Dagblaðið - 28.01.1977, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1977
Erlendar
fréttir
REUTER !
Jumblatt
hættir í
pólitík
Kamal Jumblatt, leiðtogi
fósialistaflokksins í Líbanon
liefur tilkynnt að hann ætli að
draga sig í hlé og hætta setu á
þingi landsins.
Hefur hann sagt, að hann
hafi í hyggju að flytjast af
landi brott til Indlands.
Jumblatt var einn hinna
leiðandi manna í horgarstyrj-
öldinni í landinu, sem stóð í 19
mánuði.
TÉKKÓSLÓVAKÍfl:
VERÐA FJÓRIR
ANDÓFSMENN REKNIR
IÍR LANDI í DAG?
Fjórum leiðtogum andófs-
manna gegn ríkjandi þjóð-
skipulagi í Tékkóslóvakíu
hefur verið fyrirskipað að
koma til fundar við vegabréfa-
yfirvöld í dag en yfirvöld þar í
landi hafa hafið mikla herferð
gegn þeim er þar telja sig vera
að berjast fyrir auknum mann-
réttindum og frjálsræði.
Tveir andófsmannanna
fjögurra sögðu í gær að þeir
teldu þessar aðgerðir vera spor
í þá átt að þeir yrðu sendir í
útlegð, nauðugir.
Mennirnir eru leikritaskáld-
ið Pawel Kohout, fyrrum ráða-
menn kommúnistaflokksins,
þeir Milan Huebl og Zdenek
Mlynar og einn fyrrum félagi í
æðstaráði, Frantisek Krigel.
Kanslari Austurríkis, Bruno
Kreisky, sagði í ræðu í gær,
sem talin er vera stuðningsyfir-
lýsing við andófsmennina, að
hann myndi sjálfur reyna að
hamla gegn því að mennirnir
yrðu reknir í útlegð.
Sjóræningjaútvarp
íKaupmannahöfn
Ólögleg sósíalísk útvarps-
stöð hefur hafið sendingar i
Kaupmannahöfn.
Er talið að sendir stöðvar-
innar sé i sendiferðabifreið,
eða slíku farartæki, því erfitt'
hefur re.vnzt að miða hann út
og er sífellt skipt um staði.
Eru sendingar útvarps-'
stöðvarinnar einungis síðdegis
á þriðjudögum og er sent út á
FM-hylgju.
Ródesía:
ÞUSUNDIR
MANNA KVADDIR
í HERINN
Þúsundir hvítra Ródesíubúa
munu verða kvaddir í herinn í
dag til þess að verjast hugsan-
legum innrásum svartra manna
inn í landið frá Mosambique.
í gærdag fékk Ian Smith
stuðningsyfirlýsingu flokks
síns vegna þeirrar yfirlýsingar
hans að hann vilji sjálfur semja
við svarta menn í landinu.
Reg Cowper, varnarmála-
ráðherra landsins, sagði að
nauðsynlegt væri að grípa til
þessara herkvaðninga þar eð
sumar deildir hersins væru
orðnar mjög liðfáar og gætu
ekki hamlað gegn vaxandi
skæruliðastarfsemi við landa-
mærin að Mosambique.
Allir sem vettlingi geta vaidið meðal hvitra manna í Ródesíu hafa
nu verið kvaddir til herþjónustu.
•dJTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING
krónur
Þetta er verð pr. lítra á plastmálningu nú næstu daga.
Til í ýmsum Ijósum litum—einnig hvítt.
Stórlækkað verð til hagræðis öllum þeim sem eru að
BYGGJA
BREYTA
eða BÆTA
Lítið við í Litaveri
— það borgar sig
Hreyfilshiísinu, Grensásvegi 18
ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING - ÚTSALA - MÁLNING3*