Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 5

Dagblaðið - 05.11.1977, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER 1977. t ' .... ' Naglar valda hundraða milljöna tjöni á götunum En féleysi háir stórsnjallrí íslenzkrí uppfinningu Einar Einarsson telur sig þurfa 8-10 milljönir Það hefur komið fram hjá gatnamálastjóranum 1 Reykja- vík að tjón það sem nagladekk valda á götum borgarinnar er u.þ.b. 300 milljónir króna, og allt sumarið fer í það að lag- færa skemmdir á slitlagi frá vetrinum áður. Með hliðsjón af þessu mikla tjóni af völdum nagla- dekkjanna er furðulegt það- sinnuleysi, sem uppfinningu Einars Einarssonar hefur verið sýnt hér á landi. Uppfinningin byggist á því að sérstakur naglabúnaður er í dekkjunum og með því að breyta stillingu ventilsins á hjólunum breytist loftið, þannig að naglarnir fara út eða inn eftir þvi sem við á. Einnig er hægt að hafa þénnan búnað inni í bílunum og er því hægt að draga naglana út eða inn með einu handtaki. Einar hefur fengið einka- leyfi á þessari uppfinningu og hún hefur vakið athygli víða um lönd, þar sem menn eiga við þetta naglavandamál að stríða. Einar teiur að hann þurfi 8-10 milljónir til þess að fullkomna þessa uppfinningu og framleiða í tilraunaskyni hjólbarða til tilrauna og kynningar. Einar gerði ráð fyrir að tveir menn ynnu við þessar tilraunir I eitt til tvö ár, en Háskóli íslands hefur lofað að láta í té hús- næði undir tilraunastarf- semina. En uppfinningamáðurinn hefur talað fyrir daufum eyr- um ráðamanna og aðeins fengið lítilræði, sem kemur að litlu gagni. Það er þó Ijóst, að sú fjárhæð, sem Einar þarf, er hverfandi lítil miðað við tjónið af völdum naglanna. Einar hefur hlotið meðmæli Háskóla Islands, Iðnaðarmála- stofnunar Islands, lögreglu- stjórans í Reykjavík, Bifreiða- eftirlits ríkisins, Landssam- bands iðnaðarmanna, Sambands Isl. sveitarfélaga og Barðans h/f, þar sem hvatt er til ' stuðnings við þessar tilraunir. Einnig hefur kvik- mynd, sem Örn Harðarson gerði um þessa uppfinningu, hlotið yiðurkenningu tækni- kvikmynda bæði í Moskvu og Tékkóslóvakíu. En ekkert gerist. Fjármagnið fæst ekki til tilraunanna. Hvað dvelur orminn langa? .jh_ UR EINU HERBERGI í GLÆSILEGT EIGIÐ HÚSNÆÐI —með viðkomu í Hátúni 4a. Sparisjóður vélstjóra flytur starfsemina að Borgartúni 18. Mikil aukning innlána „Þróun Sparisjóðs vélstjóra hefur verið ákaflega hröð undan- farin ár. Nú nema innlán í sparisjóðnum 770 milljónum króna en um áramótin voru þau 576 milljónir króna. Þessi öra þróun hefur kallað á aukið húsrými, sem við opnum nú • og þannig getur Sparisjóður vélstjóra veitt viðskiptavinum sinum aukna þjónustu, þar á meðal geymsluhólf,“ sagði Hallgrímur G. Jónsson sparisjóðs- stjóri á fundi með fréttamönnum í gær en Sparisjóðurinn var opn- aður í gær í glæsilegum húsa- kynnum að Borgartúni 18. Sparisjóður vélstjóra byggði þar i samvinnu við Farmanna-og fiskimannasamband Islands og aðildarfélög þess. Húsið er um 1900 fm að grunnfleti, tvær hæðir. Sparisjóðurinn hefur til umráða 600 fm. Bygging hússins hófst í apríl á síðasta ári og við innréttingu húsnæðisins hefur verið tekið mið af þeim kröfum, er gerðar eru til þjónustu- stofnana í dag. Þannig geta fatlaðir rekið erindi sín, þar eð engir þröskuldar eða tröppur tor- velda för hjólastóla. öryggis- geymslur í húsinu eru tvær — að erlendum stöðlum. Já, Sparisjóður vélstjóra hefur vaxið ört frá því hann var stofnaður 1961 að frumkvæði félaga innan Vélstjórafélags Islands. Hann hefur með árunum þróazt í að verða þjónustustofnun fyrir almenning. Með auknum vexti hefur starfsemin kallað á betri húsakost. Þannig hóf sparisjóðurinn starfsemi sína í leiguhúsnæði að Bárugötu 11 — I einu herbergi. SVo var flutt að Hátúni 4a 1971 — og loks nú er Sparisjóður vélstjóra í eigin glæsilegu húsnæði. Starfsfólk er nú 10 manns og sparisjóðsstjóri er Hallgrimur G. Jónsson, en hann tók við af Tómasi Guðjónssyni er veitti sparisjóðnum forstöðu fyrstu árin. Jón Júlíusson er stjórnarfor- maður og með honum eru í stjórn Gísli Olafsson og Jón Hjaltested. Nýbygging sparisjóðsins að Borgartúnl 18. Forráðamenn Vélstjóraspari sjóðsins: f.v. Valdimar Olafsson endurskoðandi, Jón Júlíusson, Hallgrímur Jónsson sparisjóðs- stjóri og Jón Hjaltested. — ta úti á tilraunadekkjum Einars. nýrri gerðum uppfinningarinnar er þetta kerfi innbyggt í ventil dekksins, en ekki í utanáliggjandi ventli eins og sést á myndinni. Naglakerfið má síðan flytja á miili fjölmargra dekkja þvi naglarnir slitna ekki þegar þeir eru inni og lítið í snjó og hálku. — annað óskilahjöl komið fram Alsæll var 10 ára snáði, sem endurheimti reiðhjólið sitt, sem auglýst var eftir f Dagblaðinu á dögunum. Reyndar hafði drengurinn merkt sér hjólið með lfmbandi með nafni sfnu og heimilisfangi. Heiðarleg og góðviljuð kona varð vör við hjólið vestur á Kaplaskjólsvegi en hjólið hvarf af Laugarnesveginum á laugardagskvöldið.Lét konan vita af hjólinu og var sá litli ekki seinn á sér að sækja það. Ur Breiðholtinu hringdi aftur á móti maður og lét DB vita um nýlegt DBS reiðhjól, sem þar var á flækingi. Hjólið er með girum, hinn mesti kjörgripur. Fundu ungir piltar hjólið þar sem það lá niðri við Elliðaár. Fóru þeir með það heim með sér. Var lögreglunni tilkynnt um fundinn. Nú bfður þetta hjól þess að eigandinn gefi sig fram. Ritstjórn DB getur vísað á hjólið þeim sem eftir þvf leitar með réttri lýsingu. Hjólandi öldungur fyrir bfl Hjólandi maður, sem kominn er öldungur var þarna á ferð á rétt- á níræðisaldur, varð fyrir bfl á um kanti er bíl bar að sem fór illa mótum Innnesvegar og Garðav. I beygjuna og lenti á hjólreiða- á Akranesi á fimmtudag kl. Í4.55. manninum. Hann brákaðist í baki Gamli maðurinn sem er. hress . en meiðslin ekki talin alvarleg. Vinnuslys um borð íVigra Vinnuslys varð um borð í Vigra tonn, féll niður f skipið og lenti að f Reykjavíkurhöfn á sjöunda nokkru á fæti manns. Svo tfmanum á fimmludaginn. Verið, heppilega tókst þó til að var að hífa rafankeri upp úr maðurinn er ekki alvarlega vélarrúmi skipsins er keðja slasaður. slitnaði. Stykkið, sem vó yfir eitt -ASt. Enn stela þeir reiðhjólum Lftið lát virðist vera á reiðhjóla- dekk eru á hjólinu, en aurhlíf þjófnuðum í borginni. Fyrir vantar að aftan Þeir sem kynnu nokkru sfðan var Raleigh- að hafa orðið reiðhjólsins varir reiðhjóli stolið frá dreng i Breið- eru vinsamlega beOnir að hringja holti, nánar til tekið fyrir utan í útlitsteiknara Dagblaðsins, sfma Blikahóla 2. Hjólið er blátt með 85112, eða heim til drengsins f lukt en engum dfnamó. Glæný sfma 74065.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.