Dagblaðið - 20.05.1977, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1977.
VERKALÝÐSFÉLÖGIN STANDA ÁFRAM
FAST Á100 ÞÚS. KRÓNA KRÖFUNNNI
— Formaður Vinnuveitendasambandsins vongóður um að deilan leysist
„Við höfum alls ekki horfið frá
100 þúsund króna kröfunni,"
sagði Einar Ögmundsson, for-
maður Landssambands vöru-
bifreiðastjóra, í gær áður en
samningafundur hófst. „Mér
finnast verðbótahugmyndir sátta-
nefndar hins vegar athyglisverð-
ar.“
„Tvö komma fimm prósent eru
engan veginn nóg í sérkröf-
urnar," sagði Einar Ögmundsson
ennfremur um hugmyndir sátta-
nefndar. „Erfitt er að segja á
þessu stigi hvernig staðan verður
næstu daga. Hugmyndir sátta-
nefndar gætu vissulega skapað
umræðugrundvöll en kaupið, sem
lagt er til, er hvergi nærri því
marki sem Alþýðusambandið hef-
ur sett sér."
Einar minnti á að samþykkt
ASl-þings lægi meðal annars að
baki kröfunni um 100 þúsund
króna lágmarkslaun. Það væri
forgangskrafa. Einar sagði enn-
fremur að það þyrfti að minna á
að allar kauphækkanir, sem nú
semdist um, mundu verða.
miðaðar við 1. mai síðastliðinn.
Þá hefðu samningar runnið út og
næstu samningar mundu því
miðaðir við að kjörin yrðu bætt
frá 1. maí.
„Eg er ennþá vongóður um að
það takist að leysa deiluna,“ sagði
Jón H. Bergs, formaður Vinnu-
veitendasambandsins, áður en
samningafundur hófst í gær.
Hann kvaðst enn vongóður um að
ekki þyrfti að koma til stórverk-
falla.
Jón H. Bergs vitnaði í yfirlýs-
ingu Vinnuveitendasambandsins
þar sem hugmyndum sáttanefnd-
ar er hafnað og sagt að þær kjara-
bætur, sem í henni felast, mundu
leiða til mikiilar verðbólgu.
Hann vildi ekkert segja um
hvort staðan yrði nú erfiðari,
þegar báðir aðilar hafa í reynd
hafnað hugmyndum sátta-
nefndar. Það kæmi síðar í ljós.
Einar Ögmundsson sag'ði að'
allir vissu að menn gætu almennt
ekki lifað af dagvinnu: Það sæist
bezt á því hversu miklu yfir-,
vinnan skipti. „Þjóðin gengur
fyrir yfirvinnu,“ sagði Einar. HH|
Hér er úrvalið! ***
12 gerðir af hjónarúmum, og allar íslenskar! Þér getið valið um spring- eða svampdýnu,
mjúka eða stinna að vild. Rúmin finnið þér i svefnherbergisdeildinni á 5 hæð f J.L.húsinu.
Þar fáið þér einnig allt annað sem tilheyrir,
svo sem sængurfatnað, rúmteppi, o.m.fl.
Svefnherbergisdeild, 5. hæð
j&l jÓl
húsið
Jón Loftsson hf.
í q e3 □ a ib
\m íí íí a b ii
Hringbraut 121 Sími 10600
SMART —finnst ykkur ekki ?
Það er ekkert lát á hlýindun- hvívetna. Fatabúðirnar fá að
um. Hið dægilegasta veður finna fyrir því að vorið er komið,
leikur við landsmenn á þessu menn leita gjarna þangað þegar
vori, enda nota menn sér það í hlýnar og kaupa sér léttari flíkur
fyrir sumar sem allir vona að
verði hagstætt. „Smart“, segja
stúlkurnar. Orðið er víst ekki til í
islenzkum orðabókum en hvað um
það, þær sátu þarna og ræddu sín
á milli um glænýja sumarflík sem
ein þeirra sýndi með þó nokkru
stolti
DB-mynd Hörður.
^amtgrðattrndttnti!
írla
Snorrabraut 44
NYK0MIÐ
Grófar krosssaumsmöttur, smyrnapúðar og veggteppi, —
klukkustrengj aj árn í miklu úrvali.
20 litir af púðaflaueli.
Uppsetníngar á flauelspúðum, strengjum og annarri
handavinnu.
Ateiknuð puntuhahdklæði, gömlu, góðu munstrin.
Tilbúnir flauelspúðar og dúkar.
Fallegar hannýrðapakkningar í miklu úrvali.
Félagsstarf eldri borgara
Handavinnusýning
Yfirlits- og sölusýning á þeim munum,
,sem unnir hafa verið í félagsstarfi
eldri borgara sl. vetur verður haldin
að Norðurbrún 1 dagana 21., 22. og 23.
maí nk. Sýningin verður opin frá kl.
1—6e.h.
f gj | Félagsmálastofnun
llf Reykjavíkurborgar
Handavinna eldri
borgaranna
— sýndogseld um
helgina
Einhver fjölbreyttastsa
-handavinnusýning sem haldin
hefur verið í Reykjavík verður
á vegum Félagsmálastofnunar
Revkiavíkur að Norðurbrún 1;
(jarðhæð). Á laugardag,
sunnudag og mánudag klukk-
an 1-6 alla dagana. Þetta er
sýning á handavinnu gamla
fólksins sem stundað hefur
handavinnu- og tómstunda-
tfma Félágsmálastofnunarinn-
ar i vetur.
Sýningin er yfirlits- og sölu-
sýnine á handavinnu eldri
borgaranna og þykir mjög
athyglisverð. Þarna eru hlutir
unnir úr beini og tré,
teikningar og málverk., alls
kyns leðurvinna, emalering og
ótai fleira að ótöldum sauma-
SKapnum, prjóni, hekli,
útsaumi, flosvinnu og fleiru.
Mun vart vera hægt að nefna
þá handavinnutegund sem
ekki sést þarna sýnishorn af.
Gamla fólkið hefur notið til-
sagnar sérfræðinga við vinnu
sína nú sem fyrr.
ASt.