Dagblaðið - 07.02.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 07.02.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1977. I J:Z íþróftir Bþróttir Iþróttir Iþróttir D BUBBIKASTAÐISÉR FRAM OG SKALLAÐI í MARKIÐ! Kom inn fljótt íleik Celtic og Hibernian og skoraði strax Pétur, svar Rangers við Shuggie. Celtic fékk hornspyrnu á 20. mín. í leiknum gegn Hibernian á Parkhead á laugardag. Johnny Doyle tók spyrnuna, sem var of kraftmikil og knötturinn fór alveg yfir á hinn kantinn. Þar náði Poul Wilson honum, lék upp að endamörkum og gaf fyrir. Doyle skallaði inn í teiginn — og Jóhannes Eðvaldsson kastaði sér fram og skallaði knöttinn óverjandi í mark. Akaflega fallegt mark og yfir 30 þúsund áhorfendur fögnuðu marki Jóhannesar mjög. Þetta var fyrsta mark Celtic í leiknum og sigur vannst 4-2. Celtic hefur nú örugga forustu í úrvalsdeildinni. Roddy MacDonald tognaði á æfingu á miðvikudag — en var talinn hafa náð sér á laugardag. Byrjaði því í leiknum gegn Hibernian, en ég var varamaður, sagði Jóhannes Eðvaldsson, þegar Dagblaðið ræddi við hann í gær Við hjá Standard náðum loks ágætum leik í gær og sigruðum CS Brugge 3-1 í Liege. Það var góð tilbreyting eftir slaka Ieiki að undanförnu, sagði Ásgeir Sigur- vinsson í gær. Standard er í 6. sæti og hefur enn möguleika í UEFA-keppnina. Riedel og Tater skoruðu fyrir Standard í f.h. og staðan í leikhléi var 2-1. í s.h. skoraði Helmut Graf 3ja markið. Völlurinn í Liege er ákaflega slæmur, eitt drullusvað. Hins vegar tóku meiðslin sig fljótt upp hjá MacDonald — og eftir 16 mín. haltraði hann af vellinum. Jóhannes tók stöðu hans og eftir aðeins fjórar mínútur hafði hann skorað fyrsta mark Celtic á snjall- an hátt. Tíu mín. síðar skoraði Ronnie Glavin annað mark Celtic eftir undirbúning Joe Carig, en á 37. mín. skoraði Smith fyrra mark Celtic. Leikurinn var bráðskemmtilegur og lið Celtic gaf tóninn. Á 57. mín. skoraði Craig 3ja mark Celtic og liðið komst í 4-1 á 72. mín.. þegar Glavin skoraði eftir undirbúning Jóhannesar og Craig. 5 min. fyrir leikslok skoraði McLeod annað mark Hibernian. Við sigurinn náði Celtic tveggja stiga forustu í úrvalsdeildinni. Hefur 28 stig, en hefur þó leikið tveimur leikjum minna, en þau lið, sem eru í næstu sætum. Ásgeir var ánægður með sinn hlut í leiknum og sagði enn- fremur, að Guðgeir Leifsson hefði komið inn hjá Charleroi í síðari hálfleik. Liðið vann góóan sigur á Antwerpen með mörkum Gebauer og Jacobs. Guðgeir átti ágætan leik. Þá sigraði Union Diest 1-0 á heimavelli og er aftur í toppnum í 2. deild. Marteinn lék allan leikinn, en Stefán Halldórs- son fyrri hálfleikinn, en marka- hæsti maður liðsins kom í hans Rangers og Aberdeen, sem hafa 26 stig. Þjálfari Celtic, Dave MacParland, sagði við mig eftir leikinn, að hann hefði verið ánægður með frammistöðu mína, sagði Jóhannes Eðvaldsson. Þess má geta, að skozku blöðin hafa að undanförnu mjög látið i það skína, að MacParland verði fram- kvæmdastjóri Celtic, þegar þessu leiktímabili líkur. Talið nokkuð víst, að Jock Stein dragi sig þá í hlé. MaePaland hefur verið hægri hönd Stein i vetur — og hlotið mikið lof. Hann sér um allar æfingar Celtic-liðsins. Jóhannes tók stöðu MacDonald sem miðvörður — en hafði mun meira frjálsræði, en Pat Stanton, sem var aftasti maður varnarinnar, og tók því talsvert þátt í sóknaraðgerðum Celtic. I skozku blöðunum í gær fengu þeir McGrain, Latchford og stað í s.h. Urslit í 1. deild urðu þessi: Beerschot — Molenbeek 2-2 Standard — CS Brugge 3-1 Courtrai — Malinois 0-0 Charleroi — Antwerpen 2-0 Lierse — Ostende 0-1 Lokeren — Beveren 1-0 FC Brugge — Liege 4-0 Beringen — Waregem 1-1 Anderlecht—Winterslag 4-2 Charleroi er nú með 15 stig og komið af mesta hættusvæðinu. Llynch hæsta stigagjöf í Celtic liðinu eða fjóra, en Jóhannes var með þrjá i einkunn ásamt Glavin, Aitken, Doyle, Craig og Stanton. Wilson og fyrirliðinn Kenny Dalglish fengu tvo. I kvöld leikur Celtic á Parkhead, heima- velli sínum, gegn Hearts í úrvals- deildinni og taldi Jóhannes mikl- ar líkur á. að hann héldi stöðu sinni. Pétur — svar Rangers við Shuggie — var skrifað í eitt Glasgow-blaðið i vikunni. Þar var sagt frá því, að eftir ábendingu Alberts Guðmundssonar, sem eitt sinn lék í framlínu Rangers- liðsins, hefði Rangers náð i Pétur Pétursson frá Akranesi til sín sem svar við Shuggie (gælunafn Jóhannesar Eðvaldssonar hjá Glasgow-búum) hjá Celtic. Við höfum áður rakið aðdraganda að utanför Péturs hér í blaðinu, en þess má geta, að hann mun leika með unglingaliði Rangers á móti í Milanó, sem hefst nk. þriðjudag. Fyrsti leikur Rangers þar verður við AC Milano og fræg félög taka þátt í mótinu. Ef við snúum okkur að skozku knattspyrnunni aftur á laugar- dag, þá urðu úrslit þessi í aðal- deildinni. Ayr-Rangers 0-2 Celtic—Hibernian 4-2 Dundee U.—Motherwell fr. Hearts—Kilmarnock 4-0 Partick—Aberdeen 2-1 Partic lék sinn fyrsta heimaleik frá því á jólum og vann Aber- deen. Melrose og Sommer skoruðu fyrir Glasgow-liðið, en Jarvie fyrir Aberdeen. Derek Johnstone og McLean skoruðu mörk Rangers í Ayr — og Gigson þrjú af mörkum Hearts. Þá vakti athygli að St. Mirren sigraði Dun- dee 3-1 í 1. d. St. Mirren stefnir Jóhannes Eðvaldsson — Búbbi á íslandi, Shuggie á Skotlanai — skoraði fallegt mark fyrir Celtic á laugardag. í úrvaldsdeildina. Hefur 36 stig. Clydebank er með 34 stig og Dundee 32. Staðan í . úrvals- deildinni er nú. Celtic 18 12 4 '2 41-19 28 Rangers 20 10 6 4 33-19 26 Aberdeen 20 j9 8 3 35-21 26 Dundee II 17 9 3 5 30-23 21 Hearts 21 5 8 8 31-34 18 Hibernian 20 3 12 5 18-22 18 Partich 18 5 6 7 27-24 16 Motherwell 18 5 5 8 29-33 15 Ayr 20 5 4 11 25-42 14 Aberdeen 20 2 6 12 22-42 10 Skíðamót um helgina Þrjú skíðamót fóru fram um helgina —tvö í Skálafelli og eitt á Húsavík. Sökum mikilla þrengsla í blaðinu i dag verður frásögn af mótunum að bfða til morguns. tslendingaliðin sigruðu öll í NÆRFELLT100 ÁR HEFUR Þaö var í Swiss áriö 1883, sem Herman Thorens hóf framleiöslu á fyrstu tónflutn- ingstækjum sínum. Fáir framleiöendur á þessu sviöi njóta nú meiri virðingar. Thorens verksmiöjan hefur um áratugaskeið fram- leitt plötuspilara fyrir kröfu- haröa tónlistarunnendur meö betri árangri en flestir aðrir. SAMVALDAR NESCO HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.