Dagblaðið - 23.05.1977, Síða 24
24
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. MAl 1977.
Matthías G. Guðmundsson frá
Villingadal sem andaðist 27. apríl
sl. var fæddur 15. ágúst 1899.
Foreldrar hans voru hjónin
Jakobína Jónsdóttir og Guó-
mundur Sigmundsson, sem
bjuggu í Villingadal. Lauk
Matthías námi í Stýrimannaskól-
anum og var ýmist skipstjóri eða
stýrimaður á togurum eða fiski-
skipum þar til hann fór í land.
Gerðist hann fiskmatsmaður og
einnig netagerðarmaður. Hann
var tvíkvæntur. Fyrri kona hans
var Hinrika Ólafsdóttir og eign-
uðust þau eina dóttur, Ólöfu.
Síðari kona Matthíasar var
Jóhanna Ingimundardóttir og
lifir hún mann sinn. Bjuggu þau
að Hátúni 8. Matthías var jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju 5. maí
sl. og fór útför hans fram í kyrr-
þey samkvæmt ósk hins látna.
Valdimar Bjarni Guðmundsson
var fæddur 5. maí 1905 og voru
foreldrar hans hjónin Halldóra
Bjarnadóttir og Guðmundur Guð-
mundsson að Geróum í Gaulverja-
bæ, síðar i Hafnarfirði. Valdimar
kvæntist 1940 og bjó hann ásamt
konu sinni Þóru í Hafnarfirði.
Stundaði hann sjó lengi framan
af sem vélamaður en á síðari
árum vann hann hjá Vélsmiðju
Hafnarfjarðar og víðar. Þau eign-
uðust þrjú börn, Bjarna, Eygló og
Halldóru.
Alfons Hannesson, sem lézt 13.
maí 1977, var fæddur 3. ágúst
1900 og voru ' foreldrar hans
Jóhanna Þórunn Jónasdóttir frá
Helgafelli og Hannes Andrésson
skipstjóri sem lézt af slysförum
árið 1919. Alfons kvæntist fyrir
fimmtíu árum Hansínu Kr. Hans-
dóttur og hófu þau búskap á
Grundum við Isafjarðardjúp.
Síðar fluttist fjölskyldan til
Bolungarvíkur en loks til Reykja-
víkur. Allmörg síðustu árin vann
Alfons hjá vita- og hafnarmála-
stjórn í Kópavogi. Alfons missti
konu sína árið 1970 en þeim varð
sjö barna auðið. Þau eru: Hannes
blikksmiður, Benedikt kennari
við Sjómannaskólann, Þórir arki-
tekt, búsettur i Bandaríkjunum,
Garðar járnsmiður, Gunnhildur
Soffía, Ásta Sigríður og Aðai-
heiður Kristín. Hann verður
jarðsunginn i dag kl. 3 e.h. frá
Fossvogskirkiu.
Ingibjörg Björnsdóttir, sem lézt
13. maí sl., var fædd 20. septem-
ber 1914 og voru foreldrar hennar
hjónin Guðrún Sigríður Ölafs-
dóttir frá Hjarðarholti og séra
Björn Stefánsson prestur á Bergs-
stöðum í Svartárdal og síðar á
Auðkúlu í Svínadal. Ingibjörg
giftist eftirlifandi manni sínum
árið 1941, en hann er Þórarinn
Sigmundsson mjólkurfræðingur
við Mjólkurbú Flóamanna á Sel-
fossi. Fluttust þau hjón til Selfoss
en siðar að Glóru sem er þar
skammt frá. Þau eignuðust fjögur
börn, sem öll eru á lífi, þau Guð-
rúnu Sigríði kennara, Björn
hljómlistarmann, Kristínu og
Ólaf hljómlistarmann.
Kristín Símonardóttir, sem lézt
12. maí sl., var fædd 11. júní 1903
að Dynjanda í Arnarfirði en ólst
upp’ í Mosdal í sömu sveit. Hún
giftist Skarphéðni Magnússyni
árið 1924, en missti hann 1963.
Fyrstu búskaparárin bjuggu þau
á Þingeyri en fluttust til Hafnar-
fjarðar og síðar til Reykjavikur
þar sem þau bjuggu lengst af á
Sogavegi 192. Þau eignuðust þrjú
börn og eru tvö þeirra á lífi: Berg-
þóra og Magnús rafvirkja-
meistari. Kristín var jarðsungin
frá Bústaðakirkju sl. föstudag.
Jónína Loftsdóttir var fædd í
Hreiðurborg í Sandvíkurhreppi
11. nóvember 1900, en ólst upp í
Sölkutóft á Eyrarbakka hjá for-
eldrum sínum Jórunni Markús-
dóttur og Lofti Jónssyni útvegs-
bónda. Hún giftist Hafliða Hall-
grímssyni yfirvélstjóra,. sem
látinn er fyrir tæpu ári. Þeim
varð fimm barna auðið og eru
fjögur þeirra á lífi: Kristján vél-
stjóri, Loftur skipstjóri, Ásdís og
Hákon Jarl vélstjóri. Jónína
verður jarðsungin í dag kl. 13.30
frá Dómkirkjunni.
Magnús Kristján Gíslason, bóndi
og skáld á Vöglum, sem lézt 25.
marz sl., var fæddur 31. marz
1897. Foreldrar hans voru Þrúður
Jónína Árnadóttir og Gísli Sigur-
jón Björnsson á Stóru-Ökrum.
Magnús kvæntist árið 1921 Ingi-
björgu Stefánsdóttur og bjuggu
þau að Vöglum, fyrst í sambýli
með foreldrum Magnúsar og síðar
með syni þeirra Gísla og konu
hans Kristínu.__
Ingveldur Einarsdóttir frá Garð-
húsum, Grindavík, Rauðalæk 65,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 24. maí kl.
13.30.
Kristján Sveinbjörnsson,
Háaleitisbraut 101, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 24. mai kl. 10.30 f.h.
Ragnheiður Hákonardóttir frá
Reykjafirði andaðist i Borgarspít-
alanum 19. maí.
Kristín R. Sigurðardóttir, Haga-
mel 16 Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 24. maí kl. 3 e.h.
Guðrún Jónsdóttir frá Hjalla
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 1.30.
Ingunn Arnadóttir frá Stóra-
hrauni verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni á morgun kl. 3 e.h.
Guðrún Gunnarsdóttir, Álfaskeiði
27, Hafnarfirði, verður jarðsung-
in frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
á morgun kl. 14.00.
ÍbróUir
Íþróttir í dag.
íslandsmótiA í knattspyrnu 1. doild.
Vostmannaeyjavöllur kl. 19: lBV — Valur.
Hringið í dagbókina og
lótið vita um mót og leiki
— Sími 27022.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimi
Framhald af bls.23
13 ára stúlka
óskar eftir að komast í sveit.
Uppl. í síma 38666.
Get tekið börn í sveit,
æskilegur aldur 4 til 9 ára. Uppl. í
Síma 66292.
Til sölu lax- og silungsmaðkar,
hagstætt verð. Uppl. í sima 83227.
Einkamál
Oska eftir að kynnast konu
á aldrinum 58-60 ára, sem er
einhleyp og reglusöm. Ég er í
föstu starfi og í góðum efnum, svo
þig þarf ekki að vanta neitt,
aðeins kemur til greina góð og
myndarleg kona, sem er heilsu-
hraust. Margt kemur til greina
við kynningu, mynd æskileg.
Tilboð sendist DB fyrir 1. júní
merkt: „Trúnaður —47622“.
43ja ára reglusamur maður
í góðri vinnu og á góða íbúð á
bezta stað í bænum óskar eftir að
kynnast stúlku, traustri og
tryggri, á aldrinum 30-40 ára sem
vin og félaga, með allt með þag-'
mælsku farið. Tilboð sendist DB
merkt „47604“.
48 ára gömul kona óskar
eftir að kynnast heiðarlegum og
reglusömum manni 50-55 ára í
góðri stöðu. Tilboð merkt „Reglu-’
samur" sendist DB fyrir föstudag,
fullri þagmælsku heitið.
Barnagæzla
Barngóð stúlka óskast
til að gæta 1 'A árs barns allan
daginn, helzt í Kópavogi. Uppl. í
síma 41407.
Barngóð kona óskast
til að gæta 7 mánaðaða drengs frá
. kl. 8 til 4, helzt í Háaleitishverfi.
Uppl. í síma 84651 eftir kl. 6.
Óska eftir stúlku
úr Hafnarfirði til að gæta 2ja
barna í sumar. Sími 51659.
Óska eftir barngóðri stúlku
á fermingaraldri til að gæta
rúmlega 1 árs barns ea hálfan
daginn í sumar, helzt nálægt
Strandaseli. Uppl. í síma 76536'
eftir kl. 6.
Til frambúðar.
Öska eftir konu til frambúðar til
að gæta 4ra mánaða stúlkubarns á
daginn. Uppl. í síma 76850 eftir
kl. 6.30.
13-14 ára telpa
óskast til að gæta 2ja barna
nokkra tíma á dag í sumar. Uppl. í
sima 44975 eftir kl. 19.
Tek börn í gæzlu allan sólar-
hringinn
fýrir fólk sem er að ferðast í utan-
landsferðir í skamman tíma.
Uppl. í síma 35923.
12 ára stelpa í Fossvogi
óskar eftir að gæta barna í sumar.
Uppl. í síma 84743.
14 ára stúlka
óskar eftir að gæta barna í
Hafnarfirði. Uppl. í síma 50412.
Fóstra óskar eftir
að gæta barna. Tilboð sendist DB
merkt „Fóstra 47496“.
Barnagæzla Breiðholti.
Kona óskast til að passa 8 mánaða
gamalt barn eftir hádegi, vil
gjarnan taka barn fyrir hádegi í
staðinn. Uppl. í síma 71874 eftir
kl. 7.
13 ára stúlka óskar
að gæta barna hálfan daginn sem
næst Vesturbergi. Uppl. í síma
73515.
Barngóð kona óskast
til að gæta 3ja ára telpu á Teigun-
um. Sími 83885 eftir kl. 19.
Óska eftir 12-14 ára telpu
til að gæta 2ja ára gamals barns
eftir hádegi. Uppl. í síma 14628
eftir kl. 19.
Hreingerningar
Onnumst hreingerningar
á ibúðum og stofnunum. Vant og;
vandvirkt fólk. Simi 71484 og
84017.
Tökum að okkur hreingerningar
á íbúðum, stigagöngum, einnig
teppahreinsun og gluggaþvottur.
Föst verðtilboð, vanir og vand-
virkir menn. Sími 22668 og
44376.
Hreingerningafélag Reykjavíkur.
Teppahreinsun og hreingerning-
ar, fyrsta flokks vinna. Gjörið svo
vel að hringja í síma 32118 til að
fá upplýsingar um hvað hrein-
gerningin kostar. Sími 32118.
Hreingerningar—teppahreinsun
á íbúðum, stigagöngum,
stofnunum og fleiru. Margra ára
reynsla. Uppl. í síma 36075,
Hölmbræður.
Hreingerningastöðin
hefur vant og vandvirkt fólk til
hreingerninga, teppa- og hús-
gagnahreinsunar. Þvoum hansa-
gluggatjöld. Sækjum, sendum.
Pantið í síma 19017.
Vanir og vandvirkir menn.
Gerum hreinar íbúðir og stiga-
ganga, einnig húsnæði hjá fyrir-
tækjum. Örugg og góð þjónusta.
Önnumst einnig allan giugga-
þvott, utanhúss sem innan, fyrir
fyrirtæki og einstaklinga. Jón,
sími 26924.
ökukennsla
Ókukennsla-Æfingatímar.
-Bifhjólapróf. Kenni á Austin
Allegro '77. Ökuskóli og prófgögn
ef óskað er. Lúðvík Eiðsson, sími
74974 og 14464.
Okukennsla-Æfingatímar.
Kenni á lítinn og lipran ICIazda
árg. '77. Ökuskóli og prófgögn og
góð greiðslukjör ef óskað er. Ath.1
að prófdeild verður lokuð frá 15.
júlí til 15. ágúst. Sigurður Gísla-
son ökukennari, simi 75224.
Okukennsla-Æfingatimar.
ATH: Kennslubifreið Peugeot
504 Grand Luxe. Ökuskóli og öll'
pröfgögn ef oskað er. Nokkrir
nemendur geta byrjað strax.
Friðrik Kjartansson, sími 76560.
tlkukennsla — bifhjólapróf.
Kenni á Mercedes Benz. Öll
prófgögn og ökuskóli ef óskað er.
Magnús Helgason, simi 66660.
Okukennsla — æfingatímar.
Hæfnisvottorð. Fullkominn öku-
skóli, öll prófgögn ásamt mynd i
ökuskírteinið ef óskað er,
kennum á Mazda 616. Ökuskólinn
hf. Friðbert Páll Njálsson,
Jóhann Geir Guðjónsson. Símar
11977, 21712 og 18096._________..
Kenni akstur og meðferð bif-
reiða,
kenni á Mazda 818. Ökuskóli og
öll prófgögn ásamt litmynd í
■ökuskírteini ef þess er óskað.
Helgi K. Sessilíusson, sími 81349.
Ökukennsla-æfingatímar.
Lærið að aka á skjótan og örugg
an hátt. Peugeot 504. Sigurður
Þormar ökukennari, símar 40769
og 72214.
Lærið að aka nýrri Cortínu
Ökuskóli og prófgögn ef óskað er.
Guðbrandur Bogason, sími 83326.
Þjónusta
Jarðtætarar
í garða og flög til leigu. Pantanir í
símum 74800 og 66402.
Tek að mér að slá
tún og bletti. Guðmundur, sími
37047. Geymið auglýsinguna.
Tek að mér málningu
og minniháttar viðgerðir á
þökum, ódýr og vönduð vinna.
Uppl. í síma 76264.
Standsetjum lóðir,
jafnt stærri sem smærri verk.
Steypum bíiainnkeyrslur og fl.
Uppl. í síma 76277 og 72664.
Loftpressa til leigu.
Tek að mér múrbrjót, fleygun og
sprengingar. Jón Guðmundsson,
sími 72022.
Látið fagmenn vinna verkið.
Dúk-, teppa-, flísa- og strigalögn,
veggfóðrun, gerum tilboð ef
óskað er. Uppl. í sima 75237 eftir
kl. 7 á kvöldin.
Tökunt að okkur
viðgerðir á miðstöövarkötlum og
alls konar suðuvinnu. logsuðu og
rafsuðu. ásamt ýmiss konar járn-
smiðavinnu. Uppl. i simum 31196
og 84109 eflirkl. 17.
Kndurnýjum ákheði
á stálslólum og bckkjum. \'anir
menn. Uppl. í sima 84962.
Odýr en góð skemmtun.
Diskótekið Dísa tekur að sér að
flytja vandaða og fjölbreytta
dansmúsik í samkvæmum og á
skemmtunum. Sérlega lágt verð
og góð þjónusta. Simi 50513 á-
kvöldin.
Látið fagmenn vinna verkið.
Dúk-, teppa-, flísa- og strigalögn,
veggfóðrun, gerum tilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 75237 eftir
kl. 7 á kvöldin.
tiusasmíðameistari auglýsir.
Húseigendur og aðrir þeir sem
hafa hug á framkvæmdum i
sumar, tek að mér t.d. nýsmiði.
vanalegar breytingar m.a. ál og
plastklæðningar utanhúss.
Viðgerðir, glerisetningar,-
girðingar, og sólskýli og fl. Einnig
verkstæðissmiði svo sent eldhús-
innréttingar, fataskápar og fl.
Ath. að panta strax vegna anna i
sumar. Steingrímur K. Pálsson
Lækjarfit 12 Garðabæ s. 53861.
Tökum að okkur
viðgerðir á miðstöðvarkötlum og
alls konar suðuvinnu, logsuðu og
rafsuðu, ásamt ýrniss konar járn-
smíðavinnu. Uppl. í símum 31196
og 84109 eftir kl. 17.
Sjónvarpseigendur athugið.
Tek að mér viðgerðir i heimahús-
um á kvöldin. Fjót og góð þjón-'
usta. Pantið í síma 86473 eftir kl.
17 á daginn. Þórður Sigurgeirsson
útvarpsvirkjameistari.
Húsdýraáburður til sölu,
á lóðir og kálgarða, gott verð.
dreift ef óskað er. Uppl. í sínta
75678.
Múr- og málningarvinna.
Málunt úti og inni. Múrviðgerðir
og flísalagnir. Fljót þjónusta.
Föst tilboð. Uppl. í síma 71580 i
hádegi og eftir kl. 6.
Eldhúsinnréttingar.
Fataskápar. Tilboð í alla trésmiði.
Trésmíðaverkstæðið Dugguvogi
7. Sími 36700.
Túnþökur til sölu.
Höfum til sölu góðar. vélskornar
túnþökur. Uppl. í sinia 30766 og1
73947 eftir kl. 17.
Kópavogsbúar.
Alhliða innrömmynarþjónusta..,
Fjölbreytt útval rammalista.
glært og matt gler. Tempo
innriimmun Alfhólsvegi 30A. simi
41217.