Dagblaðið - 14.02.1977, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 14. FEBRUAR 1977.
Elliheimili Eskif jarðar
8 milljón kr. hús
ofviða bæjarsjóði
Ágreiningur milli bæjarstjóra
og bæjarst jórnar sem ráðuneyti
verður að skera úr—vegna
annarra f járfrekra f ramkvæmda
,.Eg held að þessi undir-
skriftasöfnun hafi verið á rnis-
skilningi byggð, þótt kvenfélag-
inu ok öðrum hafi gengið gott
eitt til." sagði bæjarstjóri Eski-
fjarðar Jóhann Klausen. en 346
Eskfirðingar skrifuðu undir
kaup á Botnabraut 3a fvrir
dvalarheimili aldraðra eins og
sagt var frá i Dagbiaðinu á
föstudag.
Tillagan um kaupin var
samþvkkt af 4 bæjarfulltrúum
af 7 á fjárhagsáætlunarfundi á
fimmtudaginn og urðu miklar
hitaumræður um málið.
Jóhann kvað það rétt að
þegar atkvæðagreiðslu um fjár-
hagsáætlun hefði verið lokið.
hefði hann staðið upp og lýst
því yfir að þar sem naumleg
samþykkt bæjarstjórnar um
kaup á fasteigninni á Botna-
braut hefði í för með sér stór-
um meiri kostnað en gert hefði
verið ráð fyrir á gildandi fjár-
hagsáætlun og mvndi valda
röskun á fjárhag bæjarsjóðs,
hefði hann ákveðið að fella
ál.vktun þessa úr gildi um sinn í
samræmi við 31. grein sam-
þ.vkktar um stjórn bæjarmál-
efna Eskifjarðarkaupstaðar.
Jóhann kvað þetta mál hafa
haft langan aðdraganda sem
byrjaði á því að stofnuð var
nefnd árið 1975 sem safna
skyldi upplýsingum um hvern-
ig rekstri og byggingu dvalar-
heimilis skyldi háttað. í janúar-
mánuði 1976 gerði hefndin
ál.vktun um starfstilhögun sina
og sendi bæjarstjórn í marz
með sérstöku tilliti til þess að
ekki kæmi upp ágreiningur um
störf nefndarinnar og starfstil-
högun. Þetta var samþykkt í
bæjarstjórn. í nánu samstarfi
við Skipulag ríkisins og hús-
næðismálastjórn. voru gerðir
samningar við tæknideild um
hvernig skyldi staðið að undir-
búningi, bæði teikningu húsa
og skipulagningu svæðisins.
Þá sagði Jóhann að á síðast-
liðnu hausti hefði skotið upp
þeirri hugmynd að hentugt hús
fengist á Botnabraut 3a og hef-
ur hugmvndin verið til umræðu
í bæjarstjórn og bæjarráði.
Málinu var síðan vísað til
ákvörðunar dvalarheimilis-
nefndar og bæjarráðs og 4 af 6
sömdu ál.vktun þar sem ákveðið
var að halda sér við það sent
bæjarstjórn hefði lagt f.vrir í
marz.
Til þess að gera langt mál
stutt voru það 2 sjálfstæðis-
menn og 2 alþýðuflokksmenn
sem greiddu atkvæði með húsa-
kaupunum en 2 framsóknar-
menn og 1 alþýðuflokksmaður
voru á móti. Lá við að samstaða
í bæjarstjórn væri brostin fyrir
þessara hluta sakir.
Jóhann benti á. að þótt bjóða
hefði átt allt að 8 milljónum í
húsið á Botnabrautinni, yrði
margs konar aukakostnaður
þeim kaupum fylgjandi. Væri
þeUa bæjarsjóði ofviða eins og
sakir stæðu. Er þá sérstakega
haft í huga að bygging grunn-
skóla er nú á byrjunarstigi sem
mun kosta bæjarsjóð á annað
hundrað milljón kr.
EVI
DB-myndir Sveinn Þormóðsson
Fjóra lögreglumenn þurfti til
að handtaka eina konu
—hún sparkaði, barði, kýldi og virtist gædd forynjuafli
Lögreglumenn á
Arbæjarstöð ásamt ne.vðar-
hjálparsveit lentu i hasar helg-
arinnar á sviði lögreglúmál-
anna er kall barst urn aðstoð
frá Kaffistofu Fáks á svæði fé-
lagsins við Elliðaár. síðla dags á
laugardag. Þar voru nokkrir
menn og ein kona eitthvað við
skál og hafði konan gerzt mjög
erfið viðfangs. Þegar kallað
var á aðstoð lögreglu hafði ver-
ið brotið leirtau í nokkrum
mæli í kaffistofunni svo og velt
unt borðum og konan hafði
gerzt mjög uppivöðslusöm og
meðal annars slegið starfsstúlk-.
ur kaffistofunnar.
Koma lögreglumannanna
boðaði engan frið í samkvæm-
inu. heldur kannski þvert á
móti. Fór svo að þarna uröu
átök sem sjaldgæf eru og lauk
þeim svo að einn lögreglumann-
anna er sennilega fingurbrot-
inn.
Ekki er enn Ijóst hvert var
upphaf ófriðarins í kaffistof-
unni i Faxabóli. en svo heitir
svæði Fáks við Elliðaárnar og
kaffistofan er eins konar mið-
depill svæðisins. Eitthvert vín
mun hafa verið haft um hönd
og jók það á skaphita manna og
konunnar herskáu.
Sáttatal lögregluntanna bar
engan árangur og voru húfur
slegnar af þeim og tekið ill-
þyrnilega til þeirra á annan
hátt. Urðu þarna átök milli
fólksins svo að blóð tók að
renna og allt æsti þetta spennu
augnabliksins:
Svo fór að lögreglumenn
undir forvstu varðstjóra Arbæj-
arlögreglunnar ákváðu að
rýma kaffistofuna. Gekk það
engan veginn átakalaust og erf-
iðust viðureignar var unga kon-
an. Re.vndist hún búa yfir
óvenjulegu afli og þurfti
margra manna átök til að koma
henni í lögreglubílinn. Félagar
hennar urðu sumir fegnir skjóli
lögreglubílanna eftir átök við
hana áður og eftir að lögregl-
una bar að garði. Konan notaði
jafnt hnúa sem fótlimi og kom
ýmsum höggum og tökum á
nærstadda, einkennisklædda
sem óeinkennisklædda. Ljós-
myndari DB sem þarna bar að
garði varð einnig fvrirkynngi-
afli hennar. en af ljósmyndavéi
hans sneri hún linsuna. Svipuð
átök upphófust er koma átti
konunni i fangageymslu og öll
eru átökin við konuna með
þeim illvígari sem lögreglu-
menn hafa komizt í upp á síð-
kastið.
Kona þessi hefúr áð'ur gerzt
uppivöðslusömí Faxabóli, en þá
tökst lögreglumönnum að sefa
niður ofsa hennar án átaka.
Átök sem þessi eru afar sjald-
gæf á svæði Fáks og lög-
reglumenn segja að það sé
ekki nema örlítið brot félags-
manna Fáks sem þeir þurfi að
hafa afskipti af. -ASt.
Útafakstur og eyðilagðir
bflar á Hafnarf jarðarvegi
Þrír ungir menn slösuðust er
bíll þeirra fór út af Hafnar-
fjarðarveginum kl. 20.30 á laug-
ardagskvöld. Ökumaðurinn var
á leiðinni suður Reykjanes-
braut og ætlaði að beygja inn í
Þúfubarð en bíllinn fór yfir
gatnamótin og lenti ofan í gjótu
sem er þar.
Billinn skemmdist mikið og
eins og f.vrr segir slösuðust allir
þrir sem í honum voru og einn
það mikið að hann var lagður
inn á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans.
A sunnudagsmorgun rétt fyr-
ir klukkan átta ók maður frá
Hafnarfirði áleiðis til Re.vkja-
víkur. Er hann var kominn á
móts við Arnarnes lenti bifreið
hans út af veginum og á ljósa-
staur. Staurinn stóð eftir
óskemmdur en bifreiðin var
gjöreyðilögð. Ökumaðurinn
sem var einn í bílnum slasaðist
en grunur leikur á að Bakkus
hafi þarna verið með í ferðinni.
A.Bj.
Tóbaki fyrir hálfa milljón stolið
Tóbaki f.vrir 450-500 þúsund
krónur var stolið úr verzlun-
inni Krónunni í Mávahlíð að-
faranótt sunnudags. Brotizt var
inn meö þeiih hætti að stungin
var upp kjallarahurð. Málið er í
rannsókn hjá lögreglunni.
A.Bj.
Yfirbuguð af ofurefli er konan herskáa borin í lögreglubílinn.
Þessi varð feginn skjóiinu í lögreglubilnum eftir að hafa orðið
undir í átökum er á staðnum urðu. Hestarnir voru nálega þeir einu
sem héidu ró sinni.