Dagblaðið - 27.04.1977, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1977.
-l ............
Skrif stof ustarf —
KEFLAVÍK
Laust er starf við afleysingar á skrif-
stofu embættisins frá og með 15. maí
1977.
Um framtíðarstarf getur verið að
ræða.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar
undirrituðum fyrir 10. maí nk.
Sýslumaöurinn í Gullbringusýslu.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík.
Vatnsnesvegi 33.
230 Keflavík.
Reiknistofa bankanna
óskar að ráða starfsmann til tölvu-
stjórnar og skyldra starfa.
Starfið er unnið á vöktum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi stúd-
entspróf og/eða bankamenntun.
Ráðning er samkvæmt almennum
kjörum bankastarfsmanna.
Skriflegar umsóknir sendist Reikni-
stofu bankanna Digranesvegi 5 Kópa-
vogi, fyrir 1. maí 1977.
Alþýðusamband
íslands
er flutt af Laugavegi 18 að Grensás-
vegi 16 (á horni Grensásvegar og
Fellsmúla). Athugið að símanúmerið
er breytt og verður hér eftir 83044.
Kelvin -
bátavél árg. ”63
Mikið af varahlutum, bæði nýjum og
notuðum til sölu á mjög hagstæðu
verði. Uppl. í síma 36051.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT SÖNGSVEITIN
ÍSLANDS FILHARMONlA.
Tónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 28. apríl kl. 20.30.
Stjórnandi: Marteinn Hunger Friðriksson
Einsöngvarar:
Elín Sigurvinsdóttir
Ruth L. Magússon
Sigurður Björnsson
Guðmundur Jónsson
Efnisskrá:
Schubert — Messa í As-dúr
Brahms — Haydn tilbrigði op. 56A.
Aðgöngumiðar í Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðu-
stig, og Eymundsson, Austurstræti.
Ath. Áskriftarskírteini gilda ekki að þessum tónleikum.
I BIAÐIB I
er smáauglýsingablaðið
*—'»« ..... .......—
Iðnfræðslan íólestri:
Nýjar námsgreinar
kennslugögn engin
„Á haustin segir skólastjór-
inn að nú skulum við taka upp
nýja námsgrein. Hún gætiheitið
til dæmis öryggi á vinnu-
stöðum. Síðan er sezt niður og
málið rætt fram og til baka,
hvað eigi að falla undir þessa
nýju námsgrein og svo fram-
vegis. Þegar þeim umræðum er
lokið, segir skólastjórinn að nú
skuli byrja að kenna, og að
þessi grein eigi að vera svo og
svo margir tímar á viku. Þá
fellur það á kennarann að
setjast niður að loknum vinnu-
degi og útbúa kennslugögnin
fyrir næsta dag. Þetta gerist í
hverjum einasta iðnskóla á
landinu. Nemendur hafa allir
mismunandi kennslugögn, en
taka síðan allir sömu prófin.“
Svo fórust orð Skildi Vatnari
Björnssyni, iðnskólakennara,
um vandamál iðnfræðslunnar á
Islandi, í samtali við DB í vik-
unni I tilefni ráðstefnu kennara
á iðnfræðslustigi, sem haldin
var i Reykjavík um helgina.
Átakanlegur skortur er á
námsgögnum í öllum sérgréin-
um iðnfræðslunnar. Á síðustu
árum hafa ýmsar nýjar náms-
greinar verið settar á verkefna-
skrá iðnfræðsluskólanna án
þess að kennurum og nemend-
um hafi verið séð fyrir nauð-
synlegum kennslu- og náms-
gögnum, eins og fram kom í
orðum Skjaldar.
Hefur þetta valdið áberandi
erfiðleikum í skólastarfi, eirtk-
um í vetur og allar horfur á að
vandinn aukist ef ekki verður
brugðið skjótt við.
Áðurnefnd ráðstefna, sem
haldin var að tilhlutan
kennara, skólastjóra og Sam-
bands iðnskóla á íslandi, gerði
þá kröfu til fræðsluyfirvalda að
þegar í stað verði hafin útgáfa
nauðsynlegra námsgagna í öll-
um sérgreinum iðnfræðsl-
unnar.
Um sjötlu kennarar og skóla-
stjórar víðs vegar að af landinu
tóku þátt í ráðstefnunni.
—ÓV
K
Frá ráðstefnu kennara og
skólastjóra á iðnfræðslustigí
um iðnfræðslumál.
Könnun meðal grunnskólanema: Bókvit íaskana?
Unga fólkið virðist
hverfa frá bóknáminu
—sækir f remur í verkmenntun
„Það er greinilegt á þessari
könnun að það er nokkurt frá-
hvarf meðal unglinga frá bók-
námi,“ sagði Stefán Ólafur Jóns-
son deildarstjöri I menntamála-
ráðuneytinu í samtali við DB.
Tilefni samtalsins var að grennsl-
azt fyrir úm hvaða niðurstöður
hafa fengizt í könnun þeirri sem
gerð var í 9. og 10. bekk grunn-
skólans um námsval unglinga að
loknu skyldunámi.
Könnunin náði til um 6.200
nemenda í 9. og 10. bekk grunn-
skólans, eins og áður segir. Að
sögn Stefáns Ólafs hafa ungling-
arnir tekið þátt í könnuninni af
fullri ábyrgð, það sýnir ákveðin
fylgni á vali námsbrauta um allt
land.
Vegna rýmkunar á inntöku-
skilyrðum í menntaskólana var
jafnvel búizt við að nemendur
myndu sækja þangað meira en
undanfarin ár. Það hefur hins
vegar komið fram í könnuninni að
svo er ekki. Ef marka má niður-
stöður hennar er fráhvarf meðal
unglinga að nokkru marki frá
bóknáminu. Þeir leita nú í hag-
nýtara nám t.d. í verkmenntun og
viðskiptanámsbrautir.
Úrvinnslu úr könnuninni er
ekki nærri lokið, en af því sem
lokið er, þá hafa komið ákveðnai
línur í ljós. Eftir á t.d. að bera
saman einkunnir nemenda og val
þeirra en í fljótu bragði virðist
sem nemendur geri sér ljósa
hæfni sína og velji samkvæmt
þvi.
Fáir nemendur velja sér hús-
stjórnarnám og búfræðinám svo
eitthvað sé nefnt. Staðfestir það
þá þróun sem hefur verið undan-
farin ár um að fáir nemendur
velja þessar námsleiðir.
Frekar lítill hluti nemenda sem
spurðir voru höfðu ekki tekið
ákvörðun um framhaldsnám. Að
sögn Stefáns má búast við að
4.200 til 4.500 nemendur hefji
framhaldsnám nú í haust, ef
miðað er við þær niðurstöður sem
fengust í könnuninni.
KP
Krummagull boðið til
sýningar víða um heim
Fyrirhugað er að bjóða sjón-
varpsstöðvum víða um heim
„Krummagull" Alþýðuleik-
hússins á Akureyri til sýningar,
en leikritið var nýlega tekið
upp á litmyndsegulband í Sví-
þjóð.
Alþýðuleikhúsið er eignar-
aðili að myndinni ásamt
%
Dramatiska Institutet í Stokk-
hólmi og þeim nemendum þar
sem unnu að upptöku leikrits-
ins.
Það var að frumkvæði Þráins
Bertelssonar, sem stundar nú
nám við Dramatiska Institutet,
að „Krummagull“ var tekið upp
á myndsegulband. Dramatiska
veitti Alþýðuleikhúsinu nokk-
urn styrk til utanfararinnar og
mun annast sölu og dreifingu á
leikritinu.
Til greina hefur komið að
sýna „Krummagull" t fslenzka'
sjónvarpinu innan tíðar, að þvf
er segir í Leiksýn, málgagni
Alþýðuleikhússins. óv.