Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1977. 13 íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir ) i hálfieik. Auru 10 leikmanna beinast að knettinum — og Vikingum tókst að ;st tii vinstri — rétt við miðlíriu vallarsins. DB-mynd Hörður. örk — og völlur- i og steinsteypa ykjavíkurmótinu mjög góð eftir jaf ntef li íking ígærkvöldi á Melavelli bergur Sigsteinsson skallaði knöttinn inn í vítateig Víkings. Þar hrökk hann í bakið á Sumarliða Guðbjarts- syni og breytti um stefnu — en Diðrik sat eftir í hinu horninu. Fram sótti mun meira, en sigurmarkið kom ekki. Þar fór Kristinn Jörundsson eitt sinn illa að ráði sínu. Spyrnti knettin- um framhjá Víkingsmarkinu, þegar auðveldara virtist að skora. Jafntefli og kannski voru það sanngjörn úrslit. Hjá Fram sýndi Sumarliði að hann verður mikill styrkur fyrir lióið í sumar. Eldfljótur og með gott auga fyrir samleik. I Víkingsliðinu bar Öskar mjög af — snjall leikmaður. I bæði lið vantaði þekkta leikmenn. Staðan í mótinu er nú þannig: Fram Víkingur Þróttur Valur KR Ármann Fram á eftir að leika við KR. Víkingur við Ármann. Þróttur við Val — og Valur á auk þess eftir að leika við Ármann. -hsím. Marks munur í lokaleikjunum Akureyri, 24. apríl 1977. Um helgina voru úrslitin í ís- landsmótinu, 2. flokki, háð hér fyrir norðan. Fjögur lið léku þar til úrslita en það voru KA, KR, Ármann og Víkingu. Fyrstu leikirnir voru háðir á föstudag og léku þá Ármann og Víkingur annars vegar og KA og KR hins vegar. Ármann sigraði með 16-11 og KR sigraði með 22- 14. Á laugardaginn léku KR og Víkingur og sigraði lið KR með 19-14. Síðan lék KA við Ármann- og sigruðu þeir síðarnefndu með 12-8. Stjórn vestur-þýzka knatt- spyrnusambandsins — í uppnámi vegna Franz Beckenbauer — ákvað á fundi sínum í gær að banna leik- mönnum, sem eru í vestur-þýzka landsiiðshópnum, að gerast leikmenn með erlendum liðum, þar til eftir HM 1978. Bannið kemur strax til fram- kvæmda. „Við höfum rétt til að koma í veg fyrir, að beztu leikmenn okkar séu keyptir fyrir heimsmeistara- keppnina," sagði formaður sam- bandsins Hermann Neuberger i gær. Bannið á að koma í veg fyrir, að UIi Stielike hjá Borussia gerist leik- maður hjá Real Madrid — en leik- maðurinn sagði, að hann mundi þrátt fyrir hannið gerast ieikmaður hjá Real, þegar samningur hans rennur út í júní. Hinn 22ja ára Stielike hefur verið talinn líklegur eftirmaður Á sunnudag lauk svo keppninni og léku þá til úrslita um fyrsta sætið lið KR og lið Ármanns. KR-ingar unnu nauman sigur, 12-11, og urðu því íslandsmeistar- ar. Síðan vann svo Víkingur lið KA með 16-15. Urslit urðu því þannig: 1. KR 6 stig 2. Ármann 4 stig. 3. Víkingur 2 stig. 4. KA 0 stig. Dómarar keppninnar voru eftirtaldir: Gunnar Kjartansson, Ólafur Steingrímsson, Ragnar Sverrisson, Jón Magnússon, Bjarni Hákonarson, Jón Hensley og Guðmundur Skarphéðinsson. -STA. Bekcenbauer i þýzka iandsiiðinu. Formaðúr Borussia, Helmut Gras- hoff, sagði að félagið gæti ekki komið í veg fyrir, að leikmaðurinn fari til Real Madrid. Borussia fer fram á 80 milljónir króna fyrir leik- manninn — eina milljón marka. Vestur-Þýzkaland leikur landsleik við Norður-lrland í Köln í kvöld. Willie Johnston, WBA, leikur með skozka landsliðinu í kvöld gegn Sví- þjóð. Það er í fyrsta sinn í níu ár, sem hann er valinn í landsliðið, en lék þar áður sem Rangers-leikmaður. Ronnie Glavin, Celtic, leikur þar sinn fyrsta landsieik — og Kenny Dalglish, Celtic, verður fvrirliði skozka lisðins. LIÐ ÍSLENDINGANNA í EFSTU SÆTUNUM! — í suðurdeild 2. deildar í Svíþjóð. Teitur og Matthías skoruðu í2. umferðinni Önnur umferð í 2. deild í Svíþjóð var háð sl. sunnudag og eftir hana eru liðin, sem íslend- ingarnir leika með, þeir Teitur Þórðarson, Jönköping, Matthías Hallgrímsson, Halmia, og Vil- hjálmur Kjartansson, Norrby, í þremur efstu sætunum. Aðeins Norrby vann þó á sunnudag — Jönköping og Halmia gerðu jafn- tefli. Teitur og Matthías skoruðu í leikjunum. Halmia lék á útivelli við Grimsas og varð jafntefli 1-1. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Bengt Göran Brann- ström skoraði fyrir Grimsas, en Matthías jafnaði fyrir Halmia. íþróttir •Jönköping lék á heimavelli gegn Alvesta. Teitur Þórðarson skoraði fyrsta markið í leiknum og staðan í hálfleik var 1-0. Thomas Arnklint skoraði annað mark Jönköping, en þeir Anders Sandquist og Conny Andersson jöfnuðu fyrir Alvesta. Norrby lék á heímavelli gegn Mjallby. Sigraði 2-0, þar sem varnarleikur- inn var aðall liðsins. Mörkin skoruðu Svend Andersson úr víta- spyrnu og Thomas Svensson. Staða efstu liða er þannig: •Jönköping 2 110 5-3 3 Halmia 2 110 4-2 3 Norrby 2 110 2-0 3 og síðan koma fjögur lið með tvö stig. VAR FYRSTA G0LF- MÓTH) ÓLÖGLEGT? Flest bendir til þess, að fyrsta golfmót sumarsins, Uniroyal- mótið sem haldið var á Hvaleyrar- velli í Hafnarfirði sl. sunnudag sé ólöglegt. Eins og kunnugt er var fjöldi keppenda dæmdur frá keppninni, þar sem þeir mis- skildu staðarreglur þær sem þeim voru færðar í hendur, um leið og beir gengu á teig. Þeirra á meðal var ísiandsmeistarinn Björgvin Þorsteinsson, sem kom inn á lang- bezta skorinu. Samkvæmt Kappleikjabók Golfsambands Islands frá 1974 segir svo í reglum um opin mót GSÍ og framkvæmd þeirra: „Skylt er, að keppnisvellir séu opnir til æfinga fyrir væntanlega þátttakendur i minnst þrjá sólar- hringa fyrir upphaf keppni og skulu stjórnendur viðkomandi keppni hafa tekið í notkun teiga og flatir og merkt völlinn, þannig að væntanlegum þátttakendum gefist kostur á að leika völlinn eins og hann verður í keppninni. Staðarreglur skulu vera fyrir hendi þegar á fyrsta æfingardegi fyrir opna keppni.“ Svo mörg eru þau orð. Ef þessi lög gilda fyrir þeta ár og það opna mót sem hér um ræðir, er enginn vafi á því, að mótið er ólöglegt og verður þvi að endur- taka það. rl. Höfum einnig MasterogComet fótboltaog i fleiri | k geröir JtUUIPLtt Póstsendum Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Hólagarði — Breiðholti Sími 75020 Klapparstíg 44 Sími 11783

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.