Dagblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR
REUTER
Gröf
Alex-
anders
mikla
fundin
Gröf Alexanders mikla
hefur fundizt í Alexandrlu í
Egyptalandi, eftir því sem
fréttir þaðan herma.
Alexander mikli dð árið 323
fyrir Krist. Eftir dauða hans
var líkið flutt til Memphis,
sem er smábær skammt frá
Kairó, en síðar til Alex-
andríu, en hann gaf borg-
inni sjálfur nafn.
Énginn hefur vitað um
gröfina í mörg hundruð ár,
en sögur eru til um hana frá
þvl um fjögur hundruð e.Kr.
Bongo, forseti Gambíu, er for-
maður Einingarsamtaka
Afríkuríkja.
Friðar-
gæzlu-
sveitir til
Afríku-
landa?
Bongo forseti Gabon og for-
maður Einingarsamtaka
Afríkuríkja hefur látið frá sér
fara, að ef bardagar hætti ekki
strax á landamærum Sómalíu
og Eþíópíu, þá muni hann biðja
Sameinuðu þjóðirnar að senda
þangað friðargæzlusveitir
sínar. Bongo forseti sagði að
hann mundi fara að á sama hátt
við lausn deilu Líbýumanna og
Chad, þangað mundi hann biðja
friðargæzlusveilir Sameinuðu
þjóðanna að koma, ef þessi ríki
gætu ekki komizt að neinni
lausn sinna mála.
Hvað varðar máiefni Eþíópíu
lét Bongo f Ijósi miklar
áhyggjur og sagði að þar yrði
lausn að finnast. Þar er nú bar-
izt á tveim stöðum, i Eritreu og
í Ogaden eyðimiirkinni.
17. AGUST 1977,
Moraji Desai forsætisráðherra Indlands.
Desaiá Indlandi:
Stéttleys-
ingjar fá upp-
reisn æru
Forsætisráðherra Indlands,
Moraji Desai, hefur gefið lægstu
stéttum landsins loforð um betra
líf í framtíðinni. Þetta gerði hann
í ræðu sem hann hélt I tilefni af
30 ára sjálfstæðisafmæli Ind-
lands. Um átta milljónir Indverja
tilheyra stéttleysingjum, en þeir
eru eftir hindúasið öllum öðrum
neðar í þjóðfélagsstiganum.
Stéttaskipting er mjög föst í Ind-
landi og t.d. má fólk hinna ýmsu
stétta ekki, samkvæmt ströngum
hindúareglum, giftast út fyrir
stéttina. Stéttir mynduðust eftir
störfum manna og efstir voru
prestarnir, eða Brahmínar. Meðal
stéttleysingja fundust oft menn
úr æðri stéttum, en ef þeim hafði
orðið á eitthvert alvarlegt glappa-
skot voru þeir útskúfaðir úr
stétt sinni og féllu þá auðvitað
eins langt og hægt var að falla og
voru taldir til hóps stéttleysingja.
Gandhi gaf þessu fólki nýtt nafn,
Harijans, sem þýðir börn guðs.
Nú ætlar Desai að bæta hag þessa
fólks og hefja það til þeirrar virð-
ingar sem Gandhi vildi að það
hefði. Ráðizt hefur verið að
Janatabandalaginu hvað eftir
annað á undanförnum mánuðum
og það sakað um að gera ekki eins
vel við þetta fólk og aðra þjóð-
félagsþegna.
Indira Gandhi, sem hefur lítið
látið að sér kveða undanfarið,
eftir ósigur sinn í kosningunum,
kom í heimsókn til staðar þar sem
fjöldamorð fór fram á þessu fólki
i maí sl. Það verður sífellt fyrir
alls konar aðkasti í borgum og
þorpum á Indlandi og er það talið
sjálfsagt að þessi stétt manna
vinni óþrifalegustu og verst laun-
uðu störfin í landinu.
SMJORIÐ OMISS-
ANDI í MEGR-
UNARKÚRINN
— segir danskur prófessor sem
gerði tilraun á svínum
Ef maður vill grcnna sig er
um að gera að borða smjör og
láta smjörlíki eða jurtasmjörliKi
alveg vera, segir í niðurstöðu
rannsóknar sem danskur
maður að nafni P.E. Jacobsen
hefur gert. Hann rannsakaði að
vísu ekki menn heldur svín. En
hann segir að það gildi alveg
sömu Iögmálin þegar menn eigi
í hlut. Jacobsen hefur starfað
við Landbúnaðarháskólann í
Danmörku.
Könnunin sem Jacobsen
gerði var í því fólgin að hann
gaf svínunum annaðhvort
jurtasmjiirlíki eða smjör. Þegar
svínin fengu jurtaolíu, sem er
sama efni og er í alls konar
tegundum af smjörlíki, vannst
miklu betur úr matnum sem
þau fengu, þau fengu fleiri
hitaeiningar samtals úr fæð-
unni. Þetta stafar af því að í
jurtaolíunni eru fjölmettaðar
fitusýrur sem ganga þannig í
efnasambönd að útkoman
verður sú að líkaminn vinnur
miklu betur úr matnum en ella.
Ef svínunum var hins vegar
gefið smjör sem hluti af fæð-
unni fitnuðu þau ekki eins
mikið, þrátt fyrir það að matar-
skammturinn væri eins mikill.
7
Óska eftir
að taka á leigu
3ja herbergja íbúð miðsvæðis í borg-
inni. Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Uppl. í síma 17901 eftir kl. 18.
Sími 40299 _______
INNRÉTTINGAR
Auðbrekku 32, Kópavogi
3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, fura, hnota og eik.
Uppstilltar á staðnum. — 1-2 mán. afgreiðslufrestur.
ó&b ;
Lærið
að
fljúga
Flug er heillandi tómstundagaman og
eftirsóknarvert starf. Ef þú hefur
áhuga á flugi þá ert þú velkominn til
okkar í reynsluflug — það kostar þig
ekkert.
fl£/GMÁr///r
uamla flugturninum
Reykjavíkurfiugvelli.
Sími 28122.
Umsóknir um heimilisbætnr
frá Tryggingastofnun ríkisins
Samkvæmt nýútgefnum bráðabirgða-
lögum skulu almannatryggingar
greiða þeim einhleypingum, elli-
lífeyris- og örorkulífeyrisþegum, sem
njóta tekjutryggingar, sérstaka heim-
ilisuppbót. Þetta tekur þó aðeins til
þeirra, sem eru einir um heimilis-
rekstur, án þess að njóta f járhagslegs
hagræðis af sambýli eða samlögum við
aðra um heimilisaðstöðu eða fæðis-
kostnað.
í Reykjavík verður byrjað að afhenda
umsóknareyðublöð og taka á móti um-
sóknum fimmtudaginn 18. þessa mán-
aðar á 1., 2. og 4. hæð í skrifstofu
Tryggingastofnunar ríkisins að
Laugavegi 114.
Þeim, sem óska eftir aðstoð við útfyll-
ingu umsókna, er sérstaklega bent á,
að til þess að komast hjá biðröðum og
óþægindum er nauðsynlegt að skipu-
leggja þá aðstoð sérstaklega og verður
fyrirkomulag þeirrar aðstoðar frá 18.
til 26. þessa mánaðar þannig, að dag
hvern verður veitt aðstoð þeim, sem
bera nöfn, sem byrja á ákveðnum upp-
hafsstöfum.
Þá er einnig á það bent, að mjög
æskilegt er, og myndi greiða fyrir
afgreiðslu, að umsækjendur hefðu
rpeð sér síðasta greiðsluseðil trygg-.
ingabóta. Ef ekki er hægt að framvísa
persónuskilríkjum.
Aðstoð verður veitt sem hér segir:
Fimmtudag 18. ágúst Aage til Drafnar
Föstudag 19. ágúst Ebba til Guðmundar
Mánudag 22. ágúst Guðrún til Hrafns
Þriðjudag 23. ágúst Hrafnhildur til Kjartans
Miðvikudag 24. ágúst Klara til Ottós
Fimmtudag 25. ágúst Páll til Stefáns
Föstudag 26. ágúst Stefanía til össurar
Reykjavík, 15. ágúst 1977
Tryggingastofnun
rikisins.