Dagblaðið - 20.05.1977, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MAl 1977.
3
Heilsulindin í Nauthólsvík
Heilsulindin í Nauthólsvík
I dagblaðinu Tímanum þann
10. þ.m. er stórfrétt á forsíðu
ásamt fjögurra dálka mynd frá
Skurðinum í Nauthólsvíkinni.
öll gengur greinin út á það
eitt að sverta þá aðstöðu sem
þarna hefur skapazt til böðunar
og afslöppunar.
I öðru orðinu er þvi fjálglega
lýst hvernig baðgestir sem
lauga sig á kvöldin og um næt-
ur ganga um staðinn og er það
ófögur lýsing, en í hinu orðinu
er þess geuo að enga aostööu sé
þarna að finna fyrir baðgesti
■sem vilji njóta dagstundar i
skurðinum.
I greininni kemur fram að
eina lausnin sé að loka fyrir
vatnið. Lokunarpostularnir
virðast staurblindir á þann
möguleika að þarna sé hægt að
gera virkilega hlýlegan úti-
vistarstað.
Einhver góður maður sagði
að þvi miður kæmu rónarnir
óorði á brennivinið. Þetta er
hverju orði sannarra og þvi
miður er það einnig hverju orði
sannarra, að kvöld- og nætur-
gestir i Nauthólslæknum koma
slæmu orði á þann ágæta stað.
Þennan baðstað er unnt að
gera mjög góðan með tiltölu-
lega lítilli fyrirhöfn.
I fyrsta lagi þarf að setja upp
girðingu meðfram skurðinum i
hæfilegri fjarlægð og leggja
síðan þökur á bakkana og
svæðið í kring, en það hefur
verið eyðilagt af bila- og vél-
hjólaumferð.
I öðru lagi þarf að setja
nokkrar ruslatunnur eða rusla-
dalla meðfram skurðinuip, svo
óg að koma upp einlaldrí
snyrtiaðstöðu.
I þriðja lagi þyrfti að steypí
skurðbakkana og botninn og
setja stíflur með hæfilegu milli-
bili. Nauðsynlegt væri, vegna
ásóknar óæskilegra næturgesta
að hafa rennilúgur á stiflunum
sem draga mætti upp og læsa
frá siðkvöldi til morguns svo
vatnið geti runnið óhindrað til
sjávar, þannig að böðun um
kvöld og nætur verði útilokuð.
Þetta ættu borgaryfirvöld að
sjá sóma sinn 1 ao lata gera og
ekki mun standa á þeim sem
skurðinn stunda að leggja fram
vinnu endurgjaldslaust, þannig
að þetta ætti ekki að þurfa a(
kosta meira en spegill og ljósa-
króna.
Ef borgaryfirvöld sjá sér
þetta hins vegar ekki fært er
ekki um annað að ræða en þeir
sem lækinn stunda, stofni með
sér samtök til að hrinda málinu
I framkvæmd.
Það er ýmislegt sem mönnum
hefur eflaust yfirsézt, þegar
rætt er um lokun skurðarins.
Þar mætti nefna að i
skurðinum er ávallt tært vatn
vegna stöðugrar og hraðrar
endurnýjunar vatnsins..
Þetta er gagnstætt því sem er
í sundlaugum þar sem endur-
nýjun vatnsins er ákaflega hæg
og baðgestir svamla þar í vatni
gegnmenguðu af svita og þvagi
sjaits sin og annarra.
Sjálfsagt er ekki á allra vit-
orði að sviði i augum og önnur
óþægindi orsakast ekki ' af
klórnum i sundlaugarvatninu
heldur af svita og þvagi sem
sundlaugargestir láta frá sér.
Það hefur áður komið fram
að vatnið i skurðinum er á
stöðugri hreyfingu. Ugglaust
gera lokunarpostularnir sér
ekki ljóst hve straumþunginn
er mikill. Sjálfsagt gera þeir
sér heldur ekki ljóst hvaða
áhrif það hefur þegar 39 stiga
heitur vatnsflaumur Ieikur um
likamann.
Þessi vatnsflaumur hefur
það góð áhrif á líkamlega og um
leið andlega heilsu manna að i
rauninni ættu engir að hafa
áhuga fyrir lokun skurðarins
aðrir en þeir sem hafa nudd að
atvinnu og er þá átt við þá sem
hafa líkamsnudd að atvinnu, en
ekki hina sem sifellt eru að
nudda og pexa út af öllu og
engu.
Miklu meira og itarlegar
mætti um þetta rita en hér skal
botninn i sleginn með nokkrum
orðum til borgaryfirvalda.
Lokið ekki fyrir vatnið i
skurðinn. Lokið a.m.k. ekki
fyrr en þið hafið spurt mann-
inn sem þjáist af lömun hvar og
hvernig hann hafi öðlazt þann
þrótt sem hann hefur náð.
Spyrjið hann hvort loka beri
skurðinum. *Ef hann svarar
játandi, skuluð þið Ioka.
Spyrjið einnig konuna sem
þjáðist i baki, en hefur nú
náð undraverðum þrótti, hvort
hún vilji láta loka fyrir heita
vatnið í skurðinn. Ef hún
svarar játandi, þá skuluð þið
loka.
Spyrjið einnig alla þá sem
eftir eril dagsins koma með
þrautir í hálsi og herðum, láta
vatnsflauminn úr rörinu leika
um sig og fara síðan til síns
heima afslappaðir og með bros
á vör, hvort loka beri fyrir
vatnið í skurðinn.
Ef þeir svara játandi, skuluð
þið loka, en fyrr ekki.
Mpð þökk fyrir birtinguna.
„Skurðfélagar"
Árni Gunnarsson, ritstjóri Alþýðublaðsins:
Alþýðublaðið ER á uppleið
Hr. Jónas Kristjánsson,
ritstjóri,
Dagblaðið,
Síðumúla 12.
í leiðara Dagblaðsins í dag,
17. maí 1977, fjallar þú um aug-
lýsingaáróður islenzkra dag-
blaða og upplagseftirlit
Verzlunarráðs Islands. Þar
segir þú meðal annars: „Þrjú
minnstu dagblöðin, Alþýðu-
blaðið, Þjóðviljinn og Vísir, sjá
fyrir, að eftirlit Verzlunarráðs-
ins verður þeim I óhag og beina
því áróðri sínum inn á
óáþreifanlegri brautir."
Vegna þessarar klausu í
leiðaranum er rétt að fram
komi að ég hef sjálfur í leiður-
um Alþýðublaðsins og skrifum
um dagblöðin islenzku lýst yfir
því að Alþýðublaðið væri til-
búið að undirrita samninga um
eftirlit með upplagi dagblað-
anna. I þeim efnum hefur
Alþýðublaðið nákvæmlega
engu að leyna. Til mín hefur
ekki verið leitað vegna þessa
samnings.
Þá gerir þú að umræðuefni
slagorð Alþýðublaðsins, sem
sett voru í blaðhausinn í marz á
síðasta ári, Þar segir: „Alþýðu-
blaðið“, og siðan með smærra
Ietri: „á uppleið".
Slðan segir orðrétt í leiðara
þínum: „Ekki er vitað, á hvaða
sviði það er, sem Alþýðublaðið
þykist vera á uppleið. Að
minnsta kosti er það ekki í söl-
unni, því að hún hefur ekki
aukizt um eitt eintak, síðan
þessi áróður hófst.“
Vegna þessarar staðhæfingar
vil ég koma eftirfarandi á fram-
færi: Alþýðublaðið hefur, því
miður, rekið alltof lítinn áróður
fyrir útgáfunni. Slagorðin í
blaðhausnum er liklega það
eina, sem gert hefur verið I
áróðursskyni, utan um 200 lím-
miða, er voru prentaðir og
dreift. Þetta er nú allt og sumt.
Hins vegar hefur áskrif-
endum Alþýðublaðsins fjölgað
um 1100 frá því I marz á sfðasta
ári. Nýting þess eintakafjölda
sem prentaður er hefur verið
stórlega bætt, og það þekkist
vart að Alþýðublaðinu sé ekið á
hauga. Upplagið er nýtt til
fullnustu. Þetta þykir mér
nokkur árangur hjá minnsta
dagblaði landsins. A meðan
áskrifendum fjölgar er „á
uppleið" réttlætanlegt slagorð.
Þessum atriðum vildi ég
koma á framfæri. Þau skiþta
ekki sköpum en rétt skal vera
rétt. Mér þætti vænt um ef þú
gætir holað þessum línum
niður á einhverri síðunni hjá
þér.
Með kveðju.
Arni Gunnarsson,
ritstjóri Alþýðublaðsins.
Gulbrúnt geitaskinn
12.990/-
('fl'ffíJ
Q cim. 1kRMl
Laugavegi 69 smu IbobU ^
M i^bæiarmai Uaði sinu 19494
Leðurskor
Leðursólar
Leðurfóður
Burgundy kalfaskinn
7900/-
ALLT
LEÐUR
Póstsendum
6580/-
Gulbrúnt,
brúnt og
svart kálfa
skinn.
Brúnt geitaskinn
12.990/-
Viltulátaloka
fyrir vatnsrennsli
íheitalækinn
íNauthólsvík?
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
leikkona: Alls ekki. Hér er hægt
að vera þegar annars staðar er
lokað.
Borgþór Kjærnested fréttastjóri:
Nei, en hins vegar mætti koma !
veg fyrir bílaakstur hingað niðui
eftir, svo betra næði fáist.
Petra Bragadóttir nemi: Nei
ómögulega. Hér er svo gott aí
vera.
Jóhanna Ingadóttir: Nei, alls
ekki. Vatnið er hreint, hvers
vegna ætti þá að loka?
Ingigerður Helgadóttir gerir
ekkert — nemi: Nei, það er þægi-
legt að liggja hérna og hafa það
gott.
Þórhildur Pálsdóttir „bara“
nemi: Nei. Það eru engin glerbrot
í læknum en svolítið á bakkanum.
Þó er engin ástæða til að loka.