Dagblaðið - 23.05.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 23.05.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGÚR 23. MAl 1977. TVEGGJA MÁNAÐA BIÐ EF ORLOFS- r_ r IIAV Eigendurorlofsfjárstandavarnarlausir AVISUN TYNIST gegnkerfinu Postur og simi hefur nýverið sent út orlofsávisanir til launþega fyrir siðasta orlofs- timabil. Avisanirnar eru stilaðar á nafn og sendar tii eigenda sinna i almennum pósti. Nú voru sendar um 70 þúsund ávisanir að upphæð á þriðja milljarð, þannig að hér er um mikil verðmæti að ræða. En stöku sinnum kemur það fyrir að ávísun misferst af ein- hverjum ástæðum og kemst þvi ekki til eiganda sins og stendur Iaunþeginn þá varnarlaus gegn kerfinu og verður að biða 1 tvo mánuði, eða þangað til næsta ávisun verður gefin út og hin fyrri fellur úr gildi. Má nærri geta hversu óþægilegt slíkt er fyrir fólk, sem er að fara í sumarleyfi og treystir að sjálf- sögðu á orlofsféð. Af þessu tilefni hafði DB BIAÐIÐ Blaðburðarbörn óskast strax á Akranesi. Vegna sumarleyfa sér Aldís Hjörleifs- dóttir um afgreiðslu Dagblaðsins fyrst um sinn. — Sími 1584. íslenska jámblendifélagið hf. Lágmúla 9, Reykjavík. Raforkuverkfræðingur Isienska járnblendifélagið hf. óskar að ráða raforkuverk- fræðing til starfa við byggingu kísiljárnverksmiðjunnar að Grundartanga og síðar við rekstur og viðhald raforku- virkja hennar. Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri störfum, sendist Jóni Steingrímssyni, íslenska járnbiendifélaginu hf. Lágmúla 9, Reykjavík, eigi síðar en 6. júní nk. samband við Birgi S. Her- mannsson, yfirmann orlofs- deildar Pósts og síma. Hann sagði að sem betur fer væri það ekki algengt að slíkar ávísanir týndust, en það kæmi þó fyrir. Samkvæmt reglugerð má ekki greiða launþegum orlofsféð fyrr en eftir tvo mánuði og hefur það þá venjulega verið gert með gíróseðli. Birgir sagði að ekki ættu aðrir en eigendur að geta leyst út orlofsávisan- irnar, þar sem per- sonuskilrikja væri krafizt í öllum tilfellum. Ef bréfin væru send í ábyrgð ætti þó að vera hægt að koma í veg fyrir þetta vandamál, en Birgir sagði af ef slíkur fjóldi bréfa yrði senduri ábyrgðar- pósti myndi skapast hálfgert öngþveiti á pósthúsum og iang- ar biðraðir mynduðust. Málið hefur þó komið til um- ræðu og hata einstök stéttar- ■•Célög fjallað um þennan vanda. bliígir sagði að Póststjórnin myndi bera málið upp við félagsmálaráðuneytið, sem þessi mál heyra undir. En meðan núverandi reglu- gerð gildir er ekkert hægt að gera og hinir óheppnu verða aðeins að bíta i hið súra epli. -JH. DB-mynd: Sv. Þorm Hér sjást göngumenn á leiðinni yfir Arnarneseiðið. Efnt var til Straums- 'víkurgöngu sl. laugardag til að mótmæla setu Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Lagt var af stað snemma laugardags- morguns og haldið gegnum Hafnarfjörð, Kópavog og út á Miklubraut. Alla leiðina frá Straumi voru stöðugt ad bætast í gönguna fleiri og fleiri þátt- takendur oe var gizkað á aö um þrjú til fjögur þúsund manns hefðu verið á fundi j)eim á Lækjartorgi sem efnt'vár til í göngulok. Ekki var gengið í einni lotu heldur staldrað við og haldnir fundir með ræðuhöldum og skemmtiatriðum bæði í Hafnar- firði og við trússhestinn í Soga- mýri. Hrópuðu göngumenn slagorð um úrsögn Islands úr Nató og herinn á brott og sungu gamlan ástralskan slagara með nýjum íslenzkum texta um brottför hersins. Þóttu mótmælagangan og baráttufundurinn hafa tekizt með ágætum og verið aðstand- endum til sóma í hvívetna. -BH. - og allar hirslur, sem med þarf á skrifstofu. Skrifstofuborö í þremur plötustæröum og úr þremur viöartegundum. Tengi - og vélritunarborö eru laus eöa áföst skrifboröinu. Meö vélritunar - og tengiboröum getiö þér valiö um 3 mismunandi geröir af skápum: skáp meö skúffum, plastbökkum eöa opinn skáp. Einnig höfum viö á boöstólum tvöfalt skrifborð meö veggskilrúmi.^^^^ Þaö er um margt aó velja um h h /- A ■ jT^ og valió er yðar. H H ^H /A A A A A A Jón Loftsson hf. h Hringbraut Sími 10600 Sluppulítið meiddeftirveltu Bílvelta varð á Reykjanes- braut um kl. 20.30 á laugar- dagskvöld á móts við Grinda- víkurafleggjarann. Ástæðan fyrir veltunni er talin vera hvellsprenging á öðru fram- hjóli bifreiðarinnar og við það hentist hún út af vegin- um og fór heila veltu. Svo blessunarlega tókst til að ekki urðu nema smávægi- leg slys á þeim, sem í bílnum voru, kvenkyns ökumanni og karlkyns farþega. A.Bj. Slysaöldu linnir ekki á Akranesi Mikil ölvun var á Akra- nesi um helgina, en ekki urðu óhöpp eða slys af hennar völdum og þrátt fyrir allt var rólegra hjá lög- reglu en oft áður. Enn urðu tvö umferðar- slys á Akranesi fyrir helg- ina. Á föstudag lenti vél- hjólamaður ásamt farþega i árekstri við bíl á mótum Háholts og Kirkjubrautar. Var vélhjólinu ekið eftir Kirkjubraut, sem er aðal- braut. Við áreksturinn skarst ökumaður á höfði. Bar hann þó hjálm. Farþeg- inn slapp ómeiddur. Of hraður akstur mun eiga ein- hverja sök á þessu slysi. Á fimmtudag varð hörku- árekstur tveggja bila á mótum Merkigerðis og Vesturgötu. Handleggs- brotnaði annar ökumann- anna. Annar bíilinn er talinn með öllu ónýtur og hinn mjög illa skemmdur. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.