Dagblaðið - 14.02.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 14.02.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. FEBRUAR 1977. Kjallarinn Garðar Viborg kaupmáttur launa rýrnaði verulega á samningstímabilinu. Það gefst vonandi tækifæri til þess síðar að ræða þessi mál nánar og jafnframt bænatil- löguna, sem frá er greint að framan. Benedikt sagði jafnframt í ræðu sinni: „ísland er að verða láglaunasvæði". Hvað telja flutningsmenn tillögunnar, að kaup verka- og launafólks þyrfti að lækka mikið frá því sem nú er til að segja megi fullum fetum og með fullum rökum: „ísland er orðið lág- launaland." island er þegar orðið láglaunaland, það hef ég áður sagt hér í kjallaragreinum í Dagblaðinu. Eðvarð Sigurðsson þorði þó að viðurkenna það á Alþingi, þótt hann jafnframt væri að ,,rassskella“ sjálfan sig. Vissu- lega er höfuðsökin hjá sjálfri verkalýðsforystunni, hana hefur skort baráttuvilja. Blessuð samtryggingin Eftir stofnun Samtaka frjáls- iyndra hér í Reykjavík hófum við umræður á fundum um samtryggingu gömlu flokkanna, að þeir skiptu völdum innan þjóðfélagsins eftir föstum prósentureglum, og það gera þeir vissulega enn þann dag i dag. Nýtt land hóf skrif um „kerfið", sem væri sameining- artákn gömlu flokkanna og að það væri í reynd aflið sem stjórnaði þjóðarskútunni. Við töldum og teljum, að „kerfið" sem slíkt væri að drepa heilbrigt þjóðlíf og að flokksblöðin fylgdu sömu reglu og túlkuðu í blindni allt það, sem flokkarnir og flokksráðin fyrirskipuðu hverju sinni, svo að frjáls hugsun, tal og skrif væru á stöðugu undanhaldi í okkar lýðfrjálsa landi. Sannast sagna er yfirlýstum stefnumálum og hugsjónum flokka kastað fyrir róða til að þjóna sjálfu kerfinu. Flokks- blöðin fylgja dyggilega sömu reglu. En hvers vegna nú að skrifa um þetta margrædda samtrygginga-kerfi? Ástæða þess er sú, að kerfis- flokkarnir hafa aldrei viljað viðurkenna, að til sé nefnt sam- tryggingarkerfi. heldur séu hugsjónir flokkanna svo ólíkar sem nótt og dagur. En eins og áður sagði er ég og margir fleiri á öndverðum meiði og gerum engan mun á kerfisflokkum. Lokatakmark hvers flokks er það sama, að ná völdum og aðstöðu. Nú hefur það gerzt, sem sannar fyllilega okkar mál um það sem nefnt er samtrygging flokkanna. Tveir ungir menn, þeir Ólafur Ragnar Grímsson, og Baldur Óskarsson, sem einu sinni fyrir ekki svo löngu, voru í fararbroddi ungra framsókn- armanna, fengu ekki þann frama þar, sem þeir óskuðu, yfirgáfu þá hreyfingu og gengu í Samtök frjálslyndra og vinstri manna og svifu beint inn í innsta hring þeirra. Sá hringur var að vísu ekki stór, og þvi lítil von frama þar, og hugsjónir þeirra það stórar að þær rúmuðust ekki í svo litlum hring, og leituðu þeir því fljótt þaðan. Þeirgenguþá í Alþýðubanda- lagið og hoppuðu eins og byssu- brenndír beint inn í innsta hring þess, og þar reyna þeir að koma hugsjónum sínum á fram- færi. Og nú er um það talað, að Baldur Óskarsson verði innan langs tíma framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins. Forystu- menn þess hafi fundið ylinn af þeim hugsjónaeldi, sem í hon- um býr. Þessi saga er sögð til að sanna alþjóð það, að við höfum haft rétt fyrir okkur, sem höf- um talað um samtryggingu gömlu stjórnmálaflokkanna, ,,kerfið“ er eitt, en angar þess eru fjórir. Það eru stjórnmála- flokkarnir sem koma fram í fernu lagi, þegar kosið er til Alþingis, en tilgangur þeirra er sá, að á þann hátt er von til aukins styrkleika innan kerfisins, prósentuhlutföllin eru aflið sem gildir í skipta- reglunni, þegar völdum og aðstöðu er breytt innan þjóða- heildarinnar. Þannig er íslenzkt lýðræði í hnotskurn. Garðar Viborg fulltrúi. Góðir körfubílar til sölu Höfum til afgreiðslu strax eftirtalda körfubíla fró Englandi: 1. Ein SIMON D40 vökvakarfa árgerð 1969 á Morris-bil. 2. Fjórar SIMON U35 vökvakörfur árgerð 1968áMorris- bílum. 3. Ein SIMON LF7 vökvakarfa árgerð 1975 á Land-Rover jeppa. Hentugar fyrir hvers konar byggingariðnað, slökkvilið og margt fleira. Myndir á staðnum. Markaðstorgið, Einholti 8, sími 28590 (74575). 13 2...3=6 SÆTA ETTIÐ "MALLO n - á óvenju lágu verði miðaó við gæði, eða aðeins 162.000.- kr. og með staðgreiðsluafslætti aðeins 145.800.-kr. Mallo-sófasettið er vandað, efnismikið og þér getið valið um sex ólik munstur í áklæði. Litið inn í stærstu húsgagnaverslun landsins. Og það kostar ekkert að skoða. Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 28601 W GOLFTEPPI ^ f fyrir y heimili—stigahús—skrifstofur AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sími 30676 Flugfélag íslands býður upp á sérstakar helgarferðir allan veturinn fram undir páska: Ferðina og dvöl á góðum gististað á hagstæðu verði. Út á land, til dæmis í Sólarkaffið fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár- króki eða þorrablót fyrir austan, til keppni í skák eða í heimsókn til kunningja. Víða er hægt að fara á skíði. Suður til Reykjavíkur vilja flestir fara öðru hverju. Nú er það hægt fyrir hóflegt verð. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt.hæfi til að gera ferðina ánægjulega. Margir hafa notað helgarferðirnar og kunnað vel að meta. Gerið skammdegið skemmtilegt! Leitið upplýsinga hjá skrifstofum og umboðum um land allt. FWCFÉLAC ÍSLANDS INNANLANDSFLUG

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.