Dagblaðið - 20.05.1977, Page 14

Dagblaðið - 20.05.1977, Page 14
 Iþróttir PAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUH 20. MAÍ 1977. ísland nærri sigri — en Grikkir jöfnuðu í lokin Þjálfarar islenzka unglingalandsliðsins Lárus Loftsson og Theódór Guðmundsson — hafa náð ágætum árangri saman. DB-mynd Bjarnleifur. íslandsmet kvenna FH Kvennasveit FH setti tslands- met í 4x200 metra boðhlaupi i gær er sveitin hljóp vegalengdina á 2:06.2. Raunar var þetta í fyrsta sinn sem hlaupið er hérlendis í þessari vegalengd en sveitina skipuðu þær Hildur Kristjáns- dóttir, Matthildur Pálsdóttir, Guðrún Arnadóttir og Anna Haraldsdóttir. Karlasveit FH hljóp einnig 4x200 metra boðhlaup og náði tímanum 1:46.5. Þá hljóp karla,- sveit FH einnig í 1500 metra boðhlaupi og náði fjórða bezta tima félagssveitar hér á landi — fékk tímann 3:47.5. Tvitugur Hafnfirðingur Kristján Sigurgeirsson, sigraði í spjótkasti — kastaði 54.50. Valdi- mar Gunnarsson sigraði í kúlu- varpi — varpaði 12.02. Ólafur Unnsteinsson hélt upp á 26 ára keppnisafmæli sitt er hann sigraði í kringlukasti — kastaði 36.14. í kringlukasti kvenna sigraði Kristjana Þorsteinsdóttir úr Víði — kastaði 37.60 — en íslandsmet Guðrúnar Ingólfs- dóttur er 38.22. Kristjana er inikið efni. ÍSAL stendur nú á bak við frjálsíþróttadeild FH og hefur fyrirtækið styrkt FH með kaupum á 50 félagsbúningum. ísland og Grikkland skildu jöfn 1-1 á EM-unglinga England sigraði Belga 1-0 í sama riðli ákveðin rútina og leikreynsla — Ég er mjög ánægður með leik íslenzku strákanna. Þeir léku mun betur en ég átti von á — skynsamlega og ákveðið. Hitt er svo sárt að missa leikinn niður í jafntefli eftir að hafa verið svo nærri sigri — en jafntefli voru i raun réttlát úrslit, sagði Helgi Daníelsson, fararstjóri islenzka unglingalandsliðsins, sem í gær gerði jafntefli við Grikki 1-1 á Evrópumóti unglinga í Belgíu. — Uppistaðan í unglingalands- liðinu nú er liðið er lék í Finnlandi '75. Það er komin liðið og það sýndi sig greinilega í leiknum við Grikki. Nú vantar okkur framhald — lið skipað leik- mönnum undir 21 árs aldri, hélt Helgi áfram. Grikkir ætluðu sér mikið hér í Belgíu og þeir höfðu gjörsigrað Ungverja um réttinn til að koma hingað. islenzka liðið byrjaði leikinn af jnikluni krafti hér í Antwerpen og náði þegar undirtökunum. Eftir aðeins 5 mínútna leik var staðan 1-0 íslandi í vil. Tekin var aukaspyrna og knötturinn sendur inn í vítateig Grikkja. Þar féll hann fyrir fætur Einars Ólafsson- ar, sem sendi knöttinn efst í vinstra markhornið með föstu skoti — mjög gott mark, 1-0. Ísland hafði undirtökin í leikn- um fram að leikhléi en eftir leik- hlé náðu Grikkir betri tökum á leiknum og þeir jöfnuðu á 74. mínútu — aðeins 6 mínútum fyrir leikslok. Knötturinn var sendur fyrir mark Íslands og Rúnar Sverrisson náði ekki knettinum — átti mislukkað út- hlaup og Grikkir náðu að skalla knöttinn í netið. Nokkuð slysalegt mark — 1-1 en sanngjörn úrslit jafnra liða. Íslenzka liðið var þannig skipað: Markvörður Rúnar Sverrisson Þrótti. Aðrir leik- menn: Ottó Hreinsson, Þrótti, Úlfar Hróarsson, Val, Börkur Ingvars- son, KR, Guðmundur Kjartans- son, Val, Einar Ólafsson, ÍBK, Sigurður Björgvinsson, ÍBK, Þórir Sigfússon, ÍBK, Rafn Rafnsson, Fram, Magnús Jónsson, KR, og Jón Orri Guðmundsson, Breiðablik. Þeir Jón Einarsson Val, og Sverrir Einarsson, Þrótti, komu inn sem varamenn. Karl Guðmundsson fylgdist með leik Englendinga og Belga, sem lyktaði með sigri Englands 1-0. Belgar voru mjög óhressir með ósigur og Karl sagði að bæði liðin væru mjög sterk. Mark Eng- lands skoraði Statham, en hann er fastur maður i liði WBA. island leikur við England á laugardag. Guðjón Finnbogason dæmdi leik Austurríkis og Möltu en honum lyktaði með jafntefli 0-0. Úrslit leikja: England — Belgía 1-0 island—Grikkland 1-1 b-riðill: Írland — Frakkland 1-0 Júgóslavía — V-Þýzkaland 1-2 c-riðill: Austurriki — Malta 0-0 Sovétrikin — N-írland 1-1 d-riðill: Svíþjóð — Holland 2-1 Hins vegar vantar okkur úrslit úr leik Búlgaríu og Ítalíu. Hreinn haf naði í öðru sæti í Crystal Palace —varpaði kúlunni 20,12 m en Bretinn Geoff Capes sigraði, 20,33 m bæði í 100 og 200 metra hlaupun- I tíniann 20.7 i 200 metrunum — um. Quarrie hljóp 100 metrana á þar Varð David Jenkins annar . 10.52 — og annar varð Steve 21.1. Green á 10.59. Don Quarrie fékk | Juventus vann sinn fyrsta Evróputitil Hreinn Halldórsson hafnaði í öðru sæti á Crystal Palace mótinu í Lundúnum á niiðvikudags- kvöldið. Hreinn kastaði 20.12 en náði sér ekki á strik —virtist taugaóstyrkur f.vrir framan hina fjölmörgu áhorfendur. Bretinn Geoff Capes sigraði í mótinu — kastaði 20.33. Geoff Capes náði sínu kasti — 20.33 þegar í f.vrsta kasti og setti það greinilega pressu á-þá Komar frá Póllandi, olympíumeistarinn frá Munchen '72 og Hrein. Hvorugur náöi sér á strik — Hreinn kastaði 20.12, Komar 19.70. Asgeir Asgeirsson keppti i 3000 metra hindrunarhlaupi og hafnaði í 17. sæti — vel frá íslandsmeti sínu. Annars einkenndi mótið góð frammistaöa blökkumanna Afríku. Þar fór fremstur Filbert Ba.vi frá Tanzaniu, sem sigraöi í 3000 metra hlaupinu — meter á undan Bretanum Steve Ovelt. Bayi náði sínum bezta tima i greininni — 7:53.20. Sulaiman Naimbui sigraði í 5000 metra hlaupinu — á 13.34.6. En þó var Kenyahúinn Wilson Waigwa mest sannfærandi er hann sigraöi i 1500 metra hlaupinu. náði mjög góðum endaspretti og sigraði á 3:41.7. Olympiuhafinn frá Montreal, Don Quarrie frá Jamaica sigraði Hreinn Halldórsson — varð annar í Crystal Palace. Juventus vann sinn fyrsta sigur í Evrópukeppni á miðvikudags- kviildið er ítalska liðið beið ósigur 1-2 fyrir Atletico Bilbao. Þrátt fyrir ósigur í Bilbao vann Juventus. ítalska liðið sigraði 1-0 í Torino og útimarkið dugði Juventus því til sigurs i keppn- inni. Juventus — 16 sinnum ítalskir meistararar — fékk sannkallað óskastart þegar ítalski landsliðs-- maðurinn Bettega skallaði knött- inn i netið — kastaði sér fram, glæsilegt mark. Markið var sem vítamínsprauta á leikmenn Atle- tico — eftir aðeins 5 mínútur höfðu þeir jafnað er Churruca sendi fasta sendingu fyrir mark Juventus. Knötturinn fór á Irureta og framhjá Dino Zoff í marki Juventus. Atletico Bilbao tókst að koma knettinum í netið fyrir leikhlé — Irureta — en inarkið var dæmt af. Atletico náði síðan forustu á 78. mínútu þegar Carlos Rose skallaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu. Pressa Atletico var þung það sem eftir var og Baskarnir hvöttu lið sitt ákaft en Juventus tókst að halda út — og titillinn var þeirra, fyrsti Evróputitill Juventus i höfn. Landsliðið sigraði pressuliðið 1-0 á Kaplak fyrri hálfleik. Bæði lið sýndu góða samleiki Atli Eðvaldsson. Einar Þórhallsson og menn sigruðu stjórn KSÍ 5-4 í jöfnum leik. í) Þegar fjölskyld fargjöld, þá borga: aöeins hálft. Þannig eru fjöl allt áriö til allra h Fullt fargjald : hálft fyrir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.