Dagblaðið - 23.05.1977, Side 10

Dagblaðið - 23.05.1977, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 23. MAl 1977.. frjálst, úháð dagblað Utgefandi DagblaðiA hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. Iþróttir: Hallur Simonarson. AÖstoAarfrettastjóri Atli Steinarsson. Safn: Jón Sœ«.i Baldvinsson. Handrit: Asgrimj' Palsson. Biaðu nenn: Anna Bjarnason. Asgeir Tómasson. Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur SigurAsson, Hallur Hallsson, Holgi Petursson, Jakob F. Magnússon, Jónas Haraldsson, Katrín Palsdóttir. Olafur Jónsson, Omar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjarnie.rur Bjarnleifsson. HörAur Vilhjálmsson, Sveinn ÞormóAsson. bkntstofustjóri: Olafur Eyjólfsson. Gjaldken: Þiainn Þoiieifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstjórn SíAumcla.12. AfgreiAsla Þverfiolti 2. Ásknftir, auglysingar og skrifstofur Þverfiolti 11. AAalsimi blaAsins 27022 (10 línur). Áskríft 1300 kr. á mánuAi innanlands. i lausasölu 70 kr eintakiA. Setning og umbrot: DagblaAiA og Steindórsprent hf. Armúla 5. Mynda-og plötugerA: Hilmir hf. SíAumúla 12. Prentun: Árvakurhf. Skeifunni 19. Endurreisn sjávarútvegs Þjóðfélagið hefur farið illa með sjómenn og útgerðarmenn á undanförnum áratugum. Hin mikla framleiðni atvinnuvegar- ins hefur verið undirstaða þjóð- félagsins. Tekjunum af sjávarút- vegi hefur jafnharðan verið dreift út um þjóðfélagið. Þessi skattlagning hefur verið of mikil og farið fram á rangan hátt. Skattlagningin hefur einkum verið í formi rangrar gengisskráningar. Gengi krónunnar hefur jafnan verið of hátt skráð. Oftast hefur verið reynt að miða það við núllrekstur í sjávar- útvegi og fiskiðnaði. Þannig hefur rekstur þessara greina verið látinn standa í járnum, þrátt fyrir hina miklu framleiðni. Ein afleiðingin er sú, að sjómenn og út- gerðarmenn standa jafnan andspænis óleysan- legum deilum um hlutaskipti. Utgerðin hefur ekki getað greitt sjómönnum tekjur sem séu í samræmi við framlag þeirra til þjóðarbúsins. Vinnudeilur á þessu sviði hafa því orðið harð- ari og langvinnari en á flestum öðrum sviðum. Lægra gengi krónunnar hefði í för með sér hærra fiskverð til sjómanna og útgerðarmanna. Á þann hátt væri unnt að gera hvort tveggja í senn, tryggja sjómönnum viðeigandi lífskjör og tryggja útgerðinni sómasamlegan rekstur. Að sjálfsögðu er eðlilegt, að sjávarútvegur- inn leggi mest allra greina til þjóðarbúsins. Hann er okkar eina stóriðja. En sú skattlagning á ekki að fara fram með rangri gengisskrán- ingu, heldur auðlindaskatti, greiðslu fyrir afnot sjávarútvegsins af auðlind, sem þjóðin á öll sameiginlega. Hugmyndin um auðlindaskatt byggist á því, að árlega sé ákveðið, hvað þurfi mörg og stór skip til að ná þeim afla af hverri fisktegund, sem talið er hæfilegt að veiða. Síöan séu veiði- leyfin seld á uppboði. Þeir bjóða hæst, sem heppilegust hafa skipin og beztan mannskap-' inn. Afkastageta flotans er nú talin vera um 770.000 tonn af þorskfiski eða 50% umfram það, sem unnt væri að veiða, ef stofninn væri í hámarki, 500.000 tonn, og þrefalt meiri en aflinn varö í rauninni í fyrra, 276.000 tonn. Auðvelt er að sjá, að helmingi minni sókn mundi þýða helmingi minni olíunotkun, helm- ingi minni vexti og afborganir og helmingi minni mannskap. Framleiðni sjávarútvegsins mundi magnast um allan helming. Þessi aðferð hefur því alla kosti umfram kvótaskiptingu, sem ekki hefur neina framleiðniaukningu í för meö sér. Framleiðniaukninguna gæti þjóðfélagið tekið til sín í formi auðlindaskatts. Jafnframt mundi hagur sjómanna og útgerðarmanna batna verulega með réttri skráningu gengis krónunnar. Ef við hefðum beitt þessari aðferð undan- farin ár, værum við ekki komnir langt á veg meö að útrýma þorskinum. Þá hefði sóknin á hverjum tíma verið í samræmi við þorskstofn- inn. En það er aldrei of seint að taka upp réttar vinnuaðferðir. Sjómenn og útgerðarmenn ættu að ræða þetta í samningaviðræðum sínum. íslenzkfjölskylda í Erítreu: Sköburstarar og betlarar hafa stór eyru fyrir ógnarstjórnina — eina nóttina voru 30 drepnir í götubardaga skammt frá hótelinu Ungur hafnfirzkur skip- í Eþíópiu med skip sitt í slipp, og festi þanka sína á blað hefur stjóri, Baldvin Gislason, hefur enda er slík aðstaða ekki fyrir gildi frásagnar hans sízt undanfarin misseri dvalizt í hendi í Jemen. Frá Hodeidak í rýrnað, því ástandið þar suður Suður-Jemen þar sem hann Jemen, þar sem Baldvin og frá fer aðeins versnandi, eins hefur kennt innfæddum fisk- fjölskylda hans bjuggu, til og glögglega hefur komið fram veiðar. Massawa í Eþíópíu eru 205 í fréttum undanfarna daga. Hefur Baldvin ferðazt víða mílur þvert yfir Rauða hafið. Frásögn Baldvins fer hér á um þennan heimshluta með eftir. f jölskyldu sína. I marz á síðasta Þótt nokkuð sé um liðið síðan ári fór Baldvin t.d. tii Massawa Baldvin Gíslason var í Eþíópiu (>V, Þar sem ég veit að engar fréttir berast héðan lengur út um ástandið hér í Eritreu lang- ar mig til að skrifa nokkrar línur þar um ef vera mætti til smáfróðleiks og jafnvel ánægju. Massawa er önnur af tveimur hafnarborgum í Eþíópíu við Rauðahaf (hin er Assah og er hún sunnar). Hér eru urn þrjátíu og eitt þýsund íbúar með útbæjum en í Eþíópíu allri eru um tuttugu og sex miiljónir, þar af ein og hálf til tvær milljónir Erítreubúar. Eritrear eru mjög geðslegt og vinalegt fólk sem vill allt fyrir okkur gera og er því gott að vera hér. Þeir vilja losna úr tengslum við Eþíópíu og stofna sjálfstætt ríki hér við Rauða- hafið en að sjálfsögðu líkar nýju stjórninni í Addis Ababa það ekki, því þar með myndi Eþíóopía missa allt land að sjó, Baldvin Gíslason skipstjóri. Hann er nú staddur hér heima, ásamt fjölskyldu sinni og er að ná sér eftir veikina, guiu, sem hann fekk í Jemen. sem væri bagalegt fyrir svo stóra þjóð. Út af þessu hafa óeirðirnar sem voru í hámarki fyrir rúmu ári og það andóf, sem nú er skapazt er Eri- trear reyna að gera allt sem þeir geta til miska fyrir rikis- stjórnina. Aðfaranótt laugar- dagsins 3. apríl sprengdu þeir upp hluta af sementsverk- smiðju hér örskammt frá og í vikunni þar áður var vegurinn til Asmara sprengdur í loft upp á allstórum kafla, það tók eina viku að lagfæra það aftur. Sementsverksmiðja þessi er nú í höndum ríkisstjórnarinnar eins og mörg önnur stórfyrir- tæki á þessum slóðum, allt þjóð- nýtt. Aætlað er að það muni kosta milljón dollara að gera sementsverksmiðjuna starf- hæfa á ný. í hluta Massawa er algört út- göngubann eftir kl. 19 og hefur það staðið í hálft ár. Ef einhver V r Deilurnar um veiðina ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Reyni Hugasyni svarað Mánudaginn 16. þ.m. birtist kjallaragrein eftir Reyni Huga- son, verkfræðing, sem hafði að fyrirsögn: „Eftir hverju er beðið? Endalok þorsksins — harmleikur i fjórum þáttum" og var greinin fyrsti þáttur harmleiksins. Ég geri ekki athugasemdir við þau skrif, sem birst hafa eftir verkfræðinginn um ástand þorskstofnsins og ráð- stafanir honum til verndar. Ástæða þeirra athugasemda. sem ég hér með óska að fá birtar, er árás verkfræðingsins á hinn mikla heiðursmann Gunnlaug E. Briem, fyrrver- andi ráðuneytisstjóra, eins og t.d. þessi orð verkfræðingsins: ■„fiskifræðingurinn i útlandinu bað ráðuneytisstjórann vel að lifa, benti honum á að kíkja ofan í skúffuna sína á bréfið, sem honum hafði verið sent í mars veturinn áður, þar sem varað hefði verið við smásíldar- veiðunum, hvað ráðuneytis- stjórinn og geröi. Og viti menn, rykugt bréfið fannst í fórum ráðuneytisins en engum hafði dottið í hug að taka mark á þessari aðvörun þegar hún var send inn. Allír vita afleiðing- arnar af gleymsku og skilnings- leysi ráðuneytistjórans. Um suntarið var vorgots- og sumar- síldinni endanlega útrýmt. Hr.vðjuverkin lifðu af einungis örfáar pöddur". Hvað skyldi nú hafa átt sér stað í þessu máli, og hví sýndi ■ i ■ i ii

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.