Dagblaðið - 14.02.1977, Síða 1
RITSTJÖRN SÍÐUMCLA 12, SÍMI 83322, AUGI.VSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Upp víst um smygl á
miklu magni af LSD
—stórhættulegt ofskynjunarefni selt unglingum hér—handtökur um helgina íffluiiefnamálinu
Tveir lögreglubílar, annar úr
Reykjavík og hinn úr Keflavík,
mættust á Keflavíkurveginum
síödegis í gær. Var ungur
maður fluttur yfir í Reykja-
víkurbílinn og síðan tekinn til
yfirheyrslu hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar vegna rannsóknar
sem þar stendur nú yfir. Var
piltinum sleppt undir kvöldið.
Fíkniefnadeildin staðfesti
þetta við DB í morgun.
Sex ungir menn, fimm Is-
lendingan og einn bandarískur
,,ferðamaður“, sitja nú í gæzlu-
varðhaldi vegna rannsókna á
fíkniefnamálum. Hafa þeir allir
áður komið við sögu þessara
mála hér. Var einn látinn laus á
laugardaginn og annar úrskurð-
aður í allt að 30 daga gæzlu-
varðhald í gær.
DB hefur fregnað að grunur
leiki á innflutningi á mörgum
kílóum af kannabis-efnum og
töluverðu magni af of-
skynjunarefninu LSD — lík-
lega meira magni en áður hefur
komizt upp um innflutning á.
-ÓV.
Svartolfuhækkunin:
„Hættum
ekki að lifa”
„Við hættum ekki að lifa vegna
þessarar hækkunar á svartoliu,"
sagði Jónas Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar hf., í viðtali
við DB. „Því er ekki að leyna að
við erum óhressir yfir svona
mikilli hækkun á stórum kostnað-
arlið hjá verksmiðju eins og
okkar,“ sagði Jónas. Hann bætti
við: „Annars hefur þessi hækkun
legið í loftinu og gerði það raunar
þegar verðlagt var án þess að mér
sé kunnugt um að hverju leyti var
unnt að taka tillit til hennar á
þeim tíma.“
„Loðnan er eflaust á vestur-
leið,“ sagði Jónas, „og ég get ekki
neitað þvi, að við förum að líta
eftir skipakomum." Allar verk-
smiðjur á Suð-Vesturlandi eru nú
í viðbragðsstöðu. 1 morgun var
von á fyrstu loðnunni til Grinda-
víkur eins og getið er í annarri
frétt hér í DB BS.
Lögreglu-
TThasar”
helgarinnar
Gæzluvarðhald að ósekju í Geirf innsmálinu:
Skaðabótamál gegn Hafnarfjarðarbæ
—hugsanlega samið um bætur úr ríkissjóði
„Skaðabótamál vegna
uppsagnar Einars Bollasonar
hjá Námsflokkum Hafnar-
fjarðar verður höfðað gegn
bæjarstjóra fyrir hönd bæjar-
sjóðs,“ sagði Ingvar Björnsson,
lögmaður Einars, í viðtali við
Dagblaðið. Lögmaðurinn
kvaðst á sínum tima hafa rætt
við Kristin Ö. Guðmundsson,
bæjarstjóra í Hafnarfirði, um
bætur vegna uppsagnar Einars
úr starfi forstöðumanns Náms-
flokka Hafnarfjarðar. Taldi
bæjarstjórinn, að nauðsyn
bæri til að dómstólar skæru úr
um skaðabótakröfu Einars á
hendur bæjarsjóði.
Ekki taldi lögmaðurinn vafa
á þvi að uppsögn Einars hefði
verið með þeim hætti að hún
væri skaðabótaskyld. Sem
kunnugt er var Einar Bollason
kennari einn þeirra fjögurra
manna sem sat í gæzlu-
varðhaldi að ósekju vegna
framburðar sakborninga í
Geirfinnsmálinu.
Varðandi kröfur á hendur
ríkissjóði vegna
gæzluvarðhaldsins vildi Ingvar
Björnsson ekki tjá sig. Taldi
hann einsýnt að lögmenn
þeirra manna, sem sættu
gæzluvarðhaldi að ósekju, biðu
þess að málið allt, fullrannsak-
að, yrði afhent ríkissaksóknara
tií frekari ákvörðunar. Gæfist
þeim þá kostur að skoða nánar
öll gögn málsins sem að þessu
atriði lúta.
„Að sjálfsögðu er samninga-
leið um bótagreiðslur alltaf
athuguð,“ sagði Ingvar Björns-
son lögmaður en sem fyrr segir
vildi hann ekki tjá sig frekar
um málið, hvorki bótafjár-
hæðir né önnur atriði.
I Sakadómi Reykjavíkur er
nú unnið að þvi að ganga frá
öllum gögnum Geirfinns-
málsins og niðurstöðum
rannsóknarinnar í hendur
ríkissaksóknara til ákvörðun-
artöku um frekari meðferð.
-BS
Þingmenn
rumskaí
stóriðju-
málum
— leiðari um óeðlilega
lágt rafmagnsverð
- bls. 10
•
Breytt stefna
Palestínuaraba
gagnvart
ísraelsmönnum?
Sjá erl. fréttir
ábls.6-7
•
Víst er
skíðasnjór
á Suðurlandi
DB heimsótti
Bláf jöllin ígóða
veðrinu
-Sjábls.8
ÓlafurH.
Jónsson
slasaðist
íMoskvu
— sjá íþróttir bls. 14