Dagblaðið - 12.02.1977, Qupperneq 1
I
4
4
4
I
4
\
\
3. ARG. — LAUGARDAGUR 12. FEBRtJAR 1977 — 36. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12, SIMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
fÍKRAFLA: ]
Mannvirkiö kostar
hvert mannsbarn í
landinu 35 þús. kr.
—baksíða
Afengisneyzla:
BRÁÐHOLL,
SÉALLS
HOFSGÆTT
Hingað til hefur okkur verið
talin trú um að neyzla
áfengra dr.vkkja væri óholl
og nætum því ósiðieg. Nú
hafa rannsóknir leitt í Ijós
að þetta er helber misskiln-
ingur. Neyzla áfengra
drykkja er bráðhoil — ef
hófs er gætt.
Sjá bls. 15.
Myndin er frá Sandbúðum.
(Viiheim Agústsson tók myndina)
Það hefði einhvern tíma þótt
saga til næsta bæjar að skreppa
inn að Sandbúðum á þorranum
og vera ekki nema rúma 11
tíma í ferðinni.
Þeir voru að flytja veðurat-
hugunarfólkinu póst og
nauðsynjar, fimm-
menningarnir, sem óku vél-
sleðum sínum inn á öræfin
síðastliðinn þriðjudag.
Farið var frá Akureyri kl. 10
um morguninn og ekið sem ieið
liggur inn Garðsárdalinn. Færi
var hið bezta og vetrarsólin lék
við ferðalangana, þó frostið
væri 10 gráður.
Eftir rúmlega tvo tíma var
komið í Sandbúðir. Um 100 km
vegalengd lá að baki.
Eftir nokkra hvíld í góðu
yfirlæti var haldið inn á Jökul-
dal í skoðunarferð.
Til Akureyrar var komið
aftur kl. 9.20 um kvöldið eftir
hressandi og skemtilega öræfa-
ferð.
F.Ax.
H jölreiðamenn á ferli áþorranum:
i — Það
JmgSmExjKr \ . ÆmFi er
hollt
í "iii' og
l §mfF ÉiMWf. - ödýrt
fc. \ að
hjöla
-bls.6
Hefur landlæknir sönnunar-
gögn í höndum gegn læknum?
Nokkrir þeirra hafa verið sakaðir um útgáf u lyfseðla á sterk vímulyf gegn peningagreiðslum
„Eg hef gert þær ráðstafanir
sem landlæknisembættinu ber
að gera samkvæmt lögum varð-
andi þessi ummæli," sagði Ölaf-
ur Ólafsson landlæknir er DB
innti hann álits á orðum
Stefáns Jóhannssonar félags-
ráðunautar á Vifilsstöðum
Stefán sagði m.a. á blaða-
mannafundi „að hann áteldi
lækna fyrir hömlulitla útgáfu
lyfseðla á sterk vímulyf, sem
margar sögur væru um að hægt
væri að fá gegn ákveðnu
gjaldi“. Annað svar við þessum
orðum Stefáns en hér í upphafi
er getið vildi landlæknir með
engu móti gefa.
„Landlæknir hafði strax sam-
band við mig eftir að þessi um-
mæli voru eftir mér höfð i fjöl-
miðlum," sagði Stefán Jóþanns-
son f viðtali við DB. „Bað hann
mig að koma til fundar við sig
mánudaginn 31. janúar en um-
mælin voru viðhöfð á blaða-
mannafundi 27. janúar. Um-
mæli mín voru hvergi í fjöl-
miðlum rétt eftir mér höfð —
nema í Dagblaðinu. Þess vegna
svara ég DB nú en hef neitað
öðrum fjölmiðlum um að ræða
málin frekar í bili.
Á þessum fundi með land-
lækni lagði ég fram málskjöl
mín og tel að ég hafi sannað
fyrir honum ummæli mín,“
sagði Stefán.
„Mér bar starfs míns og um-
mælanna vegna að standa við
mín orð fyrir landlækni. Með
þau skjöl, sem ég afhenti land-
lækni ljósrit af, tel ég að ég
hafi gert hreint fyrir minum
dyrum,“ sagði Stefán.
Ekki vildi Stefán kveða upp
úr um það hversu margir lækn-
ar hefðu verið nefndir I skýrsl-
um hans en þeir munu vera
nokkrir.
Eftir því sem DB kemst næst
eru þau lyf, sem hér um ræðir
og læknar eru ásakaðir fyrir að
gefa lyfseðla út á gegn
ákveðinni greiðslu, valium (10
milligrömm) og ýmis skyld lyf.
Er þar hægt að nefna
diazepami (10 mg ). Af öðrum
iyfjum má nefna mepumal-
natrium, cloral og dobicin. -ASt.