Dagblaðið - 28.01.1977, Síða 17
DAUBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. JANUAR 1977
JL£
(Norðaustanátt um allt land. 5—6
vindstig á annesjum fyrir noröan og
éljagangur en bjartara veður sunn-
anlands og heldur hægari vindur.
Frost um allt land. Víða 5—10 stiga
frost á láglendi.
Andlat
Br.vnjólfur Jóhannesson lézt 21.
jan. Hann fæddist að Litlu-Selja-
klöpp i Hrísey 8. nóv. 1891.
Foreldrar hans voru Jórunn
Jóhannsdóttir og Jóhannes
Jörundsson. Konu sinni, Sigur-
veigu Sveinbjarnardóttur, kynnt-
ist Brynjólfur á Árskógsströnd-
inni þar sem hann ólst upp. Þau
hjónin settust að í Hrísey og varð
átta barna auðið: Jórunn. Ásta,
Jóhannes (sem lézt fulltíða
ntaður), Sigtr.vggur, Sigurður.
Hallfríður, Sóley og Fjóla. Árið
1948 flutti Brynjólfur ásamt konu
sinni til Re.vkjavíkur en hún lézt
þar tveimur árum síðar. Brynjólf-
ur stundaði sjómennsku og var
sjómaður alla sína tíð.
Ingibjörg Jónsdóttir lézt 23. jan.
Hún fæddist að Álfhólum í Land-
eyjum 20. júlí 1887. Foreldrar
hennar voru Sigríður Sigurðar-
dóttir og Jón Nikulásson. Arið
1920 giftist hún Inga Gunnlaugs-
syni frá Kiðjabergi í Grímsnesi.
Þau fluttust til Danmerkur árið
1920 þar sem Ingi hafði verið við
nám. Eignuðust þau sitt fyrsta
barn, Sigurð, þar. Árið 1922 flutt-
ust þau heim og hófu búskap að
Bergþórshvoli í Landeyjum og
bjuggu þar til 1925. Fluttu þau
þá að Vaðnesi i Grímsnesi, þar
sem þau bjuggu í tuttugu ár.
Þeim var fjögurra barna auðið og
eru þau öll á lífi. Þau eru:
Sigurður. Gunnlaugur, Sigurjón
og Soffia. Inga lærði karlmanna-
fatasaum í Reykjavík. Ingibjörg
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Guðbjörn Júlíus Pétursson,
Arnarhóli, V-Landeyjum, lézt í
Landakotsspítala 27. jan.
Asgeir Stefánsson lézt á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri 25.
jan.
Kvenstúdentafélaq íslands
Hádegisverðarfundur verður naldinn laugar-
daginn 29. jan. f Lækjarhvammi. HótelSögu
og hefst borðhaldið kl. 12.30. Fundarefni:
Ingibjörg Benediktsdóttir. sakadómsfulltrúi.
fræðir um nokkur atriði varðandi áfengisíög-
gjöfina og framkvæmd hennar. Stjórnin.
Tónleikar í
Evrarbakkakirkju.
Næstkomandi sunnudag 30. jan. eru eitt
hundrað ár liðin frá fæðingu Sigfúsar Einars-
sonar, tónskálds. Sigfús var eins og kunnugt
er, einn af frumherjum í tónlistarmálum á
Islandi og hefur skilið eftir sig mikinn fjölda'
tónsmíða.
Sigfús var fædddur og uppalinn á Eyrar-
bakka. Því er ákveðið að afmælis hans skuli
minnast þar á sunnudag.
Tónleikarnir hefjast í Eyrarbakkakirkju á
vegum safnaðarins kl. 4 e.h. Sóknarprestur-
inn, sr. Valgeir Ástráðsson, mun flytja ávarp,
Sigrún Gísladóttir, dagskrárstjóri, flytur er-
indi um Sigfús Einarsson. Stúlknakór og
Kirkjukór Eyrarbakkakirkju munu syngja.
Elísabet Erlingsdóttir syngur einsöng og dr.
Hallgrímur Helgason mun leika einleik á
fiðlu við undirleik Glúms Gylfasonar. Organ-
isti kirkjunnar, Rut Magnúsdóttir, mun einn-
ig leika á orgel.
öll tónlistin sem flutt verður, er eftir Sig-
fús Einarsson. Aðgangur að tónlcikunum'
verður ókeypis.
Hoogoven-skákmótið íWijk aan Zee:
Sosonko og Geller
efstir og jafnir
— Friðrik og Guðmundur gerðu báðir jafntefli ílokaumferðinni
4. Kurajika: 7 vinningar
5. Friðrik: 6 vinningar
3. -9. Nikolac, Miles, Kavalek,
Böhm: 5 vinningar
10. Guðmundur: 4 vinningar
11. Ligterink: 3 vinningar
12. Barczay: 2'A vinningur.
-BS
Sovétmaðurinn Geller vann
Júgóslavann Nikolac eftir
langa og harða viðureign í loka-
umferð skákmótsins í Wijk aan
Zee. Þar með tryggði hann sér 8
vinninga og er þannig í 1.-2.
sæti ásamt Hollendingnum Sos-
onko.
Friðrik gerði jafntefi við
Kavalek, og Guðmundur við,
Böhm. Lokastaðan í mótinu er
þessi:
1.-2. Sosonko og Geller: 8 vinn-
ingar.
3. Timman: l'A vinningur
Hóskólatónleikar
Fjórðu Háskólatónleikar vetrarins verða
Áaldnir í Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut, laugardaginn 29. jan. 1977 og hefjast
kl. 17 e.h.
Ragnheiður Guðmundsdóttir, söngkona, og
Ólafur Vignir Albertsson, pianóleikari, flytja
sönglög eftir Grieg, Sinding, Cyril Scott og
Tchaikovsky. Þau flytja m.a. lagaflokkinn
Haugtussa eftir Grieg, við kvæðið Arne Gar-
borg. í þessum kvæðadálki segir frá skyggnri
sveitastúlku í Noregi. Bjarni Jónsson frá
Vogi þýddi kvæðabók Arne Garborgs og
nefndi hana Huliðsheima. Grieg gerði lög við
átta kvæði úr bókinni. Aðgangur er öllum
heimill.
Sovézkar kvikmyndir
Á næstu vikum og mánuðum efnir félagið t
MÍR, menningartengsl Islands og Ráðstjórn-
arríkjanna, til sýninga fyrir almenning á
nokkrum sovézkum kvikmyndum, gömlum og
nýjum. Verður fyrsta sýningin í Laugarás-
bíói, laugardaginn 29. janúar kl. 13.30. Sýnd
verður ein kunnasta kvikmynd, sem gerð
hefur verið í Sovétríkjunum síðustu árin:
„Og hér ríkir kyrrð í dögun“ (A sori sdés
tikhíe). Leikstjóri er Stanislaf Rostotskí.
Kvikmyndin er byggð á samnefndri skáld-
sögu eftir Boris Vasilíéf. Sagan gerist á dög-
um síðari héimsstyrjaldarinnar, í maímánuði
1942 og segir frá fimm ungum konum, sem
gegna herþjónustu í loftvarnarsveit að baki
víglínunnar í Rússlandi og liðþjálfa þeirra,
sem er karlmaður. Þau sex eru send frá
bækistöðvum sínum, inn í skóginn til að leita
þar uppi og hefta frekari för þýzkra fallhlíf-
arhermanna, sem lent hafa í sovézku landi.
Kvikmyndin ,,Og hér ríkir kyrrð í dögun“ var
gerð árið 1972 og hefur hlotið góða dóma þar
sem hún hefur verið sýnd.
Nú sáu þeir sdl á Eskifirði:
SÓLARKAFFI0G
PÖNNUKÖKULYKT
„t dag ilmar allur Eskifjöróur
af pönnukökum og óvenjulega
góðum rjóma frá Egilsstöðum,"
sagði Regina Thor, fréttaritari
Dagblaðsins á Eskifirði. „Sólar-
kaffi er nú drukkið í hverju húsi.
Við sjáum sólina hérna fyrst hinn
13. janúar, ef loft er þá óskýjað.
En hér hefur verið þungbúið loft
þangað til í dag að blessuð sólin
skín,“ sagði Regína.
Vinna byrjaði aftur í gær í
Hraðfrystihúsinu á Eskifirði en
þar var ekki vinnufært á mánu-
dag og þriðjudag vegna rafmagns-
bilunar.
Nú gengur loðnubræðslan vel.
Hún stöðvaðist um eina klukku-
stund í nótt vegna viðgerðar. Um
hana vissi verkstjórinn fyrirfram
svo að ekki kom að sök.
Tveir bátar lönduðu í dag,
Sigurður RE 600 tonnum og Eld-
Ekid á hjólhýsi
Ekið var á hjólhýsi í heim-
keyrslu við Hiíðarveg 20 í Kópa-
vogi í gær, sennilega á tímabilinu
milli kl. 1 og 3 síðdegis. Biður
Iögreglan hugsanlegasjónarvotta
að hafa samband við lögregluna
sem fyrst.
borgin 450 tonnum og getur verk-
smiðjan ekki tekið á móti meiru
eiris og er.
„Já, nú er gott að þeyta rjóm-
ann frá Egilsstöðum, allt annað
en jólarjóminn," sagði Regina,
„og blessuð loðnulyktin finnst
ekki fyrir kaffi- og pönnukjiku-
ilminum.“ BS.
Athugasemd:
Flóttinn ekki
skipulagður
„utan vallar”
Alvarleg missögn var í
frétt á bls. 17 í blaðinu í gær,
Sagði að afar líklegt væri að
flótti Christophers Barbars
Smith úr fangageymslunni á
Keflavíkurflugvelli hefði
verið skipulagður utan vall-
ar. Þetta átti að sjálfsögðu
að vera utan fangelsisins.
DB biðst velvirðingar á þess-
ari missögn.
-ÓV.
Iðnaðarhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði óskast, helzt með
sýningarglugga.
Uppl. ísíma 17950og eftirkl. 7 í
síma 20397
DAGBLAÐIÐ ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐIÐ
SIMI27022
ÞVERHOLTI 2
i
Til sölu
i
Tveir rafmagnsþilofnar
til sölu mjög ódýrt. Uppl. í síma
52397.
Til sölu som nýtt
Linguafón-námskeið í ensku.
Uppl. í síma 37396.
Sjónvarp, springdýnur,
sófasett, uppþvottavél til að hafa
á borði og páfagaukur og búr til
sölu. Uppl. í síma 33950.
Til sölu fr.vstikista,
380 lítra, á kr. 90 þús„ og borð-
stofuhúsgögn á 350 þús. Uppl. í
síma 16680.
Oska eftir
ísskáp og kommóðu. Til sölu á
sama stað 5 hansahillur og 1
skápur. Uppl. í síma 32169.
Til sölu
vel með farin 4ra hellna Rafha
eldavél með hitahólfi. Ennfremur
tvöfaldur eldhúsvaskur úr stáli
með borði. Uppl. í Síma 35120
eftir kl. 18.
3ja sæta sófi og eldhúsborð
til sölu. Uppl. í síma 21926.
Búsióð til sölu,
vegna flutninga
72641.
úr landi. Sími