Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 23.05.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 23.05.1977, Qupperneq 15
íslenzku ungiingaianasiiospmarnir sem svo mjog hafa komið á óvart í Evrópukeppni unglingalandsliða í Belgíu.ásamt þjálfara sínum.Lárusi Loftssyni.DB-mynd Bjarnleifur. ú \ 1^1 <§§j 4 mm íslenzku strákarnir höfðu í fullu tré við Englendinga! Jafntefli íslands og Englands 0-0 í Evrópumóti unglinga í Belgíu. Englendingar töfðu í lokin með sendingum til markvarðar brást Reuter okkur — Sovétmenn sigruðu 1-0. Urslit i d-riðli: Holland-Italía Svíþjóð-Búlgaría 0-0 1-4 — Ég hef ekki séð íslenzkt ungiingalið leika betur en gegn Englendingum. Strákarnir virðast bæta við sig með hverjum leik — þeir hafa komið skemmti- lega á óvart, yfirspiluðu Englend- inga á köflum, sagði Helgi Daníelsson, fararstjóri íslenzka unglingalandsiiðsins, sem á laugardag gerði jafntefli við Eng- land ð Evrópumóti unglinga i knattspyrnu en keppnin fer fram í Belgíu. ísland og England skildu jöfn 0-0. — í lokin voru Englendingar ánægðir með eitt stig — gáfu hvað eftir annað aftur til mark- varðar síns, hélt Helgi áfram. Englendingar byrjuðu leikinn mjög vel, en strákarnir sýndu ensku atvinnumönnunum til- hlýðilega kurteisi og börðust mjög vel. Englendingum tókst að skapa sér nokkur tækifæri en íslenzka vörnin var þétt og Rúnar Sverrisson var góður í markinu. Capes vann Hrein Gcoff Capes, enski kúlu- varparinn frægi, náði bezta árangri i heimi í greininni í gær, þegar hann sigraði Hrein Ilalldórsson á móti í Southampton. Báðir vörp- uðu kapparnir vel yfir 20 metrana á mótinu, sem háð var í gær. Capes varpaði lengst 20.98 metra, en Ilreinn 20.31 metra. í þriðja sæti varð Pólverjinn Komar með 19.59 metra. Á æfingamóti í Wolver- hampton á föstudag sigraði Capes einnig, cn þá voru kapparnir langt frá sínu bezta. Sá enski varpaöi 19.78 metra, en Hreinn 19.48 metra — og enn varð Olympíumeistarinn frá 1972, Komar, í þriðja sæti. Eftir því sem leið á fyrri hálf- leik kom íslenzka liðið meir og meir inn í myndina og leikurinn jafnaðist. Síðari hálfleikur var mjög jafn og íslenzka liðið lék stórgóða knattspyrnu — þá beztu sem ég hef séð til íslenzks unglingalandsliðs. Strákarnir hreinlega yfirspiluðu Englend- ingana á köflum og áttu góð marktækifæri. Þannig náðu Englendingar að bjarga á línu og skö'mmu síðar komst Jón Orri Guðmundsson í gott marktæki- færi en skot hans fór framhjá — hefði hann verið rólegur og nýtt tækifærið hefði ekki verið að sökum að spyrja. Eins og ég sagði, þá voru Englendingar ánægðir með jafn- teflið í lokin — mótstaða íslenzka liðsins hafði greinilega komið þeim mjög á óvart. Þetta var mjög skemmtilegur Ieikur og eftir því sem maður hugsar meir út í leikinn við Grikki þá gremst manni meir að aðeins eitt stig skuli hafa náðst — já, slík er frammistaða piltanna. Það er mikið af erlendum ,,njósnurum“ hér í Belgíu að fylgjast með keppninni. Þannig kom fram hjá einum Belga að hann byggist ekki við að Guð- mundur Kjartansson yrði lengi á íslandi. Átti þar við að honum myndi áreiðanlega bjóðast at- vinnumennska með erlendu liði. Það hafa verið 3-4 ttalir á hverjum leik að fylgjast með leikjum okkar, en alls eru þeir á milli 20 og 30. Aðalfararstjóri Englendinga var sérlega hrifinn| af Guðmundi Kjartanssyni og frammistaða íslenzku piltanna hefur komið verulega á óvart, sagði Helgi Daníelsson að lokum. Börkur Ingvarsson gat ekki leikið með gegn Englendingum en hans stöðu tók Sverrir Einars- son Þrótti. Þá kom Jón Einarsson inn fyrir Þóri Sigfúss.on, ÍBK, sem meiddist illa á hné. En íslenzka liðið gegn Englendingum var þannig skipað: Markvörður: Rúnar Sverrisson Þrótti. Aðrir leikmenn: Ottó Hreinsson Þrótti, Ulfar Hróarsson Val, Sverrir Einarsson Þrótti, Guðmundur Kjartansson Val. Einar Ólafsson ÍBK, Sigurður Björgvinsson ÍBK, Þórir Sigfússon ÍBK, Rafn Rafns- son Fram, Magnús Jónsson KR og Jón Orri Guðmundsson Breiða- blik. Úrslit í leik Belga og Grikkja urðu þau að Belgar sigruðu 7-1 eftir að hafa haft yfir 3-1 í leik- hléi og brotnuðu Grikkir alveg í leiknum. Staðan í a-riðli er: England 2 110 1-03 Belgía 2 10 17-22 Island 2 0 2 0 1-1 2 Grikkland 2 0 112-81 Urslit í b-riðli: Írland-Júgóslavía 0-3 Frakkland-V-Þýzkaland 0-0 Staðan í b-riðli er því — V- Þýzkaland 3 stig, írland og Júgóslavía 2 stig og Frakkland 1 stig. Urslit í c-riðli: Austurríki-Sovétríkin 0-4 Malta-N-írland 0-2 Sovétríkin hafa þegar tryggt sér sigur í c-riðli. Þeir hafa hlotið 4 stig, N-Írar 2 stig og Austurríki og Malta 1 stig. Við skýrðum svo frá á föstudag, að Sovétmenn og N-Irar hefðu skilið jafnir 1-1. Þar Italía hefur hlotið þrjú stig, Svíar og Búlgarir 2 stig og Hol- lendingar 1 stig. Fulltrúar Norðurlanda, ísland og Svíþjóð, hafa því enn möguleika á að komast í undanúrslit — þó ef til vill litlir séu. Selfoss sigraði Selfoss fékk Þrótt Neskaupstað í heimsókn á laugardag í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu. Selfyssingar hlutu sín tvö fyrstu stig í 2. deild í sumar, sigruðu 1-0. Eina mark leiksins skoraði Sigurður Reynir Óttarsson. Þróttur Neskaupstað hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í 2. deild — en Þróttur kom upp úr 3. deild á síðasta sumri. Þróttur hafði áður ieikið á Húsavík — mætti þar Völsungum og beið einnig þá ósigur, 0-1. Selfoss hafði áður mætt sigur- vegurum 3. deiidar — Reyni úr Sandgerði og máttu Selfyssingar þá gera sér ósigur að góðu, 1-3. Ármann sigraði isfirðinga i 2. deiid í íslandsmótinu i knatt- spyrnu með 4-1 á Melaveili á laugardag. Friðrik stökk 7.53 Óskar kastaði 57.52! —á Vormóti IR ífrjálsum íþróttum í gær IR-ingarnir Friðrik Þór Oskars- son og Óskar Jakobsson unnu mjög athyglisverð afrek á Vormóti ÍR í gær, þó svo kalt og hvasst væri, þegar mótið fór fram. Óskar kastaði kringlunni 57.52 metra, sem er iangbezti árangur hans í greininni. Bætti sig um 3.22 metra. Átti áður bezt 54.30 metra. Greinilegt, að Óskar er maður framtiðarinnar í þessari íþróttagrein og þetta er stórgóður árangur hjá tvítugum manni. Friðrik Þór stökk 7.53 metra — eða sjö sentimetrum lengra en islandsmet Viihjáims Einars- sonar er í iangstökki. Hins vegar var meðvindur of mikill þannig að árangur Friðriks Þórs verður ekki staðfestur sem Íslandsmet. Þó meðvindur væri var engan veginn gott að stökkva í kuld- anum. Jóhann Pétursson varð annar með 6.57 metra og var því nokkuð frá sínum bezta árangri. Það segir talsvert um árangur Friðriks Þórs og greinilegt, ef hann sleppur við meiðsli i sumar, að miklir möguleikar eru á að hann bæti met Vilhjálms. Á móti í Kópavogi nýlega stökk Friðrik Þór 7.16 metra, sem er bezti lög- legi árangur hans í langstökkinu. I kringlukastinu náði Elías Sveinsson, KR, sínum bezta árangrit 50.66 metrum, sem er at- hyglisvert afrek hjá tugþrautar- manni. Ingunn Einarsdóttir, IR, er í góðri æfingu og líkleg til mikilla afreka í sumar. Hún sigraði í þremur greinum. Stökk 5.58 m í langstökki, hljóp 100 m grinda- hlaup á 14.2 sek. og 200 m á 25.2 sek. Þórdís Gísladóttir, IR, stökk I. 65 m í hástökki og Ása Halldórsdóttir, Á, varpaði kúlu II. 01 m. í 800 m hlaupi sigraði Thelma Björnsdóttir, UBK, á 2:29.9 ntín., en Guðrún Árnadótt ir, FH, varð önnur á 2:31.2 mín. Hörkukeppni var í 110 m grindahlaupi: Þar sigraði Björn Blöndal, KR, á 15.2 sek., en Jón Sævar Þórðarson, IR, varð annar á 15.3 sek. I 100 m hlaupinu varð Magnús Jónasson, Á, sjónarmun á undan Birni Blöndal, en báðir ‘fengu sama tíma 11.0 sek. 1 400 m var einnig hörkukeppni. Jón Sævar vann Þorvald Þórsson á síðustu metrunum. Hljóp á 52.2 sek., en Þorvaldur á 52.3 sek. Sigfús Jónsson, ÍR, sigraði með yfirburðum í 1500 m hlaupi á 4:09.3 mín. og Óskar Jakobsson varpaði kúlu 16.56 metra. Þá vakti 13 ára drengur mikla athygli í 100 m hlaupinu. Hann heitir Guðni Tómasson og hljóp á 11.6 sek. og virðist hafa allt til að bera að verða snjall sprett- hlaupari. Á fimmtudag verður úrtöku- mót i köstum á kastsvæðinu í Laugardalnum. Mótið hefst kl. sex

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.