Dagblaðið - 01.03.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÍXÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1977. 5
Skuldir ríkissjóðs jukust
um 500 milljónir í desember
- skýrir það aukna seðlaprentun í desember?- staða ríkissjóðs 3 mill jörðum lakari en að var stef nt
bankann um 1500 milljónir á
síðasta ári í stað þess að endur-
greiða 1400 milljónir. Staða
ríkissjóðs og ríkisstofnana
gagnvart Seðlabankanum varð
því um 3 milljörðum króna lak-
ari um síðustu áramót en að var
stefnt.
Engu að síður full.vrðir fjár-
málaráðherra að fjárhagsáætl-
un ársins 1976 hafi slaðizt.
-JFM-
.... w
Ef skoðaðir eru reikningar
Seðlabankans frá 1976 ber hvað
hæst skuldir ríkissjóós og ríkis-
stofnana við bankann.
Rikissjóður skuldaði i nóv-
ember sl. 10.917 milljónir
króna en i desember hafði
skuldin aukizt í 11.418 milljón-
ir. M.ö.o., ríkissjóður jók skuld
sína urn 500 milljónir kr. í des-
ember.
Þá eru ótaldar skuldir ríkis-
stofnana við Seðlabankann.
Þær jukust úr 847 milijónum í
nóvember í 2.818 milljónir í
desember. Er þetta skulda-
aukning ríkisstofnana sem
nemur 1971 milljón króna á
einum mánuði.
Eins og fram kom í DB í
siðustu viku nam aukning
seðla í umferð um 500 milljón-
um króna í desember. Hér eru
nefndir aðeins tveir liðir af
mörgum sem gætu að einhverju
leyti átt sök á þessari auknu
seðlaprentun.
Ýmsum kynnu nú að koma í
hug afdrif þýzka marksins eftir
gengishrunið mikla í stríðslok.
Þá var einmitt brugðist á það
ráð að prenta nýja seðla við-
stöðulaust.
Þessi viðbrögð stjórnvalda
eru e.t.v. ekki óeðlileg ef
skýrsla ríkisstjórnarinnar um
lánsfjáráætlun 1976 er borin
saman við útkomuna í árslok
sama árs. i skýrslu þessari er
gert ráð fyrir því að ríkissjóður
endurgreiði Seðlabankanum
800 milljón kr. af lánum fyrri
ára og a.m.k. 600 milljónir
vegna lána á yfirstandandi ári.
Staðre.vndin er hins vegar sú
að ríkissjóður hefur aukið
nettóskuldir sínar við Seðla-
Fegurðardrottning og
kóngur í Garðaskóla
Skólafólkið gerir sér
margt til skemmtunar og
sums staðar er sá siður enn í
heiðri hafður að kjósa feg-
urðardrottningu og fegurð-
arkóng skóla.
Þetta gerðu nemendur í
Garðaskóla sér til gamans
nú á dögunum. Fór fyrst
fram kjör ,,drottninga“ og
„kónga“ í bekkjum, en síðan
mættu þessir fulltrúar
bekkjanna til úrslitakeppni
sem fram fór á svonefndu
Opnu húsi, sent eru skemmt-
anir nemenda skólans.
Þar valdi fimm manna
dómnefnd „fegurðardrottn-'
ingu“ og „fegurðarkóng"
Garðaskóla. Unndís Ölafs-
dóttir, sem fædd er 1961, var
kjörin fegurðardrottning og
Októ Einarsson, fæddur
1962, var kjörinn fegurðar-
kóngur. Dómnefndin dæmdi
eftir vexti, útliti og fram-
komu. Hér sjást sigurvegar-
arnir með kórónur sínar og
önnur táknmerki virðingar-
innar.
DB-mynd Ivar Brynjólfsson.
Það var síðasta
sýningarhelgin
i
TÓNABÍÓ
I
Enginn er fullkominn
(Some like it hot)
Slæm mistök áttu sér stað
hjá auglýsingadeild blaðsins á
laugardaginn. Er verið var að
vinna bíóauglýsingarnar
slæddist sú villa inn í auglýs-
ingu Tónabiós að sagt var að
viðkomandi m.vnd væri sýnd í
síðasta sinn. Þar átti að standa
„síðasta sýningarhelgi". Beðið
er velvirðingar á mistökum
þessum.
Kvartmílukempur spyrna á ný
Kvartmílukempur eru byrjaðar
að spyrna aftur á vegum úti, þrátt
f.vrir gefin loforð um að hætta
því. Spyrnusvæði þeirra er við
Hólmsárbrú, skammt fyrir ofan
Geitháls, og einnig hefur sézt til
þeirra á Vesturlandsvegi.
Að sögn lögreglunnar hefur
þessi spyrnuakstur ágerzt mjög að
undanförnu. Til dæmis tilkynnti
kona í fyrrinótt að hún hefði oró-
ið að forða sér af veginum er tvö
tryllitæki komu æðandi á móti
henni.
Er Kvartmíluklúbbnum var út-
hlutað keppnissvæði á síðasta ári
lofuðu meðlimir að halda sig utan
þjóðveganna. Nú hafa þeir sem
sagt svikið þetta loforð.
-AT-
P2 040305 .
FlM>nHlN»fU
TUU
])A‘H)(I754
jeitt i!
ÍÍRO'"
r börn og unglinga
■
s
»- aS
«>oo „ «3«ós>
PfeSSStóft frá lcr. S!,l|itÍ8.000.-
"s?;* -'-y<aw ■yvr"1 x'___ v, . ,..,
^ jTfiörgtím $tærðum og gerðum
1 1XI;M 11 UM)ii 11D
sto
3 sæta, 2 sæta, stóll og 2 borð
-^•^,aɧy!
pimo..
O - ,,, ' ■ iou(
Hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum og myn___ ^
Einnig getið þér komið með yðar hugmynd og við smíðum fyrir yður *g§
það sem þér óskiö.
Þessi húsgögn eru öll úr harðfergðum spónarplötum, bæsuð og íökkuð
. í mörgum litum. ' fv'v' ' '-■
u vrrr þúsund JföteteL* >'AÍ/ír44^ & EA3,3m-m eitt þúsund
176372 ' KRÖNUR f • ..„KRÓNUR
Ath. Við sendum hvert á land sem er. - Greiðsluskilmálar.
AUÐBRiKKU 63