Dagblaðið - 27.04.1977, Qupperneq 1
dagblað
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI2, SÍMI 27022.
„Jólasnjór” á Akureyri en sól
og sumar sunnan heiða
Þótt sumarið virðist vera
komið fyrir alvöru á Suðvestur-
landi og við borð liggi að íbúar
höfuðborgarinnar séu löngu
búnir að gleyma hvar þeir eru
staðsettir á hnettinum geta
íbúar norðan og austanlands
ekki tekið undir það. Þar ríkir
nú hið mesta vetrarríki. —
Þetta er alveg ekta jólasnjór,
sagði .Jakob F. Magnússon
blaðamaður DB sem verið
hefur veðurtepptur á Akureyri
í þrjá sólarhringa.
— Hér er mikill jafnfallinn
snjór, mikil hálka var á götun-
um i gær, í nágrenninu var
aflýst samkomum. Ég skrapp að
Laugalandi og hélt að ég festi
bílinn, sagði Jakob.
Akureyringum brá við þessa
skyndilegu „vetrarkomu", því
veðrið á sumardaginn fyrsta
var svo dæmalaust gott og allir
héldu að nú væri sumarið
komið fyrir alvöru. En börnin
kunna að meta snjóinn og eru
alsæl á sleðum og skautum,
sagði Jakob.
Samkvæmt upplýsingum
Knúts Knudsen veðurfræðings
er gert ráð fyrir snjóhraglanda
áfram á Norður- og Austurlandi
næstu tvo daga.
-A.Bj.
KOMA UTAN ÚR HEIMITIL KEPPNIÁ
HESTAMANNAMÓTI
,,Alþjóðlegt“ hestamanna-
mót verður haldið á
Víðivöllum ofan við Reykjavík
um helgina. Verður þar keppt 1
keppnisgreinum, sem keppt er
á 1 Evrópumótum. Er þetta í
fyrsta skipti, sem hér er haldið
opið kynningarmót af þessu'
tagi.
„Við áttum von á að þetta
yrði lítið og þægilegt möt,“
sagði Gísli B. Björnsson
teiknari í morgun, en hann er
einn framkvæmdaaðilanna,
„en áður en við vissum af var
þátttakan orðin geysilega
mikil og meira að segja komnir
þátttakendur frá Austurríki,
Þýzkalandi og Belgiu. Þeir fá
ýmist lánaða hesta eða eiga þá
hér.“
Keppt verður m.a. í keppnis-
— í Víðidal
um helgina
greinum, er ekki hefur verið
keppt hérlendis 1 áður, eins og
tölti, þar sem til dæmis verður
dæmt eftir hraða, yfirferð,
gangfegurð og fleiru. I þeirri
keppni taka þátt hvorki meira
né minna en 43 hestar.
Það er fþróttaráð Lands-
sambands hestamanna,
fþróttadeild hestamanna-
félagsins Fáks og Félag
tamningamanna, sem standa
fyrir þessu opna kynningar-
móti'. Hefst mötið á laugardag
og lýkur á sunnudag með úr-
slitakeppninni.
„Við leggjum á það mikla
áherzlu, að keppendur komi til
leiks sem íþróttamenn," sagði
Glsli B. Björnsson í morgun,
„og eru keppendur á öllum
aldri. Keppt verður 1 tölti, 4-
gang, 5-gang, skeiði og hlýðni-
æfingum.“
-ÖV.
Hvernig á að opna
rósina góðu?
Gjöf Dagblaðsins til tékk-
neska stórmeistarans Horts
vakti mikla athygli. Gullsmið-
irnir í Gulli og Silfri höfðu búið
þannig um gullhring einn
góðan, er þeir smíðuðu í tilefni
maraþonfjölteflisins, að honum
var komið fyrir innan í rós. Ef
ýtt var á takka, opnaðist gervi-
rósin, sem reyndar var eins og
hinar í vendinum. Það vafðist
fyrir mönnum að finna takk-
ann, og hér er hans leitað ákaft.
Einar Einarsson, Hort, JBP frá
Dagblaðinu og Magnús Er-
lendsson, forseti bæjarstjórnar
Seltjarnarness. (DB-mynd
Bjarnl.)
— Sjá nánar á bls. 9.
Nýr f lugturn á
Keflavíkurf lugvelli:
Aukið öryggi
okkar, Kanar
borga
brúsann
— sjá bls. 5
Nýjarnáms-
greinar —
kennslugögn
engin
— iðnnám íólestri
— bls. 5
Hverniggengur
búhokriðhjá
marbendlunum?
Sjá kjallaragrein Leós
M. Jónssonarábls. 11
Stórmál
sofnar
í dóms-
kerfinu
— sjá baksíðu
A