Dagblaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. JANtJAR 197t
„Flúor gæti valdið fósturláti”
Engin ákvörðun
tekin um að
setja f lúor í
Gvendarbrunna
Það getur verið stórhættu-
legt að blanda flúor við drykkj-
arvatn nianna, ef marka má
grein í danska blaðinu Berl-
ingske Tidende sl. mánudag.
Segir þar að í kjölfar um-
ræðna um að blanda flúor við
drykkjarvatn, hafi víða um
heim, komið í ljós, að flúorinn
getur verið skaðlegur heilsu-
fólks.
Konur sem starfa á lækna-
skurðstofum, eiga meira á
hættu en aðrar að missa fóstur.
Hefur athugun á þessu nýlega
verið gerð í Danmörku, að sögn
danska blaðsins og víðar hafa
áður verið gerðar athuganir á
þessu atriði. Astæðuna fvrir
þessari háu fósturlátstíðni,
segja bandarískir og rússneskir
vísindamenn vera flúorsam-
setningu í nýjum deyfilyfjum.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um að blanda flúor i
drykkjarvatn Reykvíkinga, þótt
það hafi verið til umræðu af og
til um nokkurra ára skeið.
Þótt ákvörðun yrði tekin um
það í dag, að blanda drykkjar-
vatn borgarbúa með flúor, gæti
í fyrsta lagi orðið af því á næsta
ári, að sögn Þórodds Th. Sig-
urðssonar, vatnsveitustjóra í
Reykjavík, en vatnsveitan
myndi annast blöndunina.
,,Til þess að hægt sé að
blanda flúor í drykkjarvatn
allra borgarbúa, þarf að vera til
aðalæð, sem allt drykkjarvatn
fer I gegnum,“ sagði Þóroddur
er fréttamaður blaðsins ræddi
þetta mál við hann. ,,Sú æð er
ekki fyrir hendi ennþá, en það
er rétt að stefnt er að því, að
þessi möguleiki verði fyrir
hendi. Ekki aðeins svo hægt sé
að blanda flúor saman við,
heldur þarf að vera hægt að
mæla drykkjarvatnið á ýmsan
hátt og komast í aðalæðina. Þá
er þetta tiltölulega einfalt mál
og niá Setja flúorinn i vatnið
ýmist með vökva eða dufti,“
sagði Þóroddur Th. Sigurðsson.
-ÓV
Njótið birtu
í skammdeginu.
Einnig mikiö úrval minni heimilistækja.
(Hrærivélar, brauðristar, grill, kaffikönnur, hraðsuöukatlar,
straujárn, krullujárn, hárþurrkur, rakvélar o.þ.u.l.).
Komiö til okkar þegar þér hafið leitað annars staðar.
/A A A A. Ól a
Jóri Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Lrfsleiði? —
ekki aldeilis!
Einhverjir spekingar hafa
miklar áhyggjur af þeim mörgu
þúsundum, sem byggja Breiðholt-
ið, innanvert við Reykjavík.
Finnst þessum mönnum mörgum
hverjum, að í Breiðholtinu ríki
mikil eymd og vesöld, þar sé ekk-
ert mannlegt að finna við um-
hverfið, þar fái mannlíf vart þró-
azt á þann veg sem því beri.
Hvað um það? Þessi ungmenni
virðast njóta lífsins eins og vera
ber, kætast og eiga góða daga í
góðum félagsskap. Hitt er svo
annað mál, að Iengi má gott bæta.
1 Breiðholti hafa margar fjöl-
skyldur eignast góð híbýli, — og
síðan verða íbúarnir sjálfir með
tilstyrk borgaryfirvalda að skapa
hið mannlega og skemmtilega um-
hverfi og líf, sem gerir hverfið
gott hverfi til að lifa í. — DB-
mynd Sv. Þormóðsson.
Lögreglumannafélag Suðurnesja:
Stjórnin sprakk á
stuðningi við Hauk
Stuðningsyfirlýsing sú sem
stjórn og trúnaðarmannaráð Lög-
reglufélags Suðurnesja sam-
þykkti og sendi úl, vegna máls
Ifauks Guðmundssonar rannsókn-
arlögreglumanns, varð stjórn fé-
lagsins að falli. Kröfðust 47 fé-
lagsmenn L.S. að haldinn yrði al-
mennur félagsfundur um málið
og á þeim fundi varð sprengingin.
í tilkynningu félagsins um þann
fund, segir orðrétt:
„Sunnudaginn 23. janúar 1977
var, að kröfu 47 félagsmanna,
haldinn fundur í Lögreglufélagi
Suðurnesja, vegna yfirlýsingar
stjórnar- og trúnaðarmannaráðs
félagsins, og samskipti við fjöl-
miðla þar að lútandi, svo og bréf
sömu aðila til Jóns Eysteinssonar,
lögreglustjóra í Keflavík, dags.
14. janúar s.l., um sama málefni.
Fundurinn krafðist þess, að
formaður og þeir stjórnar- og
trúnaðarmannaráðsmeðlimir,
sem undir yfirlýsinguna og bréfið
rituðu, segðu þegar af sér.
Kjörin' var bráðabirgðastjórn
til þess að stjórna félaginu fram
að aðalfundi.
Fundurinn leggur áherzlu á, að
stjórnir félagsins birti ekki yfir-
lýsingar eða samþykktir í fjöl-
miðlum, nema um þær hafi verið
fjaliað á félagsfundi."
Fráfarandi formaður félagsins
er Skarphéðinn Njálsson, en for-
maður bráðabirgðastjórnarinnar
er Gústav A. Bergmann, lögreglu-
þjónn á Keflavíkurflugvelli og
ritari er Hjalti Sigurðsson.
-ASt.
Verkafölk og álögurnar
Skagamenn vilja
alls ekki bíða
„Þrátt fyrir að sannað sé að
afkoma atvinnuveganna hefur
verulega batnað og þjóðartekjur
aukizt, hefur kaupmáttur launa
nraðminnkað," segja félagar í
Verkalýðsfélagi Akraness. Á
fundi i félaginu var samþykkt
ályktun, þar sem skorað er á ASÍ
og Verkamannasambandið að
mæta þessari þróun með „raun-
hæfum aðgerðum, án tillits til
þess að tími kjarasamninga er
ekki útrunninn."
„Verkafólk getur ekki beðið
lengur eftir kjarabótum til að
mæta hinum gegndarlausu álög-
um stjórnvalda," segja verka-
menn í Verkalýðsfélaginu þeirra
á Skaganum. -JBP-