Dagblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 1
tríálst,
úháð
daublaú
3. AHG. MIÐVIKUDAGUR 17. AGtlST 1977 - 177. TBL. RITSTJÓRN SIðUmULA 12. AUGLYSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI, 2 — \ÐALSÍMI 27022
Finnst ég
geta betur
— sagði Hreinn
„Ég var ánægöur með sig-
urinn í gærkvöld — en ekki
ánægður með að ég skyldi
ekki hafa bætt árangur
minn,“ sagði Hreinn Hall-
dórsson þegar við ræddum
við hann í morgun.
„Ég fann mig sæmilega í
gærkvöld en mér finnst ég
eiga að geta betur, Hitt er,
að ég spái aldrei fyrir um
árangur og hvort ég næ góðu
kasti í kvöld verður að koma
á daginn. Það var ákaflega
ánægjulegt að keppa fyrir
framan hina 1500 áhorf-
endur — ég kunni þvi vel og
vona að áhorfendur flykkist
aftur í kvöld á Reykjavíkur-
leikana,“ sagði Hreinn Hall-
dórsson ennfremur.
- h halls.
Þrjár VL-vélar í lengsta sjúkraflugi héðan:
Dauðvona sjómaður sóttur
420 mfíur suður í haf
Vélarbilun varð í Herculesvél og önnur kom þá frá Englandi
Lengsta sjúkraflugi sem
farið hefur verið frá íslandi
lauk á'fyrsta tímanum í nótt er
Ingvi Ágústsson, 1. vélstjóri á
flutningaskipinu Eldvík, var
lagður í Landspítalann. Sjó-
maðurinn var sóttur langt
suður í haf eða 420 milur í
suður frá Hornafirði. Sá staður
er utan við varnarsvæði Islands
og „tilheyrir" Englandi en
björgunarvélar frá varnar-
liðinu fóru sámt og sóttu mann-
inn og björguðu þannig lífi
hans.
Ingvi var skorinn upp í nótt.
Reyndist botnlangi hans
sprunginn. En Ingvi er hraust-
menni og leið eftir atvikum vel
í morgun. En sjóferð í 30
klukkustundir til lands hefði
hann ekki lifað af.
Hjálparkallið frá Eldvík
barst kl. 15.20. Samkvæmt
lýsingu á heilsufari sjó-
mannsins var talið að um bráða
botnlangabólgu eða sprunginn
botnlanga væri að ræða. Þyrla
með lækni og Herculesvél með
eldsneyti lögðu upp kl. 3.45.
Eldsneyti var sett á þyrluna á
flugi á leiðinni.
Herculesvélin fann Eldvík í
sléttum sjó en þokuslæðingi og
vísaði þyrlunni á staðinn. Þá
var klukkan 9.15. Stuttu síðar
var lagt af stað með hinn sjúka
áleiðis til Reykjavíkur. En kl.
22.30 kom fram bilun í
Herculesvélinnl og þótti
ráðlegast að hún færi stytztu
leið til lands en það var til
Woodbridge í Englandi. Þar
var önnur Hercules-vél sem fór
til aðstoðar við þyrluna. fylgdi
henni til Reykjavíkur og
„gaf“ henni eldsneyti a leið-
inni. Hér var lent kl. 0,45.
Þetta er lengsta sjúkraflug í
mílum sem farið hefur verið
héðan. "Erfiðustu sjúkraflug
héðan áður voru er brezkur sjó-
maður var sóttur 50 mílur NA
af Langanesi í mótvindi og
vondu veðri.þegar farið var 270
mílur vestur af Garðskaga að
sækja þýzkan sjómann og þegar
norskum selveiðimönnum var
veitt aðstoð þar sem þeir
höfðust við á ís eftir að skip
þeirra, Fortuna, sökk.
ASt.
BESSI10RKU-
SPARNAÐINUM
Vegna stöðugra bensínhækkana undanfarið eru hugsandi menn farnir að
reyna farartæki áttunda áratugarins og er helzt hallazt að þessari lausn.
Farartækið er eitt hestafl og dúnmjúk sæti fyrir fjóra. Tæki þetta hefur.
verið reynt áður og naut vinsælda um aldir en varð að vikja um stund fyrir
svokallaðri blikkbelju en vegur hennar mun brátt fara dvínandi, enda góðir
gæðingar yfirleitt í meiri metum en beljur. ökuþórinn þekkja víst flestir,
hann er hinn landskunni leikari Bessi Bjarnason. JH
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
Dollar-
inn
Í230
krónur?
— baksíða
ELVIS K0NGUR ER LATINN
Hár og grannur sláni, syfju-
legur á svip með dökkleitt hár
ruddi sér leið upp á tind
frægðarinnar á árunum í kring-
um 1955. Hann var síðar meir
kallaður rokkkóngurinn og bar
það nafn með rentu. Nú er
hann látinn en skilur eftir
þúsundir syrgjandi aðdáenda
um allan heiminn. Elvis
Presley var fyrsta goð táning-
anna, eins og Bitlarnir urðu
siðar. En þeir komust ekki
nálægt honum hvað viðkemur
sölu á hljómplötum. Presley
fékk 25 gullplötur en þær eru
veittar fyrir að selja eina
milljón eintaka af hljómplötu.
Bítlarnir fengu aldrei nema 14
gullplötur. Því má segja að þeir
hafi ekki komizt með tærngr
þar sem hann hafði hælana.
Elvis Presley átti sér
tryggan hóp aðdáenda og á
ferðum hans fylgdi honum
hópur stúlkna sem æptu af lifi
og sál þegar þær litu augum goð
sitt. Rokkkóngurinn mátaði alla
aðra rokkara síðari tíma hvað
við kemur kvikmyndaleik en
alls lék hann í um 60 kvikmynd-
um. Það hefur enginn átt eins
langan feril að baKi: má segja
að hann hafi verið á toppnum í
ein tuttugu ár, eða síðan hann
ruddi sér leið þangað nteð lagi
sínu „Heartbreak Hotel"
KP
— erlendar fréttir á bls. 6-7
A