Dagblaðið - 01.03.1977, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 01.03.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1977. I Útvarp 23 Sjónvarp 8 Sjónvarp f kvöld kl. 20.45: Það gekk betur að fá viðmælendur sem voru á móti bjórnum en með Umræðufundur ísjónvarpssal Umræduþáttur um hvort leyfa eigi bruggun og sölu á áfengu öli verður á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl.. 20.45. Það er Hinrik Bjarnason sem stjórnar þættinum. „Ætlunin er að spjalla við fjóra aðila og eins og rétt er og skylt verður alls réttlætis gætt og rætt við tvo frá hvorum armi,“ sagði Hinrik. Stjórnandi þáttarins, Hinrik Bjarnason. „Annars vegar eru það alþingismennirnir Helgi Seljan og Sigurlaug Bjarnadóttir og hins vegar Jón Sólnes alþingis- maður og Hrafn Gunnlaugsson. Það verður að segjast eins og er að miklu reyndist það erfiðara að fá málsvara með áfenga ölinu en á móti því. Þó að flestir svari spurningunni annaðhvort með já eða nei, þá fylgja alls konar fyrirvarar á eftir. Ákaflega margir treysta sjálfum sér fyrir ölinu en ekki heildinni," sagði Hinrik. Sagði hann jafnframt að þessi þáttur ætti ekki að vera umræða um áfengismál al- mennt heldur verður aðeins rætt um bjórinn. Ekki er þó ósennilegt að eitthvað verði komið inn á áfengismálin, þvl þau eru óneitanlega skyld bjór- málinu. -A.Bj. Drykkjusýki meðal unglinga i Bandarikjunum hefur farið vaxandi að undanförnu. Unglingarnir hafa snúið sér frá amfetamíni og heróíni að alkóhólinu. Vandamálið er orðið geigvæniegt og bæði foreldrarnir, skólarnir og sjúkrahúsin standa ráðþrota gagnvart þvi. Það eru fleiri en fslendingar sem eiga við drykkjuvandamál unglinga að striða. Útvarp í kvöld kl. 20.15: Vinnumál Hvernig hef ur verið staðið —að kjara- samningum undanfarið —eru einhverjar breytingar æskilegar? Þátturinn Vinnumál er á dag- skránni í kvöld kl. 20.15. Stjórnendur eru lög- fræðingarnir Arnmundur Backman og Gunnar Eydal. „Baldur Guðlaugsson frá Vinnuveitendasambandinu og Þórir Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Verkamanna- sambandsins, koma í heimsókn I þáttinn og ætla að ræða aðdraganda kjarasamninga og samskiptareglur aðila vinnu- markaðarins í sambandi við kjarasamninga, um samninga- viðræðurnar og annað. Þá verður rætt hvernig staðið hef- ur verið að kjarasamningum undanfarið og hvort breytingar séu æskilegar og einnig hvernig bezt sé að tryggja árangur kjarasamninga, og þá sérstaklega fyrir láglaunafólk. Hvort það sé vonlaust að semja um kjör þess sérstaklega án þess að allir aðrir fylgi á eftir. Síðan verður auðvitað rætt um kjararáðstefnu ASÍ og þau átök sem eru framundan og hvort von sé á verkföllum og það kannski miklurn," sagði Arnmundur Backman. Útsendingartími þáttarins er tuttugu og fimm mínútur. -A.Bj. Meðal þess sem rætt verður um í þættinum Vinnumál i kvöld er hvort unnt sé að bæta kjör Iáglaunafólks án þess að allir aðrir starfshópar fylgi í kjölfarið. Myndin er tekin á fundi Dagsbrúnar í vor. FráHOFI Tíminn er peninga virði.Komið í Hof. Þar er bezta úrvalið af garni og hann- ýrðavörum. 20% afsláttur af smyrnateppum. Hof Ingólfsstræti 1 (á móti Gamla bíói) Haf narf jörður— Kjörbúð Til sölu kjörbúð í fullum rekstri. Lyst- hafendur sendi nöfn sín í pósthólf 191 í Hafnarfirði fyrir 10. marz. Verzlunar-og skrifstofufólk Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund að Hótel Esju í kvöld kl. 20.30. Fundarefni: Kjaramól. Verzlunarmannofélag Reykjavíkur Styrkur til náms ítungu grænlendinga í fjárlögum fyrír áriö 1977 eru veittar kr. 120.000,- sem styrkur til íslendings til að lœra tungu grœnlondinga. Umsóknum um styrk þennan, með upplýsingum um námsferíl ásamt staöfestum af rítum prófskírteina, svo og greinargerö um ráögeröa tilhögun grnnlenskunáms- ins, skal komiö til monntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6. Reykjavík, fyrír 25. mars nk. — Umsóknareyðublöð fást í ráÖunoytinu. Menntamálaráðuneytið, 22. febrúar 1977.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.