Dagblaðið - 26.01.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1977.
Rússar kaupa gaffalbita
fyrir 800 milljónir króna
Stærsti lagmetissölusamningur íslands til þessa
Stærsti sölusamningur sem
Islendingar hafa gert um sölu
nióursuðuvara var undirritaður
í Moskvu sl. föstudag. Kveður
hann á um sölu á 10 milljónum
dósa á niðurlögðum gaffalbit-
um og er heildarverðmæti
samningsins rúmar 800 milljón-
ir íslenzkra króna, segir í frétt
frá Sölustofnun lagmetis.
~ Þessi sala þýðir tæplega tvö-
földun á söluverðmæti lagmetis
til Sovétríkjanna frá árinu
1976.
Hráefni til þessarar fram-
leiðslu er þegar tryggt og er
Ijóst að milli 10 og 15% saltsíld-
arframleiðslunnar frá sl. ári fer
til þessarar vinnslu. Framleið-
endur gaffalbitanna eru K.
Jónsson & Co á Akureyri og
Lagmetisiðjan Siglósíld, Siglu-
firði.
Eysteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri undirritaði!
samninginn en kaupandinn af
hálfu Rússa er að venju Prodin-
torg. í viðræðum við RúSsa um
þennan samning var rætt um
nýjar vörutegundir en niður-
stöður liggja ekki fyrir fyrr en
á miðju ári. Gaffalbitar hafa til
þessa verið nær eina vöruteg-
undin sem Sovétmenn hafa
haft áhuga á.
■Ast.;
Lena Nyman og Rune Andersson eru komin hingað til að skemmta
okkur með vísnasöng sínum.
DB-mynd Arni Páll.
HÆTTIAÐ STRIPLAST
0G FÓR AÐ SYNGJA
Lítil sænsk stelpa, Lena
Nyman, aflaði sér heimsfrægðar
fyrir um það bil tíu árum með því
. að stríplast fyrir framan kvik-
myndavél undir stjórn Vilgöt Sjö-
mans. Kvikmyndirnar nefndust
Forvitin-gul sem var gerð 1967 og
Forvitin-blá en hún var gerð ári
síðar.
Nú er þessi sama Lena komin
hingað til lands með sínum heitt-
elskaða sambýlismanni og
skemmtir í Norræna húsinu með
vísnasöng. Þau koma hingað á
vegum Sænsk-íslenzka félagsins.
Rune Andersson og Lena hafa
vakið athygli fyrir vísnasöng og
!hún hefur hlotið mjög góða dóma
fyrir túlkun sína á vísum Karin
Boyes. Rune sernur sjálfur það
sem hann fl.vtur og í Norræna
húsinu gefst okkur kostur á að
he.vra þau flytja ástarvísur á
fimmludagskvöld klukkan 20.30.
Þau skemmta einnig á laugardag
og sunnudag kl. 16.00.
-KP
Þögul virðingá
gangstéttarbrún
Það vakti athygli í gær að lög-
reglubíl var komið fyrir á gang-
stétt gegn Fríkirkjunni. Skammt
þar frá stóð úlpuklæddur maður
beint andspænis kirkjudyrum.
Við nánari athugun kom í ljós að
þar stóð Helgi Ilóseasson. Hvort
lögreglan bjóst við einhverjum
nýjum þætti mótmæia af hans
hálfu skal ósagt látið.
t kirkjunni var Ríkaj )ur Jóns-
son myndhöggvan kvaddur
hinztu kveðju. Og staða Helga
þarna andspænis kirkjudyrum
mun hafa verið þögul virðing við
hinn látna myndskurðarmann.
Helgi fer ekki í kirkju en þarna
kvaddi hann sin sinn — á sinn
hátt.
ASt/DB-m.vndir Sveinn Þorm.
SJÖ LISTFRÆÐINGAR
GEFA YFIRLÝSINGU
VEGNA RITUNAR ÆVI-
SÖGU J.S. KJARVAL
í nóvember sl. var samþykkt á
fundi hússtjórnar Kjarvalsstaða
og síðar í borgarráði, að veitt
'skyldi fé til ritunar sögu Jóhann-
esar S. KjarvaL sem koma ætti út
1985, þegar 100 ár væru liðin frá
fæðingu listamannsins. Jafnframt
var ákveðið að fela Indriða G.
Þorsteinssyni rithöfundi verkið
og skyldi hann taka laun sam-
kvæmt launataxta menntaskóla-
kennara meðan á samningu
verksins stæði.
Ber að fagna því, að Reykjavík-
urborg skuli beita sér fyrir því að
hafin sé könnun á ferli Jóhannes-
ar Kjarval.
Fram hefur komið að málió
heyrði ekki undir listráð Kjar-
valsstaða þar eð ekki væri um að
ræða listfræðilega könnun á ferli
Kjarvals, heldur ritun ævisögu
(persónusögu) hans.
Af þeirri ástæðu þykir okkur
rétt að gera eftirfarandi athuga-
semdir. 1) List og ævi Kjarvals
verður ekki aðskilin og er því
ógerlegt að fjalla ekki um list
Kjarvals við ritun ævisögu hans.
2) Þess vegna er mikil þörf á
sögulegri rannsókn á verkum
Kjarvals t.d. skrásetningu verka,
Ijósmyndun, heimilda- og gagna-
söfnun, sem er nauðsynlegur
undirbúningur fyrir frekari rann-
sóknir á listferli Kjarvals og stöðu
hans jafnt í íslenzkri sem alþjóð-
legri listasögu.
Reykjavík, 24. jan. 1977.
Aðalsteinn Ingólfsson listfrœðingur,
Bjöm Th. Björnsson listfræðingur,
Guðbjörg Kristjansdottir listf ræðingur,
Hrafnhildur Schram listfræðingur,
Juliana Gottskólksdóttir listfræðingur,
Ólafur Kvaran listfræðingur,
Steinunn Stefansdottir listfræðingur.
BIAÐIÐ
ÞAÐ UFl
Skipasmíði
Tilboð óskast frá innlendum skipa-
smíðastöðvum í smíði á eftirtöldum
skipum fyrir Hafnamálastofnun
ríkisins.
2 flutningaprammar, stálþyngd um
það bil 100 tonn hvor. Afgreiðslutími
1. júlí 1977 og um 1. október 1977.
1 dráttarbátur, um það bil 15 metrar
að lengd. Vélarorka um 500 hestöfl.
Afgreiðslutími 6 mánuðir.
Útboðsgögn yfir flutningaprammana
verða afhent á skrifstofu vorri frá og
með fimmtudegi 27. janúar 1977, en
útboðsgögn yfir dráttarbátinn eftir kl.
13 mánudaginn 31. janúar 1977.
Tilboð þurfa að berast skrifstofu vorri
fyrir kl. 11.30 f.h. mánudaginn 7.
febrúar 1977.
Notaðir
bílar
Sunbeam 1250 og 1500 ’70,
’71, ’72, ’73
Hunter ’70,’71,’°72, ’74
Galant 1600 grand Luxe og
de Luxe ’74
Lancer 1200, 2 og 4 dyra ’74,
’75
Lancer 1400, 2 dyra ’74
Jeep CJ5 með blæju, góðlr
greiðsluskilmálar ’74.
Jeepster Commando, blll í
sérflokki ’73
Cherokee S 6 cyl, mjög
fallegur bill, ekinn 32 þús.
km, skipti á ódýrari bil
möguleg. ’75.
Cherokee 8 cyl sjálfskiptur
’74
Wagoneer 6 cyl. ’71, ’72, ’73,
’74
Wagoneer 8 cyl. sjálfskiptur
’71, ’72, ’74, ’75
Willys ’64, ’65, ’66, ’67-
Hornet ’74, ’75 ,
Hornet Hatchback ’74, ’75
Hornet Sportabout station
’74
Gremlin ’74
Bronco ’66, ’67, ’73, ’74
Volkswagen ’71, ’73
Austin Mini ’73, ’74
Morris Marina ’74
Cortina ’70, ’71, ’74
Datsun pick-up 1500 ’74
Willys FC 150 frambyggður,:
með húsi ’65
Saab 99, 4 dyra ’73
Saab 96 ’72
Benz 230 sjálfskiptur, með
aflstýri og -bremsum ’72
Oldsmobile, 4 dyra ’64
Lada 75
Rambler American ’65, ’67
Nýir bíiar:
Cherokee ’77
Jeep CJ 5 ’77
Hornet ’77
Sunbeam 1600 super ’77
Lancer 1200 og 1400 ’77
Nýjung
Dagana 29. og 30.
janúar verður sölu-
sýning á nýjum og
notuðum bílum. Hér
gefst gott tœkifœri
bœði fyrir þá sem
œtla að kaupa og
selja.
Notaðu tœkifœrið,
komdu og seldu bílinn
á staðnum.
Allt á Sama stað
ÉGILL,
VILHJALMSSON
HE Uugpvegi t18-SMni 15700
gi