Dagblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 12.02.1977, Blaðsíða 24
Negri vetrarmaður á íslandi: Óttast mest dýpt snjó- skaflanna Það þykir tíðindum sæta og er sjálfsagt einsdæmi á íslandi að Afríkunegri er nú vetrarmaður á bæ einum í Þistilfirði. Blaðið Dagur á Akureyri greinir frá þessu nú í vikunni en þá birtist bréf frá fréttaritara Dags á Gunnarsstöðum í Þistil- firði. Þar segir m.a. svo: ,.Á einu búinu hér á Gunnars- stöðum. hjá ungum bónda, Jöhannesi Sigfúss.vni, sé ég dag- lega Afríkunegra í snjó. og mun það liklega heldur sjaldgæf sjón hér á landi. Hann er frá Gana og er vetrarmaður hjá Jóhannesi. Þetta er kátur maður og er að venjast störfunum. En einn hlut óttast hann, og það er dýpt snjóskaflanna sem hann álítur, að hann muni e.t.v. festast í og ekki komast upp aftur. Ganabúinn er landeigandi i heimalandi sínu, 32 ára gamall og er að búa sig undir kjötframleiðslu svína og sauða.“ -ASt. 23 ára gamli Will.vsjeppinn úr Barðastrandarsýslu flaug í gegnum nálaraugað. Þar var allt í góðu lagi. og Snorri skipt- ir um miða. Jeppinn er búinn að bera 23 slíka. DB-myndir Sv. Þorm. Nei, heyrðu mig, segir Snorri Sigurðsson skoðunarmaður. Spindilkúian hérna megin er slæm og hin er alveg ónýt. Þetta verður að laga strax. Og Moskinn fékk grænan miða. Bflaskoðunin 1977 erhafin: Krafla kostar 35 þúsund á hvert mannsbam miðað við lok þessa árs Það verða rúmlega 35 þús- und krónur á hvert mannsbarn i landinu eða 140 þúsund á hverja fjögurra manna fjölskyldu sem búið verður að leggja i Kröfluvirkj- un í lok þessa árs. Kostnaður er nú orðinn 6,4 milljarðar og um 1.4 eiga að bætast við í ár. ■ Þetta kemur fram í skýrslu vinnuhóps um Kröfluvirkjun tii iðnaðarráðune.vtisins. Eins og DB hefur skýrt frá má skilja greinargerð hópsins þannig að grænt ljós sé gefið fyrir áfram- haldandi framkvæmdum við Kröflu með sama hraða og ver- ið hefur. Þannig er áætlað að nauðsyn- legu verki vegna gangsetningar fyrri vélar verði lokið 31. marz og geti þá orðið ,,sett í gang“ um miðjan apríl. Fimm holur á að bora á kom- andi sumri. Þær holur, sem eitt- hvað hafa gefið hingað til, hol- ur 6, 7 og 10, eru taldar munu gefa 3-4 megavött, en þetta er aðeins um einn tíundi af því sem fyrri vélin getur framleitt við full afköst. Verið er að at- huga hvar ráðlegast sé nú að bora. Framkvæmdum við stöðvar- hús og gufuveitu verður haldið áfram af fullum krafti til að unnt verði að koma stöðinni í gang með þeirri gufu sem til- tæk er. Lagningu háspennulínu frá Kröflu til Akureyrar mun væntanlega ljúka um næstu mánaðamót. Gerð tengivirkis á Akureyri er næstum lok- ið.Þannig ætti að verða unnt að taka línuna í notkun í byrjun marz. -HH GRÆNN MIÐIEÐA HVITUR? — það getur verið erfitt að komast gegnum nálaraugað hjá þeim f bif reiðaefti rlitin u Annirnar og'biðraðirnar hjá Bifreiðaeftirlitinu eru nú byrjaðar. Bifreiðaskoðun ársins hófst 1. febrúar og í gær áttu allir bílar með númerin 1-3600 að hafa komið í Borgartún. Stíft er auglýst að mæti menn ekki með bíla sína á réttum tíma verði menn látnir sæta sektum og bifreiðar teknar úr umferð hvar sem til þeirra næst. DB ,leit við á skoðunar- planinu þar sem ríkti að venju einhver sérkennileg spenna, einhver blanda af ótta við að komast ekki í gegnum nálar- augað og sigurvissu og gleði þeirra sem nýjum bílum aka og ekkert amar að. Þeir skoða nú 400 bíla á dag og eru 6-7 menn við skoðunina samtímis. Flestir fengu hvíta miðann fyrir 1977, sem settur er í efra framrúðuhorn vinstra megin. Allmargir fengu græna miðann sem veitir frest til viðgerðar á einu eða fleiri at- riðum sem aðfinnsluverð þóttu. Örfáir misstu númerin og var lagt út i horn þar sem þeir. stóðu eins og yfirgefin hræ, all- ur glæsileiki löngu horfinn. Þarna kom margt til umræðu. Spindilkúlur voru farnar að gefa sig, aurhlífar vantaði eða menn fengu fyrir- skipun um að rífa aurhlífar af aurbrettum framhjóla. Virtust skoðunarmenn mjög misjafn- lega ákveðnir i slíkum skoðunum. Þarna bar að ýmsar samsetningar bílahluta. t.d. að dálítið þreytulegur Moskvitch hafði fengið flautu úr Volvo og greindi menn á um hvor bíllinn ætti að móðgast. Þarna kom 23 ára gamall jeppi norðan úr Barðastrandar sýslu. Hann flaug í gegn. enda nýþveginn og fægður og með mjúkan gang og allt í góðu lagi. Nýlegir bílar voru hins vegar með galla í stýrisútbúnaði og fleira. Þarna er sami erillinn og spennan og verið hefur undan- farin ár. Skilyrði skoðunar- manna breytast ekkert þótt hvert árið af öðru liði. En þarna á planinu eru ýmis örlög ráðin. Miðinn á að vera í efra fram- rúðuhorni vinstra megin. A lit- uðum rúðum lendir skoðunar- miðinn niðri undir miðri rúðu bíistjórum til ama. En þar skal hann vera samkvæmt skipun. örlög sem valdið geta straum- hvörfum bæði í ævi bíla og manna. -ASt. frýálst,óháð Hagblað LAUGARDAGUR 12. FEB, 1977 Vinnu- veitendur vilja viðræður — um „sameiginleg hagsmunamál” gagnvart ríkisvaldinu Vinnuveitendur skírskota til sameiginlegra hagsmuna þeirra og verkafólks í ýmsum efnum. Þeir vilja hefja viðræður við verkalýðshreyfinguna um með hvaða hætti aðilar vinnumarkaðs- ins geti komið fram „sameigin- lega gagnvart ríkisvaldinu“ í kjarasamningunum. Þeir segjast vænta stuðnings verkalýðshreyfingarinnar við óskir um afnám eða lækkun ýmissa opinberra álaga og gjalda* á atvi.nnureksturinn. Þeir kveðj- ast fúsir til að leggja lið tillögum sem miði að því að bæta hag hinna lægst launuðu. I því sam- bandi geti komið til athugunar aðgerðir á sviði skattamála, trygg- ingamála eða húsnæðismála, svo að dæmi séu nefnd. Sú kjarabóta- leið sé nú heppilegust. Viðræður um þetta ættu að hefjast hið fyrsta, segir í yfir- lýsingu framkvæmdastjórnar Vinnuveitendasambandsins frá í gær. Þar er undirstrikað að brugðið geti til beggja vona í efnahagsmálum, þótt ástandið hafi lagazt. Það skipti miklu að kjarabreytingar verði nú „innan þeirra marka, sem aukning þjóðartekna setur“. -HH. HARLEM GL0BE- TR0TTERS TIL ÍSLANDS í APRÍL? Harlem Globetrotters, hinn frægi körfuboltasirkus sem undanfarna áratugi hef- ur farið um heiminn og sýnt hinar ótrúlegustu listir með körfuboltann, hafa boþizt til að koma til islands og leika listir sinar. Körfuknattleikssam- bandið íhugar þessa dagana fjárhagshlið málsins en kostnaður er geysimikill, enda 30 mahns í flokknum. Ef af verður kemur Harlem- flokkurinn hingað í apríl- mánuði. -hsím,- Kaupiðhækkar um 2,5 prósent: Verðhækkunin miklu meiri en kauphækkunin Kaup hækkar almennt um 2,5 af hundraði 1. marz næstkomandi vegna verðhækkana. Þetta er lítið eitt minna en Dag- blaðið hafði spáð. Verðbólgan frá nóvemberbyrj- un til byrjunar febrúar varð 5,77 prósent. Verðhækkun varð á bú- vörum, fiski, kaffi, tóbaki, bensíni, áfengi og mörgum öðrum vörum og hitaveitu- og raf- magnstaxtar hækkuðu, svo og póst- og símagjöld. En svo var um samið í kjarasamningunum í fyrra að ýmsar hækkanir, svo sem á svonefndum vinnulið Verðlags- grundvallar búvöru og á áfengi og tóbaki, skyldu ekki taldar með þegar reiknuð væri kauphækkun- in sem af hækkun verðlagsins leiðir. Kauphækkunin er því 3,27% minni en verðhækkunin. -HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.