Dagblaðið - 20.05.1977, Síða 7
Stórkostlegt fjármálahneyksli í uppsiglingu í Bretlandi?
Leyland-fyrirtækié sakað
um miklar múti&eiðslur
Brezka stórblaðið Daily Mail
fullyrti i gær að það hefði undir
höndum gögn sem sönnuðu að
ríkisfyrirtækið British Leyland
hefði greitt milljónir punda i
mútur til allra heimsálfa nema
Norður-Ameríku. Blaðið kvað
11.327.700 sterlingspund hafa
verið greidd í mútur á fjárhags-
ári fyrirtækisins 1975-76.
Stjórnarformaður Leyland
verksmiðjanna, Ryder
lávarður, bar þessa frétt til
baka í blaðinu Daily Express,
helzta keppinaut Daily Mail.
Þar Kvað hann bréf, sem blaðið
hefur undir höndum fréttinni
til staðfestingar, vera falsanir
sem auðvelt ætti að vera að
fletta ofan af, eins og lávarður-
inn komst að orði.
Ryder lávarður var á ferða-
lagi í Grikklandi er fréttin birt-
ist í Daily Mail. Hann var þegar
í stað kvaddur til Englands. —
Blaðið birti ljósrit af bréfi Qg
fleiri skjölum því til sönnunar
að milljónirnar framangreindu
hafi verið inntar af hendi til að
tryggja fyrirtækinu viðskipti.
— Britist Leyland er stærsti
útflytjandi Bretlands. — Ríkið
á 95 prósent hlutafjár í fyrir-
tækinu. Það framleiðir ýmsar
vinsælar smábifreiðir, svo sem
Morris og Austin auk stærri
farartækja.
Bandaríkin:
Kvenhermaður ásakaður um
— haf ði gifzt kynskiptingi
kynvillu
Bandaríski herinn ráðgerir nú
að reka einn af kvenhermönnum
sínum fyrir að vera gift kven-
manni sem hefur gengizt undir
kynskiptaaðgerð. — Hermaður-
inn, Marie von Hoffburg, er þó
ekki á því að láta reka sig, heldur
ætlar hún að berjast fyrir því að
fá' aó vera í hernum áfrant.
„Eiginmaður minn er karl-
maður," sagði frú von Hoffburg
við fréttamenn í gær, eftir að her-
inn hafði tilkynnt opin réttarhöld
þann 6. júní næstkomandi um
hvort hún hefði tilhneigingu til
kynvillu. — Maður von Hoffburg
hét áður Linda Louise Bowers og
var einnig í hernum.
Athygli hersins á þessum
hjúskap var vakin er herra von
Hoffburg sótti um nafnskírteini
sem sýndi hann (hana) sem eigin-
mann hermanns. Skrifstofu-
maður bar þá kennsl á hann.
BANDARÍSKIR FERÐAMENN
TIL KÚBU EFTIR16 ÁRA
BANN VIÐ FERÐUM ÞANGAÐ
Fyrsti bandaríski ferðamanna-
hópurinn, sem heimsækir Kúbu í
sextán ár, kom til Havana í gær-
kvöld og var vel fagnað af mörg
hundruð heimamönnum, sem
safnazt höfðu saman við hafnar-
götur.
Skipið, sem ferðamennirnir
komu með, Daphne, varð fyrsta
bandaríska skipið til að sigla inn í
kúbanska höfn í sextán ár. Þykir
þetta vera ótvírætt merki um að
sambúð landanna sé nú mikið aó
skána og geti jafnvel orðið eðlileg
áður en langt um líður, eins og
Carter Bandaríkjaforseti hefur
heitið að beita sér fyrir.
Um borð í Daphne voru 360
bandarískir ferðamenn — þeirra
á meðal jazzistarnir Dizzy
Gillespie, Earl Hines og Stan
Getz.
Þar til í marz sl. var Banda-
ríkjamönnum bannað að ferðast
til Kúbu. Carter forseti fékk því
breytt.
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar að ráða:
Hjúkrunarfrœðinga við heimahjúkrun,
skóla og barnadeild.
Sjúkraliða við heimahjúkrun í afleys-
ingar.
Ljósmóður á mæðradeild.
Upplýsingar gefur hjúkrunarfram-
kvænídastjóri í síma 22400.
p—FRÁ H0FI—-----------------------
Höfum fengið nýjargerdir af
Smyrna púðum og teppum,
twistsaumarnýkomnir
Höfum ótrúlegt iírval afalls konar
hannyrðavörum,
ath.l0%afsláttur
fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja
H0F Ingólfsstræti
Beint ó móti Gamla Bíói.
hettutílpur o.
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími 11783
Hólagarði íBreiðholti — Sími 75020
-
■ Dömudeild: Kjólar — mittisjakkar — plíseruö pils — leðurjakkar. Herradeild: Mittisjakkar — skór — leður jakkar — hermannaskyrtur. yrj Bankastrœti 9 sími 11811