Dagblaðið - 14.02.1977, Síða 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1977.
<S
27
Utvarp
Sjónvarp
Útvarp kl. 21,30: Útvarpssagan
Saga úr rökkurheimi
Kaupmannahafnar
„Þetta er ákaflega raunsæ og
djörf saga og þar koma fyrir
margar persónur sem búa við
þjóðfélagslega eymd, misskilin
börn og útskúfuð af fullorðnum,"
sagði Nína Björk Árnadóttir
skáldkona, sem þýðir og les út-
varpssöguna Blúndubörn, eftir
dönsku skáldkonuna Kirsten
Thorup.
Fyrsti lesturinn er í kvöld kl.
21.30.
..Sagan gerist i rökkurheimi
Kaupmannahafnar. Tvær ungl-
ingsstúlkur lenda á upptökuheim-
ili eftir að hafa framið morð._Það
gerist ákaflega margt glæfralegt í
sögunni, hún sýnir okkur skugga-
hliðar lífsins.
Sagan gerist á okkar dögum og
mér finnst hún eiga sterkt erindi
til okkar hér á Islandi nú,“ sagði
Nína Björk.
Sagan heitir Baby á frummál-
inu. Danska skáldkonan Kirsten
Thorup er fædd árið 1942 og er
mjög þekkt í heimalandi sínu,
bæði fyrir ljóð sín og smærri
skáldsögur. Árið 1974 fékk hún
hin eftirsóttu Otto Gjeldstedverð-
laun. Kirsten hefur skrifað kvik-
myndahandrit að kvikmyndinni
Den dobbelte mand, sem hefur
vakið mikla athygli.
— Hvað ert þú sjálf að gera um
þessar mundir?
„Það kemur út ný ljóðabók eft-
ir mig eftir hálfan mánuð hjá
Máli og menningu. Það eru nú
orðin ein fimm eða sex ár síðan
síðasta ljóðabókin mín kom út. 1
Mánudagur
14.febrúar
Útvarp kl. 8,00:
Morgunstund barnanna
„Briggskipið
Blálilja”
Guðni Kolbeinsson les í morgun-
stund barnanna þessa viku, eigin
þýðingu sögunnar Briggskipsins
Blálilju eftir Olle Mattson.
20.00 Fróttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson
21.05 Smábœjarkonan. Breskt sjónvarps-
leikrit. byggt á leikriti eftir Ivan
Túrgenéff. Leikstjóri Marc Miller.
Aðalhlutverk Gwen Watford. Derek
Francis og Michael Denison. Leikur-
inn gerist á heimili hjónanna Alexeis
og Daryu. en hann er embættismaður
í lágri stöðu í smábæ. Eiginkonan er
frá St. Pétursborg og leiðist vistin úti
á landi. Dag nokkurn kemur hátt-
settur maður í heimsókn til þeirra.
Þýðandi Bríet Héðinsdóttir.
21.55 Svalt er á selaslóö. Vetur hjá heim-
skautaeskimóum. Hin fyrri tveggja
bresk-kanadiskra heimildamynda um
Netsilik-eskimóana í Norður-Kanada.
í þessari fyrri mynd er fylgst með
eskimóunum að sumarlagi, en sumr-
inu er varið til undirbúnings löngum
og köldum vetri. Síðari myndin lýsir
lífi tskimóanna að vetrinum og verður
sýnd mánudaginn 21. febrúar.
Þýðandi og þulur Guðbjartur Gunn-
arsson.
22.45 Dagskrárlok.
CITROENA
— alltaf á undan
*
Höfum í umboðssölu eftirtalda
Citroen bfla
1975 CX 2000 11 þ.km kr. 2.500.000
1975 D.super 20 þ.km kr. 2.000.000
1974 D.super 37 þ.km kr. 1.800.000
1974 D.super 50 þ.km kr. 1.700.000
1974 D.special 11 þ.km kr. 1.700.000
1971 D.special 105 þ.km kr. 850.000
1967 I.D. 165 þ.km kr. 450.000
1974 G.S. Club 25 þ.km kr. 1.250.000
1974 G.S. Club 59 þ.km kr. 1.150.000
1974 G.S. Club station 22 þ.km kr. 1.370.000
1974 G.S. Club station 50 þ.km kr. 1.300.000
1973 G.S. Club station 78 þ.km kr. 1.030.000
1972 G.S. 1015 80 þ.km kr. 700.000
1971 G.S. 1015 54 þ.km kr. 650.000
1975 Ami 8 20 þ.km kr. 1.100.000
1974 Dyane 6 25 þ.km kr. 850.000
Af öðrum gerðum 1975 Peugeot 504 dísil 98 þ.km kr. 1.700.000
1973 Mazda 818 67 þ.km kr. 800.000
1971 Renault 12 station 74 þ.km kr. 650.000
1971 VW 1302 80 þ.km kr. 600.000
Globusi
LÁGMÚLI 5 - SÍMI 81555
CITROÉN
þessari nýju bók eru ljóó sem
ekki hafa birzt áður.
Ég er núna að skrifa leikrit. Ég
hef einnig verið að skrifa brúðu-
leikþátt sem væntanlega verður
sýndur á Kjarvalsstöðum í vor,“
sagði Nína Björk.
Leikrit hennar hafa verið sýnd,
tveir einþáttungar í Tjarnarbæ
fyrir nokkrum árum, og Fóta-
prent var sýnt i Iðnó. Nína Björk
hefur einnig gert sjónvarpsleik-
ritið Hælið, sem endursýnt var í
sjónvarpinu í maí sl. Það leikrit
var einnig sýnt á Norðurlöndun-
um og gerður góður rómur að þvi
hvarvetna.
Útvarpssagan sem Nína Björk
byrjar að lesa í kvöld er á dag-
skránni á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum kl. 21.30 og
eru þetta sautján lestrar i allt.
A.Bj.
Nína Björk Árnadóttir við vinnu
sína. Ný ljóðabók hennar kemur
eftir hálfan mánuð og nú er hún
að skrifa Ieikrit.
Mánudagur
14. febrúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Viðvinnuna. Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Móöir og sonur"
eftir Heinz G. Konsalik. Bergur Björns-
son þýddi. Steinunn Bjarman les (4).
15.00 Miðdegistónleikar: íslenzk tónlist. a.
„Endurskin úr nörðri", hljómsveitar-
verk eftir Jón Leifs. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur; Páll P. Pálsson
stjórnar. b. „Helga fagra“, laga-
flokkur eftir Jón Laxdal við texta
Guðmundar Guðmundssonar. Þuríður
Pálsdóttir syngur; Guðrún Kristins-
dóttir leikur á píanó. c. „Draumurinn
um húsið“, tónverk eftir Leif Þórar-
insson. Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur; Páll P. Pálsson stjórnar.
15.45 Um Jóhannesarguðspjall. Dr. Jakob
Jónsson flytur níunda erindi sitt.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15:
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Tónlistartími bamanna. Egill Frið-
leifsson sér um tímann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson
flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Erna
Ragnarsdóttir innanhússarkitekt
talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.25 Iþróttaþáttur. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
Þriðjudagur
15. febrúar
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00
Morgunbnn , kl. 7.50. Morgunstund
bamanna kl. 8.00: Guðni Kolbeinsson
heldur áfram lestri sínum á sögunni
„Briggskipinu Blálilju“ eftir Olle
Mattson (6). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfróttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða.
Hin gömlu kynni kl. 10.25: Valborg
Bentsdóttir sér um þáttinn. Morgun-
tónloikar kl. 11.00.
12.00 uagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
12.25 Veðurfregnir
og
fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleik-
ar.
14.30 Þeim var hjálpaö. Sæmundur G.
Jóhannesson ritstjóri á Akureyri
flytur erindi.
15.00 Miödegistónleikar. Sinfóníuhljóm-
sveitin í Chicago leikur Sinfónísk til-
brigði eftir Hindemith um stef eftir
Weber; Rafael Kubelik stjórnar.
Konunglega fílharmoníusveitin í
Lundúnum leikur „Flórída“, hljóm-
sveitarsvítu eftir Delius; Sir Thomas
Beecham stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn:
17.30 Litli barnatíminn. Finnborg Schev-
ing stjórnar tímanum.
17.50 Á hvítum reitum og svörtum. Guð-
mundur Arnlaugsson flytur skákþátt.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Vinnumál. Arnmundur Backman og
Gunnar Eydal lögfræðingar stjórna
þætti um lög og rétt á vinnumarkaði.
20.00 Lög unga fólksins. Ásta R.
Jóhannesdóttir kynnir.
20.50 Aö skoöa og skilgreina. Kristján E.
Guðmundsson og Erlendur S. Baldurs-
son sjá um þátt fyrir unglinga.
21.30 Ungverskur konsert fyrir fiölu og
hljómsvoit op. 11 eftir Joseph Joachim
Aaron Rosand og Sinfóniuhljómsveit
ríkisútvarpsins í Lúxemborg leika.
Okkar þilplötugeymsla
er upphituð
Þilplötur eru auövitað meðal alls
þess byggingarefnis sem við bjóðum. En
við geymum plöturnar í fullupphituðu hús-
næði. Það meta þeir fagmenn mikils, sem
úr þeim vinna.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
ES Y w\%
í
K0PAV0GS
NYBYLAVEGI8 SIMI:41000