Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 20.05.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 20.05.1977, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1977. 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 1 rikavelli á miðvikudagskvöldið. Eina mark leiksins skoraði Kristinn Björnsson i ikafla og baráttu. ADB-mynd Bjarnleifs stekkur Janus Guðlaugsson hæst en þeir Jön Gunnlaugsson fylgjast með. Þór Hreiðarsson biður spenntur. íþróttafrétta- Baráttu Sunderland lauk á Goodison! —Sunderland féll í 2. deild í gærkvöld. Beið ósigurO-2 fyrir Everton en Coventry og Brístol City skildu jöfn 2-2 Sunderiand féll í gærkvöid í 2. deild á Engiandi eftir ósigur á Goodison Park í Liverpool 0-2. A meðan skildu Coventry og Bristol City jöfn á Highfield Road í Coventry — 2-2. Sigur á annan hvorn veginn í Coventry hefði þýtt að Sunderland hefði haldið sæti sínu — en eftir mikla bar- áttu, sem um áramót virtist von- laus, og síðan stórsigra , sem gáfu liðinu góðar vonir er gengið var til síðasta leiksins er allt hrundi, verður Sunderland að sætta sig við fall í 2. deild. Everton yfirspilaði taugaslappt lið Sunderland þegar frá upphafi og hefði sigur Everton getað orðið mun stærri. Everton náði forustu þegar á 11. mínútu þegar Bob Latchford skoraði. Látlaus sókn að marki Sunder- land allan leikinn — en þrátt fyrir það kom síðara mark Ever- ton ekki fyrr en á 89. mínútu að Bruce Rioch skoraði síðara mark Everton og sendi Sunderland í 2. deild. Coventry náði sannarlega góðri stöðu á Highfield Road í Coventry — eftir 52 mínútur var staðan 2-0 Coventry í vil og áhangendur liðsins hvöttu lið sitt ákaft. Tommy Hitchinsson skoraði bæði mörk Coventry — síðara markið kom á 52. mínútu. En leikmenn Bristol City neituðu að gefast upp — og aðeins mínútu síðar minnk- aði Gerry Gow muninn í 2-1. Við markið færðist mikil spenna i leikinn — annað mark Bristol City myndi sökkva Coventry í 2. deild, að því gefnu að Sunderland næði stigi. Og Bristol City sótti mjög — á 80. mínútu skoraði Don Gilliew og fögnuður leikmanna Bristol City var gífurlegur — þá ekki síður hinna fjölmörgu áhangenda þess sem ferðuðust frá Bristol. En þar sem áhangendur Coventry voru ríkti þögn — og vonleysi. Hvorugu liðinu tókst að skora það sem eftir var. Síðan voru úrslitin frá Goodison Park til- Sovétmenn sigruðu Ungverja 2- 0 í undankeppni Heimsmeistara- keppninnar. Þrátt fyrir sigur gegn Ungverjum eru möguleikar Sovétmanna hverfandi. Til að komast áfram upp úr riðlinum verða Grikkir að sigra Ungverja í Ungverjalandi — en sáralitlar líkur eru á því. kynnt og allt ætlaði vitlaust að verða — fólk dansaði og hundruð áhorfenda þustu niður á völlinn í gleði sinni — þeirrá lið'voru hólp- in. En naumt var það. Flesiír höfðu gefið Bristol City upp á bátinn fyrir nokkrum umferðum — því liðið hefur verið i neðsta sæti 1. deildar um hríð. En gífur- leg barátta og staðföst neitun á að falla héldu Bristol City í 1. deild — fyrsta árið eftir 65 ára fjar- veru. Sunderland féll ásamt Stoke City og Tottenham. Coventry og Bristol City hlutu 35 stig — Sunderland og Stoke 34 og Tottenham 33 — naumara gat það vart verið. Þeir Burjak og Blokhin skoruðu mörk Sovétmanná þegar í fyrri hálfleik en leikurinn fór fram í Tiblisi. Staðan í riðlinum er: Sovétríkin 4 2 0 2 5-3 4 Grikkland 3 1112-3 3 Ungverjaland 3 111 3-4 3 SOVÉTMENN SIGRUÐU UNGVERJ A í TIBLISI Lan ferðast saman og notar fjölskyldu- r einn fullt fargjald, en allir hinir Lskyldufargjöld okkar er gilda nú íorðurlandanna og Bretlands. Fjölskyldufargjöld henta vel jafnt vetur sem sumar, og hvort heldur um er að ræða orlofsferð eða viðskipta- erindi. Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn og ferðaskrif- stofumar um þessa auknu ferðamöguleika allrar íj ölskyldunnar. fyrir einn, alla hina. flucfélac LOFTLEIBIR ISLAJVDS

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.