Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL UFL ---[ Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur J Fordæmir harölega tafír á títkomu Berlingske Tidende Anker Jörgensen forsætis- ráðherra Danmerkur fordæmi harðlega í gærkvöld tilraunir danskra prentara og stuðnings- manna þeirra til að tefja út- komu dagblaðsins Berlingske Tidende. Blaðið kom út í gær í fyrsta skipti í þrjá mánuði. Prentarar komu ekki nálægt vinnslu blaðsins, heldur önn- uðust verkstjórar hana. Forsætisráðherrann kvaðst þess fullviss að þeir ' 1.000 prentarar sem voru reknir úr störfum sínum í síðasta mánuði hafi ekki staðið fyrir né verið sammála þeim, sem efndu til óeirða fyrir utan Berlingske Hus, aðsetur blaðsins, í fyrra- kvöld. „Ég verð að játa,“ sagði Anker á blaðamannafundi í gærkvöld, ,,að ég hef enga samúð með málstað þeirra, sem reyna að tefja útkomu Berlingske Tidende." Alls voru það um 2.000 manns, sem söfnuðust saman fyrir utan Berlingske Hus í fyrrakvöld og töfðu alla umferð til og frá byggingunni. Lög- reglan dreifði mannfjöldanum. Talsverður fjöldi fólks slasaðist í átökunum, sem eru sögð þau verstu í Danmörku síðan árið 1970. Þá sló í brýnu milli lög- reglu og öfgasinnaðra vinstri manna, sem mótmæltu arðráni, Alþjóðabankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Báðar þess- ar stofnanir þinguðu í Kaup- mannahöfn um það leyti. Danskir prentarar hafa hafið störf á öllum dönskum dagblöð- um, nema Berlingske Tidende. í fyrradag náðust sættir í deil- um prentara og atvinnurek- enda þeirra. Blaðstjórn Berlingske stendur hins vegar fast á uppsögnum prentara fyrirtækisins og notar verk- stjóra við vinnsluna. VI. fulltriía- fundur Landssam- taka Kliíbbanna Yesfmannaeyjar 0RUGGUR AKSTUR Hallgrimur Stefán Haldinn að Hótel Sögu 28. og 29. april 1977. Dagskrá: Fimmtudaginn 28. april. rv . 12.00 Sameiginlegur hádegisverftur á hótelinu. Avarp: Hallgrimur Sigurösson, framkv.stj. 13.00 Fundarsetning: Stefán Jasonarson, form. LKL. Kosning starfsmanna, fundarstj. og ritara. 13.30 Ávarp: Ólafur Jóhannesson, dómsmála- ráðherra. 14.00 Erindi I: Guöm. Þorsteinsson námsstjóri umferöarfræðslu „Uppeldismótun mannsíns i umferðinni”. Umræður. Fyrirspurnir. 15.00 Kaffihlé. 15.30 Erindi II: Páll H. Jónsson frá Laugum: ,;,Frá Bergþórshvoli til Miklubrautar.” Úmræður. Fyrirspurnir. 16.30 Arsskýrslur stjórnar LKL ÖRUGGUR AKSTUR. Umræður. Fyrirspurnir. Nefndakosning: Umferðaröryggisnefnd. Fræöslu- og félagsmálanefnd. Allsherjar- nefnd. Útbýting tillagna til nefndarmanna. Spjall um vinnustaö og tilhögun. Nefndastörf á hótelinu eftir þörfum. 19.00 Kvöldveröur á hótelinu. Veiting SILFUR- BtLS Samvinnutrygginga i 6. sinn. 21.00 Nefndastörf eftir atvikum. ólafur Föstudaginn 29. april. KL. 9.00 Lok nefndastarfa — frágangur tillagna 10.00 Fundarframhald: Fréttir úr heimahögum: Arsskýrslur klúbbanna o.fl. 11.00 Erindi III: Sigurlaug Bjarnadóttir, alþing- ismaður: „Alþingi i umferðinni”. 12.00 Hádegisveröur á hótelinu. 13.00 Fundarframhald. 14.00 Nefndirskila störfum.Framvisun tillagna og umræður. 15.00 Kaffihlé. 15.30 Framhaldsumræöa um tillögur. Sam- þykktir tillagna. 17.00 Stjórnarkjör. Fundarslit. 18.00 Kvöldveröur á hótelinu. Guömundur Páll II. Sigurlaug. UPPREISNARMENN í SHABA- HÉRAÐIERU ATKVÆÐAUTUR ■ MjjlJimi - Utanríkisráðherra Nígeríu kom í PLwvA UAVlANA heimsóknígærtilaðsættadeiluaðila Hermenn Zairestjórnar og marokkanskir aðstoðarmenn þeirra voru atkvæðamiklir í smábænum Mutshatsha og nágrenni hans í gær. Uppreisnar- menn sýndu litla tilburði til að andæfa hernaðaraðgerðunum, að sögn talsmanns hersins. Mobuto Sese Sako fór í flugvél til Mutshatsha á mánudaginn til að hvetja menn sína til dáða. Uppreisnarmenn höfðu bæinn á sínu valdi til skamms tíma, en fall hans þykir mjög mikilvægt í baráttunni gegn þeim. Utanríkisráðherra Nígeríu, Joseph Garba kom í heimsókn til Zaire í gær til að bera klæði á vopnin og rcyna að sætta stjórn- völd í Zaire og Angola endanlega vegna „þessa leiðindaatviks", eins og ráðherrann komst að orði. Utanríkisráðherra Zaire tók á móti honum og þeir starfs- bræðurnir fóru saman til Lubumbashi, höfuðborgar Shaba- héraðs, til skrafs og ráðagerða við Mobuto forseta. Mobuto forseta þótti vel við hæfi að vera í nágrenni við hermenn sína — þeim til styrktar á góðum stundum. Mexíkanar rýmka um eiturlyfjalöggjöfina Öllum að óvörum hefur Mexíkóstjórn ákeðið að létta dálítið á eiturlyfjalöggjöf sinni. Þetta hefur í för með sér að þeir sem hafa verið handteknir með lítið af marijuana, kókaíni eða herófni á sér verða nú látnir iausir. eiturlyfjaverzlun, yrði hann ákærður. Um það bil 2.000 manns sleppa úr fangelsum vegna rýmkunarinnar. — Þeir, em áður höfðu verið dæmdir verða þó að afplána dóma sína, 5-14 ár. Erlendar fréttir Síðan það gerðist hafa aö minnsta kosti fimmtán Banda- ríkjamenn verið látnir lausir í kyrrþey og sendir aftur til síns heima. Um það bil 20-30 í viðbótar munu að öllum líkind- um losna úr fangelsi á næstu vikum. Saksóknari i Mexikó sagði fyrir skömmu að ákærúr á hendur þessu fólki yrðu látnar niður falla. Hér eftir ,yrðu mörkin sett við það magn sem hver neytandi þyrfti til eigin nota. Væri minnsti grunur um, að sá handtekn' hygðist stunda GAMALT VÍN- í GÖMLUM FLÖSKUM F.in flaska af Vintage Chateau d’Yquem víni, árgerð 1865, seldist fyrir fjörutíu og níu þúsund, sjö hundruð og sjötíu krónur og fimmtíu aura á uppboði í Genf i Sviss í gær. Þessi flaska var sú elzta af 381, sem voru á uppboðinu. Alls seldust þær á um 23 milljónir króna. Þá var einnig seld flaska af Roi De Rome koníaki frá árinu 1911. Hún seldist á um 42 þúsund krónur. Þeir virðast því gefnir fyrir gömlu vínin, blessaðir Svisslendingarnir.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.