Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL 1977. Fá Baader-Meinhof skæruliðamir — Dómsins er að vænta á morgun bandaríska hersins, er fjórir her- menn létust. Þá sprungu nokkrar sprengjur af þeirra völdum við lögreglustöðvar og aðalstöðvar Springer útgáfunnar. Réttarhöld í málum þremenn- inganna Andreasar Baader, Gudrunar Enslin og Jan-Carls Raspe hafa nú staðið í tæp þrjú ár. Almennt er talið að þau sæti öll lífstíðar fangelsisdómi. Dóms- völd í Stuttgart hafa varað við því að fangarnir þrír, sem nú eru í hungurverkfalli, muni deyja-inn- an skamms verði næringu ekki troðið í þá á einhvern hátt. Hungurverkfall þeirra hefur staðið í mánuð. Öryggisráðstafanir í Stuttgart vegna réttarhaldanna yfir Baader-Meinhofliðinu eru gífurlegar, — svo miklar að annað eins þekkist varla siðan Niirnbergréttarhöldin miklu fðru fram eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. lífstíðar fangelsi? Verjendur Baader-Meinhof skæruliðanna þriggja, sem nú bíða dóms í Stuttgart í Vestur- Þýzkalandi, munu birta frétta- mönnum lokaorð málsvarna sinna í dag. Urskurðar kviðdóms og dómsins sjálfs er að vænta á morgun. né neitað sekt sinni. Þau hafa ábyrgð vegna nokkurra spreng- hins vegar lýst yfir pólitiskri inga. Þær voru við aóalstöðvar Tveir aðrir sakborningar hafa látizt í fangavistinni. Annar fyrir- liði skæruliðahópsins, Ulrike Meinhof, hengdi sig í fangaklefa sinum á síðasta ári. Holger Meins lézt eftir 135 daga hungurverkfall í nóvember 1974. Þau þrjú, sem eftir lifa, eru ákærð um að hafa myrt fjóra menn og sært 54 í sex bankarán- um og sex sprengjutilræðum á tímabilinu maí-júní 1972. Ails rændu þau um 435.000 mörkum úr bönkunum sem þau réðust inn í. Þau ákærðu hafa hvorki' játað Starfsfólki sjúkrahúss bannaö aö fóðra villiketti Starfsfólk Maelor sjúkra- hússins í Wrexham í Englandi hefur verið alvarlega varað við að gefa villiköttum við sjúkra- húsið að éta. Um það bil fjörutíu kettir hafa safnazt smám saman að spítalanum og lifa nú i vellystingum á mjólk og matarleifum sjúklinganna. Forráðamaður Maelor sjúkrahússins, David Hardy, segir: Enda þótt kettir þessir Séu villtir, þá eru þeir orðnir svo vel vandir, að þeir vita nákvæmlega að hvaða gluggum þeir eiga að koma, þegar þeir fá mjólkursopann sinn og fiskbit- ann. En því miður eru þeir einnig hinir verstu smitberar.“ senda honum peninga — til að létta sektargreiðslurnar Israelsmenn virðast mar^ir hverjir kunna að meta viðbrögð forsætis- ráðherra sins, Yitzhaks Rabins, við því er upp komst að hann ætti ólöglega peningainnistæðu I banda- riskum banka. Ráðherrann sagði af sér og varð auk þess að greiða um fimm og hálfa milljón íslenzkra króna i sektir. Fjöldi fólks hefur sent Rabin peninga til að létta honum sektargreiðslurnar. Hann er þó ekki á þeim buxunum og hefur sent alla peningana til baka og hundruð bréfa. „Forsætisráðherrann er öllu þessu fólki ákaflega þakklátur," segir talsmaður hans, ,,en honum finnst hann eigi að axla þessa byrði einn.“ Hreinn Halldórsson, kúluvarpari í forsíöuviötali AthyglisvertviötalviöHannesFlosason tónlistarkennara og tréskuröarmeistara Greinarkorn um tryggingafélagiö LloydsoJLo.fi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.