Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.05.1977, Qupperneq 7

Dagblaðið - 23.05.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. MAÍ 1977. 7 —prentarar fjölluðu um hana ímorgun Eigendur Berlingske útgáfu- fyrirtækisins í Kaupmanna- höfn hafa fyrir sitt leyti sam- þykkt sáttatilboð í deilu sinni við prentara fyrirtækisins. Prentararnir hugðust koma saman í morgun og ræða tillög- una. — Deila þessi hefur stöðvað útkomu allra blaða Berlingske síðastliðna fjóra mánuði. _ Upphaflega reis ágreiningur- inn milli útgáfustjórnarinnar og prentara er segja átti upp 350 prenturum. Ástæðan var sú, að innleiða átti nýja prent- tækni, sem krefst færri starfs- manna. Prentarar lögðu niður vinnu og þrátt fyrir að vinnu- máladómstóll Danmerkur skipaði þeim þrisvar að hverfa aftur til starfa sinna, létu þeir það sem vind um eyru þjóta. Utgáfustjórnin rak þá alla prentarana, eitt þúsund að tölu. Sá brottrekstur hafði þær af- leiðingar í för með sér að prent- arar um gjörvalla Danmörku efndu til þriggja vikna verk- falls og á þeim tíma komu sára- fá dagblöð út í landinu. — Eftir að verkfallinu lauk komu fjögur neyðarblöð út hjá Ber- lingske. Verkstjórar fyrirtækis- ins sáu um útgáfuna og blöðun- um varð að dreifa undir lög- regluvernd vegna mikilla mót- mæla prentara og stuðnings- manna þeirra. Lítið hefur frétzt um nýju tillöguna, sern prentarar fjöll- uðu um í morgun. Þó hefur lekið út, að þar sé rætt um að 200 manns láti af störfum í stað 350 eins og upphaflega hafði verið ráðgert. Þessi mynd var tekin í janúarlok, er formaður danska prentarafélagsins ræddi við starfsmenn Berlingske Tidende. Þeim hafði þá nýlega öllum verið sagt upp störfum. —Er deila prentara og útgefenda Berlingske að leysast? Útgefendur hafa samþykkt nýtilkomna sáttatillögu Vopnin snerust illilega íhöndum Daily Mail: Leyland-mútumálið reyndist falsað Pappírsgögn þau sem brezka dagblaðið Daily Mail hafði undir höndum og áttu að sanna stórkost- lega fjármálaspillingu innan Ley- land bifreiðafyrirtækisins reynd- ust vera fölsuð. Þar var að verki Graham Barton fjármálalegur framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann játaði við yfirheyrslur, að hann hafi með fölsununum viljað vekja athygli á greiðslum fyrir- tækisins til manna og fyrirtækja, sem hann taldi ekkert annað en mútur. Þegar er Daily Mail skýrði frá máli þessu var fyrirskipuð rann- sókn á fyrirtækinu. Stjórnendur Leyland hafa nú fyrirskipað sína eigin innri rannsókn. Á. laugar- daginn var tilkynnt, að enga vís- bendingu væri að finna um mútu- greiðslur né óeðlilegar peninga- greiðslur til umboðsmanna í öðr- sögninni „Mútuvefur Leyland- Ritstjóri Daily Mail, David um heimsálfum. fyrirtækisins nær um allan English, bað iðnaðarráðherra Talsmaður fyrirtækisins sagði heim“, hefði skaðað útflutning landsins og Ryder stjórnarfor- að frásögn Daily Mail, sem birtist fyrirtækisins verulega, sér í lagi mann Leyland afsökunar í blaði á fimmtudaginn undir risafyrir- til Afríku og Mið-Austurlanda.— sínu á laugardaginn. Reyndi að kveikja í konu sinni Giuseppe Valenti, búsettur í Siracusa á Sikiley, varð alveg bál- öskuillur dag einn er hann kom heim I hádegismat og sá, að kona hans var ekki búin að elda spaghettið. Hún hafði eytt morgn- inum við að þvaðra við nágranna- konurnar. Giuseppe náði þvf í konu sína og hugðist sýna henni í eitt skipti fvrir öll hver væri hús- bóndinn á heimilinu. Hann hellti olíu yfir Maríu sína og ætlaði að leggja eld að henni. Óp hennar fengu hins vegar ná- grannana til að koma hjálpar og kalla a lögreglu. Giuseppe sá sitt óvænna og flúði út á akrana. Þar náði lögreglan honum og situr hann nú inni ákærður um morðtilraun. MA BJOÐA ÞER ÞAÐ BESTA SEM TIL ER PORTONOVA LÚXUStBÚÐIR KONUNGLEGRA GESTA Þessar Ibúðir eru f algjörum sér- flokki, þær glæsilegustu sem sést hafa á Spáni. Loftkæling. Nýtízku lúxus húsgögn. Stofa, eldhús, bað og eitt eða tvö svefnherbergi. Fullkom- in hótelþjónusta. Glæsilegt útivist- arsvæði með sundlaugum. 2 þjónustuskrifstofur Sunnu eru nú á MALLORCA. Barnagæsla og leik- skóli í umsjá fslenzkrar fóstru. Ókeypis þjónusta, fyrir Sunnugesti. Brottfarardagar: 6. maí uppselt. 13. maf uppselt. 22. maf uppselt. 27. maf örfá sæti laus. 12. júnf fáein sæti laus. 3. júlf, 24. júlí, 31. júlf, 7. ágúst fá sæti laus. 14. ágúst uppselt. 21. ágúst fáein sæti laus. 28. ágúst fáein sæti laus. 4. sept. nokkur sæti laus. 11. sept., 18. ^pt., 25. sept. . F f TRIMARAN GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Þetta er staðurinn sem býður upp á hvort tveggja, spennandi skemmt- analff fyrir unga fólkið og rólega og fagra baðströnd, sannkallaða Para- dís fyrir fjölskyldu- og barnafólk. Glæsilegar fbúðir í fögru umhverfi rétt við baðströndina. Frábærlega vandaðar fbúðir með fullkomnum eldhúsum og baðherbergjum, sól- svölum og einu eða fleiri svefnher- bergjum. Trimaran er eina fbúðarhótelið f Lloret de Mar á Costa Brava með einkasundlaugum fyrir gesti sína. Kynnið ykkur hin sérstaklega hag- stæðu kjör fyrir fjölskyldur. Auk þess sérstakar fbúðir og hótel ein- göngu fyrirungt fólk. LA CAROLINA, hótel í sérflokki. Leikskóli og barnagæsla -ókeypis fyrir Sunnugesti. Brottfarardagar: 12. júnf uppselt. 3. júlí. 24. júlí. 31. júlí. 7. ágúst. 14. ágúst. 21. ágúst. 28. ágúst. 4. sept. 11. sept. PLAYAMAR LÚXUXlBtJÐIR í SÉRFLOKKI PLAYAMAR íbúðirnar eru 21 stór- hýsi með loftkældum lúxusfbúðum, með stóru útivistarsvæði, görðum sundlaugum (þeir stærstu á Costa del Sol), leiksvæðum, veitingastöð- um, kjörbúðum o.fl., alveg við beztu baðströndina, skammt frá miðborg Torremolinos. Glæsilegar stofur með harðviðarinnréttingum, full- komnum eldhúsum, böðum og einu eða tveimur svefnherbergjum. Auk þess býður Sunna á Costa del Sol fleiri íbúðir og hótel og raðhús með einkasundlaugum í Nýju Anda- lúsíu, Marbella. Leikskóli og barna- heimili fyrir Sunnugesti. Brottfarardagar: 15. maf. 30. maí uppselt. 17. júní uppselt. 8. júlí. 29. júlí. 5. ágúst. 12. ágúst. 19. ágúst. 26. ágúst. 2. sept. 9. sept. 16, sept. 30. sept. Sannkölluð sumarparadfs. Aldrei kait — aldrei ofsa- hiti. Vegna hagstæðra samninga á heilsársgrund- veili getum við nú boðið sumarferðir til Kanarfeyja með dvöi á eftirsðttum fbúðahótelum s.s. KOKA, CORONA ROJA, CORONA BLANCA og SUN CLUB á svipuðu verði og 2ja vikna ferðir til meginlands Spán- ar og Mallorca. Brottfarardagar: 15. maf. 30. maí. 17. júní. 8. júlf. 29. júif. 19. ágúst. 9. sept. 30. sept. GRIKKLAND Nýjung sem margir hafa beðið eftir. Loksins bjðð- ast íslendingum skipuiagð- ar Grikklandsferðir frá aprfllokum til oktðber- loka. Glæsileg hðtel og fþúðir á Aþenuströndum og á eynni Krít. Grikkiandsferð er ævintýri sem aldrei gleymist. Sunnuþjðnusta með þjálf- uðum fararstjðrum á staðnum. KAUPMANNA- HÖFN Alla mánudaga í sumar: Verð frá kr. 47.000.- FEMMSKRIFSTOMN SUNNA LXKJARGOTU 2 SIMAR 16400 12070

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.