Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1977. 13 Sóknarkóngarnir buðu VELEVHROVIC jafntefli á víxl — Karpov og Larsen efstir á Las Palmas - Uhlmann í Júgóslavfu og Vaganjan sigurvegari íBrazttái Bent Larsen, danski stórmeist- arinn, heldur sínu striki frá skák- mótinu í Sviss. Ekki að sjá, að tapið gegn Portisch í kandidata- einviginu í Hollandi hafi sett hann úr skorðum. Hins vegar á Ulf Andersson, sænski stór- meistarinn, sem varð annar á eftir Larsen í Sviss, erfitt upp- dráttar á skákmóti í Urbasp í Júgóslavíu. Neðarlega á blaði eftir níu umferðir. Eftir framniistöðuna glaésilegu á Evrópumeistaramótinu í Moskvu á dögunum hélt heims- meistarinn Anatoly Karpov til Las Palmas, þar sem hann teflir nú á allsterku skákmóti. Karpov vann fimm sigra í fimm skákum í Moskvu og í Las Palmas sigraði hann í þremur fyrstu umferðun- um. Hann var þó heppinn í ann- arri umferðinni. Átti þá i miklum erfiðleikum gegn Browne, en Bandaríkjamaðurinn klúðraði öllu í gífurlegu tímahraki. Ekki í fyrsta sinn, sem tímahrakið leikur Browne grátt. I þriðju um- ferð vann Karpov Debarnot. En Bent Larsen sigraði einnig í þremur fyrstu skákum sínum í Las Palmas og greinilegt, að þar stefnir í einvigi milli hans og Karpov. 1 þriðju umferð vann Larsen Visier. Eftir þrjár um- ferðir var staðan þessi: Karpov og Larsen 3 vinningar, Timman 2,5 vinningar, Debarnot 2 vinningar, Miles, Adorjan, Bellon, Tal og Tatai 1,5 vinningur. Martin, Pomar og Browne einn vinningur hver. Visier og Garcia Padron hálfur vinningur, en þeir Hernandez og Cabrera hafa enn ekki hlotið punkt. Anthony Miles, Englandi, kom beint til Las Palmas af skákmóti í Sao Paulo í Brazilíu, þar sem hann varð í þriðja sæti. Þar kom mjög á óvart, að Sanguinetti, Argentínu, varð neðstur. Röð efstu manna varð þessi: 1. Vaganjan, Sovétríkjunum, með tíu vinninga af 13 mögulegum. 2. Quinteros 9 vinn. 3. Miles, Rasu- vajev og Benkö með átta vinn- inga. Síðan komu Segal, Rocha og Kaplan með sjö vinninga. Eftir níu umferðir á skák- mótinu í Júgóslavíu var austur- þýzki stórmeistarinn Uhlmann efstur með sex vinninga og bíð- skák. Ribli, Ungverjalandi, Gligoric, Júgóslavíu, og Sax, Ung- verjalandi voru með 5,5 vinninga. Matulovic, Júgóslavíu, með 4,5 vinninga. Radulov, Búlgaríu, með 4 vinninga og biðskák. Rajkovic, Júgóslavíu, með 3,5 vinninga og tvær biðskákir, Ulf Andersson, Sviþjóð, með 3,5 vinninga og eina biðskák, Smejkal, Tékkóslóvakíu 3,5 vinninga — en í áttundu um- Mikael Tal ferð gerðu þeir Andersson og Smejkai jafntefli. Andersson á biðskák úr níundu umferð gegn Govedarcia, neðsta manni mótsins. Sahovic, Júgóslaviu, var með þrjá vinninga og tvætr biðskákir eftir níu umferðir", Barle, Júgóslavíu, þrjá vinninga og eina biðskák og Govedarcia 1,5 vinning og biðskák. Stórmeistarinn júgóslavneski Velimirovic þykir nú einn snjall- asti sóknarskákmaður heims. Oft kallaður Tal Júgóslavíu. Það er vegna þess að hann minnir oft á Tal í skákum sinum. Óhræddur við að fórna og flétta, ekki sfður en heimsmeistarinn fyrrverandi frá Riga. Það var því mikil spenna í Moskvu þegar Tal og Velimirovic settust gegnt hvor öðrum við skákborðið á Evrópumeistaramót- inu. Þar gekk á ýmsu — teflt djarflega eins og áhorfendur höfðu reiknað með. Aðeins hall- aði á Júgóslavann og hann bauð þá jafntefli. Tal tók ekki boðinu — en nokkru síðar var staða hans orðin lakari. Þá bauð Tal jafn- tefli. JúgQslavinn afþakkaði. Setti allt sitt traust á að koma upp peði — en gafst svo upp með tvær drottningar á borðinu!! Lítum á skák kappanna. Hvítt: — Tal Svart: — Velimirovic. 1. c4 — c5 2. Rf3 — g6 3. d4 — Bg7 4. d5 — Rf6 5. Rc3 — d6 6. e4 — 0-0 7. Bf4 — Rh5 8. Bg5 — h6 9. Bd2 — e5 10 dxe — Bxe6 11. Be2 — Rc6 12. 0-0 — He8 13. Be3 — Prozlsterkir stálofnar Framleiðum samkvæmt íslenskri hönnun, nýja tegund stálofna sem eru sérstaklega ætlaðir til að þola og nýta hitaveituvatn sem best. Ofnar þessir henta einnig mjög vel við önnur kerfi. Pelrvru: ★ Framleiddir úr þykkara og sterkara efni en aörír ofnar hérlendis. ★ Fyrirferöalitlir, falla vel I umhverfiö. Þykkt frá 15 mm. Bnfaldir, tvöfaldir, þrefaldir eöa fjórfaldir, oftir aöstæöum, til bestu hitanýtnf fyrir hvem og einn. ★ Lágt verö, leitiö tilboöa. Stuttur afgreiöslufrestur. Db6 14. Dd2 — Rd4 15. Bxd4 — cxd 16 Rb5 — Bxd5 17. exd — Rf6 18. Hadl — Re4 19. Dc2 — a5 20. Rel — a4 21. Rd3 — Dc7 22. Hcl — a3 23. b3 — Rc3 24. Hfel — h5 25. Bf3 — b5 26. cxb — Da5 27. g3 — Dxb5 28. Kg2 — h4 29. Rf4 — He5 30. gxh — Hae8 31. Rd3 — Rxa2 32. Dxa2 — Dxd3 33. Hedl — Da6 34. Hxd4 — Hel 35. Hdc4 — Bb2 36. Hxel — Hxel 37. b4 — Be5 38. h5! — Hal 39. Dc2 — a2 40. hxg — Hgl+ 41. Kxgl — alD+ 42. Kg2 TAL 1 þessari stöðu hugsaði Veli- mirovic sig um í klukkustund áður en hann iék biðleiknum. Hann var 42.------Bf6 en hann stoðar lítið frekar en aðrir ieikir svarts í stöðunni. Júgóslavinn gafst upp án þess að tefla frekar — og það er auðvelt að sjá hvers vegna. TÖLVU-IÍRfrá CABðO meðj skeiðklukku ogtímaminni R-18B-1 býður uppá: 1) Klukkust., mín., 10 sek.. 5 sek., 1 sek. 2) Fvrir hádegi — eftir hádegi. 3) Mánuður, dagur, vikudagur. 4) Sjálfvirk dagatalsleiðréttíng um mánaoamót. 5) NáKvæmni +/+ 12 sek.á mánuði. 6) Ljóshnappur til aflestrar i myrkri. 7) Rafhlaða' erendist vfir la manuði. Verð kr. 650,- 8) Rvðfrítt stái. 9) 1 árs ábyrgð og viðgerðaþjonusta. STÁLTÆKI Vesturveri, sími 27510. STfiLOFMfSRHF. MÝRARGÖTU 28, SÍMI 28140 Nú kveóur viö nýjan tón Allar götur síðan 1936 hefur Málningarverk- smiðjan Harpa verið í fararbroddi, hvað snertir nýjungar í framleiðslu á málningu, lakki og ýms- um kemiskum efnum byggingariðnaðarins. Frá upphafi hefur rannsóknarstofa fyrirtækisins rekið umfangsmikla starfsemi, sem beinist að því að reyna þol og gæði framleiðslunnar við mismunandi íslenzkar aðstæður. Sérstaða Hörpu meðal málningarframleiðenda á íslandi er fólgin í því, að Harpa notar ein- göngu uppskriftir sem hannaðar eru á rann- sóknarstofunni fyrir hina umhleypingasömu ís- lenzku veðráttu. Reynsla fengin af nær 40 ára viðureign við íslenzkt veðurfar tryggir gæði framleiðslunnar. LÁTIÐ HÖRPU GEFA TÓNINN HARPA SKÚLAGÖTU 42

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.