfleiknum. Þegar sex. mín. voru eftir hlakkaði mjög í áhorfendum, því van Oepen, GWD, var þá rekinn út af í fimm mínútur! Þá átti sigurinn að vera vís fyrir gest- gjafana. Staðan var 13-13 og Pickel skoraði 14-13. Utlitið var svart fyrir GWD. En Nettelstedt fór of hratt i málin ogstjórnleysiá bekknum ollu því, að leikmenn liðins misstu tvívegis boltann. markið, 16-15 úr horninu. Fléttan var mjög vel útfærð. Nettelstedt byrjaði á miðju, en brotið var á leikmanni liðsins. Liðið fékk frikast, sem ekki tókst að nýta. Leiknum var lokið og leikmenn Dankersen fögnuðu innilega. Við þessu höfðu menn ekki búizt. Tveir plús-punktar í safnið og einu skrefi nær úrslitum. Þeir, sem skoruðu GWD Von Oepen 4 Axel 3/2, Becker 3, Grund 2, Waltke 2, Ólafur 1 og Busch 1. Nettelstedt. Pickel 7/2, Lúbking 2/1, Möller 2, Glombek 1. Willisch 2 og Schibschid 1. Grambke, Bremen, vann Derschlag í miklum baráttuleik frammi fyrir 2200 áhorfendum í Stadthalle í Bremen. Derschlag virðist alveg heillum horfið og verður nú að berjast fyrir tilveru sinni í deildinni. Eítir sjö leiki án sigurs vann R. Fúsche verðskuldað 17-14 gegn Welling- hofen, en þrátt fyrir sigurinn má telja vist, að Berlínarliðið falli. Vinstri handar skyttan Seehase skoraði níu mörk fyrir Fúsche. Phönix Essen fekk sinn fyrsta punkt í deiídinni og það gegn Kiel. Bæði lið buðu upp á 2. deildar handknattleik og áttu lítið hrós skilið. Krause 9/6 skoraði mest íyrir Kiel, en síðustu mín. var hann rekinn út af fyrir fullt og allt. Gaf Oberscheid, Essen, einn „léttan" beint í andlitið. Gunnar Einarsson átti sinn bezta leik á þessu leiktímabili og alltaf lá boltinn inni, þegar hann skaut á markið. Hann var með 9/1 mörk. Göppingen er enn á hættu- svæðinu, en leikmenn vonast eftir að liðið komi sterkar úr í seinni umferðinni þannig, að það týrir á perunni í Göppingen þrátt fyrir Rintheim 10 5 0 5 Milbertshof. 10 4 2 4 Göppingen 10 4 1 5 Leutersh. 10 2 2 6 Ossweill 10 2 2 6 Wiesbaden 10 1 3 6 Með beztu kveðjum, Ölafur H. Jónsson. Axel Axelsson. 163-148 132-134 146-144 141-150 144-165 141-164 10 10 9 6 6 5 Islandsmet Ingunnar — í langstökki án atrennu Ingunn Einarsdóttir, frjáls- íþróttakonan fjölhæfa í lR, setti nýtt íslandsmet í langstökki innanhúss í Baldurshaga í gær. Stökk 5.52 metra. Eldra íslands- metið í greininni var 5.49 metrar. Sigrún Sveinsdóttir, Ármanni, átti það og var metið sett fyrir f jórum árum 1972. Þá var einnig keppt í lang- stökki karla og þar náði Friðrik Þór Óskarsson. ÍR, ágætum árangri — stökk 6.76 metra — á þessu innanfélagsmóti ÍR. Höfum opið til kl. 10 á föstudag og til kl. 6 á laugardag Æfingagallar — Töskur — Búningar Skór o.fl. Leggjum áherzlu á góða vöru á hagsæðu verðl. Verið velkomin, Irtið inn. Póstsendum um allt land. Ingunn leggur nú meiri áherzlu á langstökkið en áður með tilliti til keppni í fimmtar- þraut næsta sumar og keppnin í gær var liður í þeim undirbúningi. Árangurinn lét ekki á sér standa. Nýtt íslandsmet. Fjöldi erlendra áhorf- enda á HM takmarkaður Framkvæmdanefnd heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu. sem háð verður í Argentínu 1976. tilkynnti í gær eftir fund í Rosario í Árgentinu. að allar líkur væru á þvi að takmarka þyrfti fjölda erlendra áhorfenda á keppnina. Við viljum ekki að fólk sofi í almenningsgörðum og á torgum. sagði varaformaður ncfndarinnar. Carlos Alberto Lacoste. kapteinn i sjóhernum. eftir fundinn. Hann bætti við, að endur- skipuleggja þyrfti alla hótelaðstöðu í Argentínu og byggja ný hótel. Það verður áreiðanlega ekki gerl fyrir heimsmeistarakeppnina 1978. Eina ráðið er að draga úr fjölda erlendra áhorfenda á keppnina. Þá bætti kapteinninn þvi við, að heimsmeistarakeppnin 1978 yrði áreiðanlega ekki „keppni aldarinnar'' á knattspyrnusviðinu — en fram- kvæmd hennar yrði þó góð á argen- tíska vísu. Aætlað er að selja tvær milljónir aðgöngumiða á hina ýmsu leiki — og helmingur þeirra verður fyrir heima- fólk. Þetta er í fyrsta skipti, sem frar kemur, að hótelaðstaða er ekki næ fyrir þá, sem áæltað hafa að sækj leiki á heimsmeistarakeppninni —ei áður hefur undirbúningur Argentínc manna fyrir heimsmeistarakeppnin 1978 verið gagnrýndur á nær öllur sviðum. Einn kemur þá annar fer. Hin 16 ára rúmenska stúlka Theodora Ungureanu var sannarlega stjarnan i fimleikakeppni 5 þjóða sem fram fór í Mílanó. Ungureanu stóð í skugga löndu sinnar Nadiu Comaneci á Olympíuleikunum sem og annað fimleikafólk. En Nadia meiddist á æfingu og gat ekki tekið þátt i fimm landa keppni — Sviss, Ung- verjaland. V-Þýzkaland. Rúmenía og italía tóku þátt i keppninni. En stjarna Ungureanu skein skært í Mílanó — hún fékk 9.95 á jafnvægisslá og 9.90 i frjálsum æfingum og sigraði í kvenna- keppninni — hlaut samtals í einkunn 39.10 stig — næstá stúlka fékk 37 stig. svo yfirburðir Ungureanu voru miklir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.