Dagblaðið - 23.05.1977, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. MAÍ 1977.
ÚRVflL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓflU/Tfl
/4/allteitthvað
gott í matinn
STIGAHLÍÐ 45^47 SÍMI 35645
Kalda strídinu er lokiö
segir Carter Bandaríkjaforseti
Carter Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í gærkvöld, aö
kalda stríðinu við Sovétríkin
væri nú loksins lokið. Forsetinn
ræddi um utanríkisstefnu lands
sins síðan í seinni heimsstvrj-
öldinni og sagði: „Stefna okkar
verður að spegla tru okkar um,
að heimurinn geti vænzt annars
og meira en bara að tóra.“
Forsetinn kvað það skyldu
Bandaríkjamanna að hjálpa til
við gerð alþjóðlegs kerfis, sem
gilti lengur en ieynisamningar
milli ríkja. Hann bætti við:
„Við erum nú frjáls af þessari
óskaplegu kommagrýlu."
Utanríkisstefna Bandaríkj-
anna verður í framtíðinni
íslenska járnblendifélagið hf.
Lágmúla 9,
Reykjavík.
Framkvæmdastjóri
íslenska járnblendifélagið hf. óskar að ráða fram-
kvæmdastjóra til að veita félaginu forstöðu. Skrifstofa
þess verður að Grundartanga i Hvalfirði. Umsóknir, er
greini menntun og fyrri störf, skúlu vera á íslensku og
jafnframt einu Norðurlandamáli eða ensku. Senda ber
umsóknir á nafn félagsins að Lágmúla 9, Reykjavik, b/t
Hjörtur Torfason, varaformaður, eigi síðar en 6. júní nk.
grundvölluð á beitingu valds og.
áhrifa í mannlegum tilgangi og
til að mjókka bilið milli ríkra
þjóða og fátækra, að sögn for-
setans.
Mættir í slaginn. Marokkanskir hermenn við komuna til Kolwezi, stærsta þorps Shabahéraðs í Zaire.
HERLIÐ MAROKKÓ ORÐIÐ
Flokkar við allra ha*fi.
Morgúnlimgr — dagtímar — kvöldtimar
Gufa — Ijós — kaffi — nudd.
Innritun og upplýsingar i síina 8.1295
alla virka daga kl. l.'t—22.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur hf.
Fjölbreytt húsgagnaúrval á tveimur hæðum
Seljum
vönduð
íslenzk
húsgögn
Mjögfjöl-
breytt úrval
af
sófasettum.
Verðmjög /r*\ Húsgagnaverzlun
hagstætt. f p|) Reykjavíkur hf.
BrautarhoKi 2 — Súnar 11940 * 12691
ÓÞARFT í ZAIRE
— segir Hassan Marokkókonungur
Hassan MaroKkókonungur
sagði í útvarps- og sjónvarps-
ávarpi i gær, að Shaba-héraðið í
Zaire hefði verið ,,frelsað“.
„Stríðinu þar er lokið, eða það er
um það bil að taka enda,“ sagði
konungurinn. — Hann sendi sem
kunnugt er mikið herlið stjórnar-
her Zaire til aðstoðar, er inn-
rásarmenn gerðust uppivöðslu-
samir í héraðinu. _
Konungurinn minntist ekkert á
það, hvenær hermenn hans yrðu
kallaðir heim. Utanríkisráðherra
Marokkó, Ahmed Laraki, sem nú
er í heimsókn í Zaire, sagði í
gærmorgun að hermenn lands
hans hefðu greinilega lokið hlut-
verki sínn «landinu.
í ræðu sinni sagði Hassan
meðal annars, að Shabahérað hafi
orðið fyrir árás innrásarliðs „frá
landi, sem telst óvinveitt okkur,“
— þar átti konungurinn greini-
lega við Angola.
Herlið Marokkó var flutt flug-
leiðis til Zaire 9. apríl síðast-
liðinn. Stjórnvöld þar segja inn-
rásarmennina hafa komið frá
Angola með hjálp sovézkra og
kúbanskra hermanna. Því hefur
hins vegar þráfaldlega verið
neitað, að Kúba og Sovétríkin eigi
nokkurn þátt í þessari innrás.
Bandaríkjamenn
auka tedrykkjuna
Tölur, sem bandaríska land-
búnaðarráðuneytið lét nýlega frá
sér fara, sýna, að vegna ört hækk-
andi verðlags á kaffi snúa lands-
menn sér í síauknum mæli að
teþambi. Fyrsta ársfjórðung
þessa árs notuðu Bandaríkja-
menn aðeins þrjú pund af kaffi að
meðaltali — en 3,6 pund á sama
tíma í fyrra.
Þá er talið að metinnflutningur
verði af tei á þessu ári. Spár land-
búnaðarráðuneytisins sýna að 200
milljón pund verða flutt inn á
móti 181 milljón punda í fyrra.
Smásöluverð á kaffi var fyrstu
þrjá mánuði ársins 81% hærra í
Bandaríkjunum en á sama tíma í
fyrra.
Rio de Janeiro, Brasilíu:
Bráðskemmtilegt rán
Brasilíumaður, búsettur i Rio
de Janeiro, lenti í heldur
óskemmtilegum, eða öllu heldur
bráðskemmtilegum, þjófum nú í
vikulokið. Er hann var á heimleið
stöðvuðu hann tveir menn og til-
kynntu honum kurteislega, að
þeir þyrftu þegar í stað á bíl hans
að halda vegna áríðandi stefnu-
móts, en honum yrði skilað
daginn eftir.
Næsta morgun hringdi maður,
sem lét nafns síns ekki getið, og
tilkynnti um hvar bílinn væri að
finna. Bensíntankurinn hafði
verið fylltur og I hanzkahólfinu
var þakkarbréf og tveir aðgöngu-
miðar að söngleik, sem sýndur er
um þessar mundir í Rio.
' Maðurinn notfærði sér að sjálf-
sögðu aðgöngumiðana og bauð
konu sinni með sér. Þau skemmtu
sér dável um kvöldið, — allt þar
til þau kornu heim aftur. Brotizt
hafði verið inn í íbúð þeirra og
hún tæmd! — Brasilíska dag-
blaðið Jornal do Brazil sagði
þessa broslegu raunasögu og
bætti við einu ummælum bíleig-
andans, sem kaus að láta nafns
síns ekki getið: „Það er ekkert
öryggi fyrir þjófum hér í Rio, en
það verður að viðurkennast að
þeir hafa kímnigáfuna í lagi.“
Erlendar
fréttir
MMÉa
ÁSGEIR
TÖMASSON
I
REUTER
n