Dagblaðið - 18.01.1977, Side 6

Dagblaðið - 18.01.1977, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1977. Það eru aðstoðarmenn nautabananna, svonefndir „picadores", sem nú hafa hótað að fara í verkfall. EKKERT NAUTAAT Nautaat, ein af aðalskemmt- unum fyrir ferðafólk á Spáni, er nú illa statt. 1500 aðstoðar- menn nautabananna, hafa hótað að leggja niður vinnu, fái þeir ekki betri laun og vinnuað- stöðu, nú, aðeins nokkrum vik- um fyrir aðalannatímann þar i landi. Aðstoðarmennirnir, svo- nefndir „banderillos" og „piva- dores“, eru nauðsynlegir fyrir nautabanana — þeir eru alltaf til taks, ef eitthvað fer úr- skeiðis, t.d. ef nautabaninn fellur eða nautið stangar hann. margur nautabaninn á þvi líf sitt þessum aðstoðarmönnum að þakka. „Ef verkfallinu verður ekki aflýst áður en aðalhrotan hefst, verður mun minna um nautaat þetta árið,“ segir Victor Mato, ritari hinnar opinberu verka- mannahreyfingar í viðtali við fréttamenn. Nautabanarnir, sem í saman- burði við aðstoðarmenn sína fá himinhá laun, eru taldir styðja við bakið á aðstoðarmönnum sínum, enda þótt það fari leynt. Og því er rétt að bæta við, að þrátt fyrir þá miklu hættu, sem nautabanarnir eru í inni á leik- vanginum, hafa mun fleiri aðstoðarmenn látið lífið undan- farin ár. Líbanon: Vopnin kvödd? Hinir stríðandi aðilar í Líbanon eru nú sem óðast að skila af sér þungum vopnum til friðargæzlu- sveita Sýrlendinga, eftir nítján mánaða þrotlausa baráttu og blóðsúthellingar borgarstyrjald-, arinnar. Talsmaður friðargæzlusveit- anna, sem sendar voru til lands- ins að tilhlutan Einingarsamtaka Arabaríkja, hefur sagt, að ekki beri á öðru en afhénding vapnanna gangi eftir áætlun. Fengu hersveitir hinna stríðandi aðila frest þar til fram að síðustu helgi til að skila af sér vopnunum. Sérfræðingar f málefnum Líbanons segja þó, að lítil von sé til þess að öll þungahergögn komi í leitirnar, þar eð hluta þeirra hafi verið komið undan þegar Sýrlendingar tóku að sér friðar- gæzlu í nóvember sl. Eitt af höfuðdeiluefnunum á fundi ráðamanna Arabaríkja í Kairó í október var hvort vopnun- um skyldi skilað. Þá á hinn herskái hluti Frelsis- hreyfingar Palestínumanna PLA, að verða á brott úr landinu. tbúar héraða í suðurhluta landsins segjast hafatséð vörubif- reiðalestir hlaðnar skæruliðum Palestínumanna á leið um Saida til bæjarins Tyre, en þaðan er talið að liðið muni fara úr landinu. Margrét prínsessa erlátin Margrét prinsessa. Danska prinsessan Margrét, ekkja Axels prins, lézt í Kaup- mannahöfn á mánudaginn I fyrri viku er hún var I nýárs- heimsókn hjá syni sfnum og tengdadóttur, Flemming greifa og Ruth greifaynju af Rosen- borg. Hún var 77 ára. Hún verður jarðsungin á fimmtu- daginn. Margrét prinsessa, elzti með- limur dönsku konungsfjöl- skyldunnar, var dóttir Inge- borgar prinsessu, systur Krist- jáns X., og Karls prins af Svíþjóð, bróður Gústafs V. konungs. Hún átti frændur og frænkur í konungsfjölskyldum allra Norðurlandanna. Önnur systra hennar, Astrid, varð drottning Leópolds Belgíukonungs, en lézt f bílslysi í Sviss. Astrid lét eftir sig þrjú ung börn og er það elzta þeirra, Baldvin, nú Belgíukonungur, frændi Margrétar Danadrottn- ingar. Þriðja systirin var Martha heitin krónprinsessa í Noregi. „ Útlegðarstúdentar” krefjast viðræðna við borgaryfirvöld Mótmælaaðgerðir gegn klfku f jórmenninganna i Peking. Brúðan til hægri (að ofan) á að tákna Chang Chun-shiao, hinn brottrekna og fangelsaða borgarstjóra Shanghai, sem nú er sakaður um að hafa sent stúdenta í útlegð til „Síberíu" Kína. Fyrrum námsmenn í Shanghai, stærstu borg Kína, krefjast þess nú að fá viðtöl við ráðamenn f borginni um meintar ofsóknir Chang Chung-chiao, borgarstjóra, sem nú hefur verið settur af f hreinsununum er ganga yfir landið. Námsmennirnir hafa hengt upp veggspjöld víðs vegar um borgina til að lýsa meðferð sem þeir urðu fyrir í ■ Heilungkiang- héraði í nyrzta hluta landsins. Á vetrum fer kuldinn þar niður f 40 stig á Celcius. Þeir segjast hafa verið sendir þangað 1968, sviptir rétti til náms og ekki fengið að snúa aftur til borgarinnar fyrr en mjög nýlega. Á veggspjöldunum er Chang sakaður um að hafa sent stúdenta til Heilungkiang fyrir það eitt að hafa tekið þátt í fjöldafylkingu gegn honum. Chang var einnig varaforsætis-. ráðherra jafnframt því að vera borgarstjóri Shanghai. Hann er einn fjórmenninganna, sem nú sitja f fangelsi sakaðir um að hafa ráðgert valdarán. Shanghai var valdamiðstöð fjórmenninganna. Þangað má rekja upphaf menningarbylting- arinnar 1966. Ibúar borgarinnar hafa nú nóg að gera við að for- dæma fjórmenningana, sem áður voru taldir helztu bjargvættir hennar og heillabörn. Spánn: ERU RÆNINGJAR 0RI0LS HÆGRIMENN EFTIR ALLT? —það er a.m.k. skoðun fyrrverandi starfsmanns spánsku leyniþjónustunnar Fyrrum spánskur leyniþjón- ustumaður sagði í blaðaviðtali f heimalandi sfnu í gær, að ræningjar Antonios Maria de Oriols, forseta ráðgjafanefndar rfkisstjórnarinnar, væru í raun og veru öfgasinnaðir hægri- menn sem létust vera vinstri- sinnar. Leyniþjónustumaðurinn fyrrverandi, Luis Manuel Gonzalez Mata, höfundur bókar sem var gefin út f Frakklandi um tuttugu ára starf hans í spánsku leyniþjónustunni, sagði f viðtali við tímaritið Opinion f gær, að aðeins hægriöfgamenn gætu staðið að svo flóknu og vel skipulögðu mannráni. „Þeir voru aðeins að reyna að koma f veg fyrir stjórnmála- þróunina í landinu,“ sagði hann. Oriol var rænt í Madríd 11. desember sl. Hópur öfga- sinnaðra vinstrimanna, GRAPO, hefur lýst ábyrgð á hendur sér fyrir mannránið. Gonzalez átti viðtalið við tímaritið í Parts, þar sem hann býr nú. Hannte'urað GRAPO hafi verið sett á laggirnar fyrir nokkrum mánuðutn i þvf skyni að annast mannránið. ,,Eg tel að hluti leyni- þjónustunnar viti eitthvað — þeir búa yfir nauðsynlegri vit- neskju til þess,“ bætti hann við. Antonio Maria de Oriol, forseti ráðgjafanefndar spánska ríkisins. í haldi hægrimanna sem þ.vkjast vinstrimenn?

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.