Dagblaðið - 26.01.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1977.
7
Spánn:
Stjómmálamenn sameinast
gegn valdaránshættunni
Spánskir stjórnmálamenn
hafa sameinazt í fordæmingu
sinni á pólitísku ofbeldi sem
farið hefur eins og eldur í sinu
um landið. Óttast menn að til-
gangurinn sé að knýja fram
valdatöku hersins á nýjan leik.
I yfirlýsingu, sem allir
leiðandi stjórnmálamenn
landsins skrifuðu undir og birt
var í gærkvöld, sagði að of-
beldisaldan væri samsæri til
að stöðva friðsamlega lýðræðis-
þróun á Spáni. Sjö vinstrisinn-
ar hafa látið lífið síðan á sunnu-
daginn og háttsettum hers-
höfðingja hefur verið rænt.
Adolfo Suarez, forsætis-
ráðherra og sex stjórnarand-
stöðuleiðtogar sendu frá sér
svipaða yfirlýsingu í fyrra-
kvöld.
Spánsk blöð hafa gert því
skóna undanfarið að annað-
hvort vinstri- eða hægri öfga-
menn stæðu að baki óeirðunum
til að knýja fram valdatöku
hersins.
Hún myndi stöðva þróun
vestræns lýðræðis á Spáni en
jafnframt ýta undir fullyrðing-
ar vinstrisinna um að eina leið-
in til valda sé með vopnaðri
byltingu.
Herinn hefur lýst yfir
eindregnum ásetningi sínum að
skipta sér ekki af stjórnmála-
þróuninni þótt búizt sé við að
yfirmenn hersins muni ítreka
kröfur sínar um að lögum og
reglum sé framfylgt.
í fyrsta sinn í 40 ár, hafa
Baskar fengið að draga fána
sinn, Ikurrina, að húni eftir að
gefin var heimild til þess fyrir
nokkrum dögum. Hér má sjá
fánann sem er grænn, rauður
og hvítur með krossi, á bygg-
ingu í San Sebastian, við hlið
þjóðfána Spánar sem alltaf
verður að vera dreginn að húni
um leið.
mœsmm
Rauðbrúntog
grátt leður
mm
Sex ára valdaafmæli:
HEIMSMARKAÐS-
KÖNNUN Á KAFFI
AMIN BÝÐUR
TIL VEIZLU
Idi Arnin, forseti Uganda,
hefur tilkynnt að mikið verði
um dýrðir þegar hann heldur
upp á sex ára valdaafmæli sitt.
Hefur hann boðið til landsins
ntörgum stórmennum en þess
er ekki getið hversu margir
þeirra hafa þegið boðið.
Á listanum yfir'gestina má
m.a. finna Henry Kissinger,
sem Amin ætlar að þreyta
kappræður við, Edward Heath,
f.vrrum forsætisráðherra
Bretlands, sem á að stjórna
hljómsveit og fyrrum liðþjálf-
ann Hiroo Onoda, sem dvaldist
einn í frumskógum Filippseyja
í 30 ár eftir lok síðari heims-
styrjaldarinnar. Amin heldur
þvi fram að slíkur hermaður
gæti lappað mikið upp á sið-
ferðisþrek sinna eigin her-
manna sem ntun vera í lág-
marki.
Idi Amin Dada i háliðaskapi.
Framkvæmdastjórn Alþjóðlega
kaffiræktarsambandsins hefur
sett á laggirnar starfshóp sem
ætlað er að kanna birgðir og eftir-
spurn á kaffi í heiminum.
Framkvæmdastjóri sam-
bandsins, Alexandre Beltrao,
sagði fréttamönnum í London i
gærkvöld, að í starfshópnum yrðu
fjórir fulltrúar seljenda og fjórir
kaupenda. Hlutverk þeirra væri
að skila skýrslu um markaðsá-
standið. Mun hún liggja fyrir inn?
an nokkurra vikna.
Framkvæmdastjórinn vildi
ekki skýra frá hvaða þjóðir ættu
fulltrúa i starfshópnum en
fulltrúar á þingi sambandsins,
sem nú stendur yfir, geta sér þess
til að það muni vera Ástralía, Sví-
þjóð, Bretland og Bandaríkin af
hálfu neytenda og Brasilía,
Colombía, Afríkuríkjasambandið
og Cost Rica af hálfu framleiðenda
Gera menn sér góðar vonir um
nytsemi skýrslu af þessu tagi.
Dökkbrúnt og
svartleður
kr. 7.980.
Eriendar
fréttir
f~ REUTER