Dagblaðið - 23.05.1977, Page 13

Dagblaðið - 23.05.1977, Page 13
DACBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. MAÍ 1977. 13 Karfan Lokastaðan í Evrópukeppninni í körfuknattleik, sem lauk í Helsinki i gær, varð þannig: Hoiland Frakkiand Austurriki Finnland Pólland Ungverjal. 364-354 9 410-387 8 372-365 8 383-384 8 437-442 6 354-388 6 Þetta var B-riðiII keppninnar. Af úrslitum má nefna, að Frakkland vann Hoiland 72-67, Austurríki vann Pólland 81-70, Finnland vann Ungverjaland 70- 66, Holland vann Finnland 61- 57, Frakkland vann Pólland 95-81, og Austurríki vann Ungverjaland 63-62, Ungverjaland vann Frakk- land 83-82, Finnland vann Pólland 96-94 og Ilolland vann Austurríki 74-71. Islandsmeistararnir í bridge 1977. Frá vinstri Guðlaugur, Hjalti, Einar, Asmundur og Orn. DB-mynd Bjarnleifur. 1960 Halls Símonarsonar 1961 Stefáns Guðjohnsen 1962 Einars Þorfinnssonar 1963 Þóris Sigurðssonar 1964 Benedikts Jóhannssonar 1965 Gunnars Guðmundssonar 1966 Halls Símonarsonar 1967 Halls Símonarsonar 1968 Benedikts Jóhannssonar 1969 Hjalta Elíassonar 1970 Stefáns Guðjohnsen '1971 Hjalta Elíassonar 1972 Hjalta Elíassonar ■ 1973 Óla M. Guðmundssonar 1974 Þóris Sigurðssonar 1975 Jóns Hjaltasonar 1976 Stefáns Guðjohnsen . 1977 Hjalta Elíassonar Keppnin nú gekk vel fyrir sig og aðstaða fyrir áhorfendur mjög góð að Loftleiðahótelinu svo og keppendur. Sýningartafla var i gangi allar umferðirnar og oft margir áhorfendur. Agnar Jörgensson var röggsamur keppnisstjóri að venju, en mót- stjórn skipuðu Magnús Aspelund, Ragnar Björnsson, Þorfinnur Karlsson og Tryggvi Gíslason, sem afhenti verðlaun í mótslok. -hsím. — Sigraði íöllum leikjum sínum á mótinu og hafði sigrað áður en síðasta umf erðin hóf st Stefáns Guðjohnsen, en sömu menn hafa að mestu spilað í þeim sveitum. Sveitir Benedikts Jóhannssonar, Einars Þorfinns- sonar og Þóris Sigurðssonar hafa tvivegis orðið íslandsmeistarar. Sá einstaklingur, sem oftast hefur orðið íslandsmeistari I sveita- keppni, er Stefán Guðjohnsen, eða ellefu sinnum. Fyrsta íslandsmótið var háð 1949 á Akureyri — og eftirtaldar sveitir hafa orðið íslandsmeistar- ar. Allar frá Bridgefélagi Beykja- víkur. Ár Sveit: 1949 Lárusar Karlssonar 1951 Ragnars Jóhannessonar 1953 Harðar Þórðarsonar 1954 Harðar Þórðarsonar 1955 Vilhjálms Sigurðssonar 1956 Brynjólfs Stefánssonar 1957 Einars Þorfinnssonar 1958 Halls Símonarsonar 1959 Stefáns Guðjohnsen Sveit Hjalta Elíassonar, Bridgefélagi Reykjavíkur, sigraði með gífurlegum yfirburðum í úr- slitakeppni íslandsmótsins í sveitakeppni i bridge, sem lauk að Hótel Loftleiðum í gær. Átta sveitir spiluðu til úrslita — en þátttökusveitir skiptu hundruð- um viðs vegar að af landinu i upphafi þess og spilað þar til átta úrslitasvéitirnar stóðu eftir. Sveit Hjalta vann alla leiki sína í úr- slitakeppninni og þarf að fara langt aftur i tímann til að finna jafnmikinn yfirburðasigur, eða ailt til ársins 1967. Sveitin náði strax forustu í mótinu og jók stöðugt bilið á aðrar sveitir í úrslitakeppninni. Fyrir síðustu umferðina hafði sveitin þegar tryggt sér sigur. Urslit á mótinu urðu þessi.: Jön vann íSvíþjóð Jón Diðriksson keppti í 1500 metra hlaupi á móti í Nybro í Svíþjóð á laugardag. Sigraði með miklum yfirburðum og náði athyglisverðum árangri 3:57.0 mín., sem lofar góðu fyrir sumarið. Gunnar Páll Jóakims- son, ÍR, keppti í 200 m hlaupi og bætti árangur sinn verulega. Hljóp á 23.6 sek., en átti bezt áður 24.0 sek. Góður árangur hjá hlaupara, sem leggur stund á millivegalengdir. Þá keppti Guðmundur Rúnar Guðmunds- son, FH, í hástökki á mótinu og stökk 1.94 metra. Þeir félagarnir munu keppa ásamt Lilju Guðmundsdóttur á mótum í Kil 30. maí, Lidingö 6. júní, Stokkhólmi 14. júní og Vesteras 22. júní. 1. Hjalti Elíasson, Reykjavík, 121 2. Ölafur Lárusson, Reykjavík, 81 3. Stefán Guðjohnsen, Reykjavík, 81 4. Guðm. T. Gíslason, Reykjavík, 69 5. Jón Hjaltason, Reykjavik, 57 6. Bogga Steins, Reykjanes, 50 7. Vigfús Pálsson, Reykjanes, 50 8. Þórir Sigurðsson, Reykjavík, 47 Þetta er í fjórða sinn, sem sveit Hjalta Elíassonar verður íslands- meistari I bridge — síðast fyrir sigurinn nú. 1972. í sveitinni spiluðu auk Hjalta Einar Þor- finnsson, sem nú varð íslands- meistari í sveitakeppni í níunda sinn, Asmundur Pálsson, Guð- laugur Jóhannsson og Örn Arnþórsson. Þeir Guðlaugur og örn urðu nú Islandsmeistarar i sveitakeppni í fyrsta sinn. Tvær aðrar sveitir hafa fjórum sinnum orðið íslandsmeistarar — sveit Halls Simonarsonar og sveit BORUSSIfl MONCHENGLADBACH notar uiiiiiimsfcó, því ekki þú? Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klapparstíg 44 — Sími í 1783 Hólagarði í Breidholti — Sími 75020 STÓRSIGUR SVEITAR HJALTA Á ÍSLANDSMÓTINU í BRIDGE Teitur skoraði tvívegis — en Halmia missti forustuna í 2. deild í Svíþjóð Teitur Þórðarson átti bráðsnjallan leik í Norrby í gær í 2. deildinni sænsku. Skoraði tvívegis í leik Jön- köping og Norrby — og Jön- köping vann óvæntan sigur á útivelli gegn Norrby- liðinu, sem ekki hafði tapað heima fyrr. Hin mörk liðs- ins skoruðu Hasser og Johannsson. Hins vegar missti Halmia, liðið, sem Matthías Ilall- grímsson leikur með, forust- una í deildinni, þegar liðið gerði jafntefli við IFK Malmö 2-2 í Malmö í gær. Það var leikur, sem Halmia átti að vinna með miklum mun. Halmia lék stórvel allan fyrri hálfleikinn, en inn vildi knötturinn ekki í mark Malmö. Tvívegis var bjargað frá Matthíasi á marklinu og hann átti auk þess stangarskot. Hins vegar tókst Malmö að skora úr einu af örfáum upphlaupum sínum í leiknum og staðan í hálfleik var 1-0. Miðherji Halmia komst einn í gegn — lék á markvörð Malmö og markið var galopið, en mið- herjinn spyrnti framhjá. í siðari hálfleik hafði Halmia áfram yfirburði, en Malmö skoraði. Komst í 2-0. Loks, þegar fjórar mín. voru til leiksloka var dæmd víta- spyrna á Malmö, sem Roger Ström skoraðl úr. Nokkrum sekúndum fyrlr leikslok tókst svo Tord Samuelsson að jafna í 2-2 og Halmia hlaut eitt stig í leik, sem iiðið átti að vinna stórt. Matthias var ákaflega óheppinn að skora ekki nokkur mörk. Atvidaberg, sem féll nið- ur úr Allsvenskan i fyrra, sigraði örgryte 4-0 og komst við það i efsta sætið. Hefur 11 stig. Halmia 10 og Mjalby 9. Jönköping er um miðja deild með sjö stig, en Norrby hefur átta stig.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.